Morgunblaðið - 22.05.2017, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 22.05.2017, Qupperneq 13
DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MAÍ 2017 Langar þig til að rækta kryddjurtir og grænmeti en veist ekki alveg hvernig þú átt að fara að því? Hefur þú ein- hverja hugmynd um hvers vegna er sniðugt að rækta gulrætur og vorlauk saman? Eða hvað skiptiræktun í mat- jurtagarði raunverulega er? Garðyrkjufræðingar Grasagarðsins og félagar í matjurtaklúbbi Garð- yrkjufélags Íslands vita svörin við þessum og fleiri spurningum sem efalítið brenna á áhugasömum mat- jurtaræktendum. Hvenær sem er milli kl. 17 og 19 á morgun, þriðjudaginn 23. maí, býðst gestum og gangandi í Grasagarði Reykjavíkur að fræðast um sáningu, útplöntun og umhirðu krydd- og mat- jurta. Auk þess verður farið yfir ráð- leggingar varðandi smádýrin í mat- jurtagarðinum. Sérstök áhersla verður á kartöflur, en Grasagarður Reykjavíkur tekur þetta sumarið þátt í spennandi verkefni með sáð- kartöflur. Aðgangur er ókeypis og all- ir velkomnir. Góð ráð og fræðsla í Grasagarði Reykjavíkur Ómótstæðilegar Nýuppteknar og girnilegar gulrætur sem bragð er að. Hvers vegna er sniðugt að rækta gulrætur og vorlauk saman? fáránlega líkamsdýrkun. Fegurðar- staðla sem konur eru settar undir, alltaf. Ég tók sex myndir af slitnum og krumpuðum líkömum, líkams- hárum og fleira. Ég skrifaði niður allt sem konurnar sögðu um líkama sinn meðan á myndatökunni stóð. Ég auglýsti eftir konum sem sjálf- boðaliðum. Viðbrögðin voru ótrúleg. Það voru allir tilbúnir að gera allt þegar kom að verkefninu. Það var enginn kynslóðamunur þegar kom að sjálfboðaliðum. Staðallinn er eins fyrir allar konur. Það er svo fárán- legt því það er engin ein rétt leið til að vera kona.“ Guðrún tekur það skýrt fram að hún er ekki að leggja áherslu á að bara feitir líkamar séu fallegir held- ur að allir líkamar séu fallegir. Þeir eru í öllum stærðum og gerðum. Hún vill leggja áherslu á að hver og einn megi gera það sem hann vill við líkama sinn án þess að vera dæmdur fyrir það. „Öllum ætti að líða vel í eigin skinni og elska sig alveg eins og maður er.“ Konur eru ekki Barbie-dúkkur Í verki Guðrúnar á útskriftar- sýningunni tekur hún myndir af venjulegum líkama. Hún setur bút af fótósjoppuðum líkamshluta yfir þann sem fyrir er. Guðrún fylgir tískubylgjunni, staðalímyndinni. Hún setur inn bút af mjúkri húð og minnkar mittið á líkamanum í mynd sem hún kallar Ég er ekki dúkka. Á næstu mynd felur Guðrún geirvört- ur með gati og kallar myndina Ég er ekki Barbiedúkka. Á þriðju mynd- inni, sem heitir Ég er ekki plast, er búið að bæta á myndina plastbuxum þar sem sést í kynfærahár. Allt tabú er fjarlægt á myndunum. „Það er fáranlegt að setja okkur undir sama hatt og Barbie-dúkkur úr plasti. Skilaboðin eru að sem kona þarftu að hafa fullkominn líkama. Það er fáránlegt hvað við leyfum klámvæðingunni að ráða yfir líkama okkar. Ef þú vilt raka af þér líkams- hárin er það í góðu lagi . Ef þú vilt það ekki á það líka að vera í góðu lagi. Ég var 12 til 13 ára þegar vinir mínir létu mig vita að ég þyrfti að raka af mér kynfærahárin,“ segir Guðrún og er mikið niðri fyrir. „Það var frelsandi að vinna verkefnið,“ segir Guðrún. „Mér fannst einhvern veginn að ég mætti vera eins og ég er. Ég þarf að minna sjálfa mig á að það sé allt í lagi að vera með slit og appelsínuhúð. Mér fannst vænt um að heyra það frá einni stelpu sem var í myndatöku hjá mér að hún hefði farið heim og fundist slitin sín í lagi í fyrsta sinn. Markmiðið mitt með verkunum er að gagnrýna hlutgervingu sem alltaf er sett á líkama kvenna. Það á reyndar líka við um karla.“ Listina er hægt að nota til að bæta heiminn, segir Guðrún, sem sótt hefur um inngöngu í grafíska hönnun í Listaháskólanum. KRISTÍN MARÍA INGIMARSDÓTTIR Kristín María Ingimarsdóttir kennir grafíska hönnun ásamt Ara Halldórssyni og Ingibjörgu Frið- riksdóttur á Listnámsbraut Borgar- holtsskóla. Brautin hefur verið í uppbyggingu frá stofnun skólans fyrir tuttugu árum. „Ég get fullyrt að aðstaðan er góð, sem og aðgangur að tækjum og tólum. Auðvitað má alltaf gera betur en það hefur verið vel að verki staðið á Listnámsbraut- inni. Það er mikilvægt fyrir ung- menni sem vilja leggja stund á kvik- myndun og grafíska hönnun að hafa aðgang að góðum tækjum og for- ritum til þess að verða betri fag- menn.“ Ungmenni á Listnámsbrautinni hafa verið fengin til þess að aðstoða við upptökur á RÚV að sögn Krist- ínar. „Ég er stolt af því að nemendur okkar hafa unnið að alvöruverk- efnum og fengið hrós frá fagmönn- um. Listnámsbraut Borgar- holtsskóla fellur vel að verklagi og hugmyndafræði skóla á 21. öldinni.“ Listnám er gott veganesti „Flestir nemendur eiga erindi á listnámsbraut og hún er gott vega- nesti fyrir hvaða nám sem er. Það er misskilningur hjá mörgum for- eldrum að börn þeirra eigi ekki að fara á listnámsbraut nema þeir ætli að verða listamenn. Grafísk hönnun nýtist alls staðar og á 21. öldinni er skapandi hugsun eftirsóknarverð, sem og myndræn framsetning og greiningarhæfni. Það er mikils virði að kunna að matreiða upplýsingar á sjónrænan hátt,“ segir Kristín María og leggur áherslu á orð sín. Hver er tilgangurinn með út- skriftarsýningunni? „Hún er vett- vangur fyrir nemendur að sýna verk sín og hæfni, hvatning til að bera ábyrgð bæði á náminu og verkum sínum og ekki síst að sýna fram á að rödd þeirra og skilaboð skipti máli í lýðræðislegu samfélagi.“ Kristín María segir að nem- endur sem hafa komið úr öðrum framhaldskólum í Borgarholtsskóla tali oft um að þeir finni fyrir meira frelsi og þrýstingurinn að uppfylla ákveðnar staðalímyndir sé minni en í mörgum öðrum skólum. „Nemendur upplifa það að hér geti þeir verið þeir sjálfir.“ Hún ítrekar að grafísk hönnun sé ekki eingöngu fyrir þá sem hyggist feta listabrautina. „Grafísk hönnun er ekki nýtt fag. Hún á sér aldagamla hefð en með stafrænu byltingunni hefur fagið víkkast út og hlutverk þess sjaldan verið mikilvægara en nú.“ Grafísk verk nemenda á sýning- unni eru af ýmsu tagi; ljósmyndir, veggspjöld, álplötur, hönnun á bol- um og umbúðum og margt fleira. Margir nemendur unnu út frá hugmyndum sem þeir höfðu byrjað á fyrr um veturinn. Lögð var áhersla á að taka verkin lengra og að þau hefðu einhver skilaboð fram að færa, að sögn Kristínar Maríu. Skapandi og lausnamiðað nám „Það er mikilvægt að undirbúa nemendur vel fyrir framtíðina. Sú kynslóð sem er að vaxa úr grasi núna mun að öllum líkindum þurfa að skipta sjö sinnum að meðaltali um starfsvettvang. Mikilvægi þess að búa sig undir breyttar aðstæður hef- ur aldrei verið meira. Skapandi og lausnamiðað nám eins og boðið er uppá í Borgarholtsskóla er mikil- vægt, “ segir Kristín María, sem er þakklát fyrir gott samstarfi við Borgarbókasafnið, Menningarhús – Spönginni í tengslum við sýninguna. Sýningin stendur til 31. maí. Hún er ekki sölusýning en þrátt fyr- ir það hafa nokkur verk nemenda selst á sýningunni. Morgunblaðið/Hanna Hlutgerving Guðrún Hanna gagnrýnir á hlutgervingu kvenlíkamans í í verki sínu Ég er ekki dúkka, ég er ekki Barbiedúkka, Ég er ekki plast. Morgunblaðið/Hanna Borgarholtsskóli Guðrún Helena og Friðrik Úlfar Ingimarsson, grafík- listamenn og nemar, ásamt kennaranum Kristínu Maríu Ingimarsdóttur. Útskriftarnemendur sem sýna verk á lokasýningunni Andrea Kjartansdóttir, Anna Margrét Þorsteinsdóttir, Bergrún Lilja Jónsdóttir, Brynjar Logi Árnason, Daníel Guðni Runólfsson, Friðrik Úlfar Ingimarsson, Guðrún Helena G. Kristjánsdóttir, Ísak Snorri Marvinsson, Oddný Svava Steinarsdóttir, Óliver Örn Sverrisson, Sara Alexía Sigríðardóttir, Sigrún Eir Einarsdóttir, Þorsteinn Orri Eyjólfsson og Þorsteinn Orri Garðarsson. Tíska & förðun Fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 2. júní Fjallað verður um sumartískuna 2017 í fatnaði, förðun og snyrtingu auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 29. maí NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.