Morgunblaðið - 22.05.2017, Page 14

Morgunblaðið - 22.05.2017, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MAÍ 2017 VERÐ 16.995 Rafmyntin bitcoin heldur áfram að styrkjast og fór yfir 2.000 dala markið á laugardag, eftir að hafa þverað 1.900 dala múrinn á föstu- dag. Hefur verð bitcoin því ríflega tvöfaldast frá því seint í mars. Í árs- byrjun kostaði bitcoin um 433 dali og hefur verðið því næstum fimm- faldast frá áramótum. Að sögn vefsíðunnar CoinTelegr- aph, sem sérhæfir sig í umfjöllun um rafræna gjaldmiðla, hafa sér- fræðingar skiptar skoðanir á styrk- ingu bitcoin. Benda margir á að hækkunin sé of hröð og meiri en til- efni sé til, en erfitt sé að segja til um það með vissu hvort – og þá hvenær – bólan muni springa. Á sunndagskvöld var verð bitcoin um það bil 2.020 dalir. ai@mbl.is Bitcoin rýfur 2.000 dala múrinn Með kjöri Donalds Trump í embætti forseta Bandaríkjanna leit út fyrir að TPP-fríverslunarsamningurinn væri runninn út í sandinn. Nú hafa viðskiptaráðherrar 11 Asíu- og Kyrrahafsríkja hins vegar ákveðið að endurlífga samninginn og gera TPP að veruleika án aðildar Banda- ríkjanna. BBC greinir frá þessu en við- skiptaráðherrar aðildarríkja APEC, Efnahagssamtaka Asíu- og Kyrrahafsríkja, funduðu í Hanoi um helgina. Þar náðist sam- komulag utan fundar um að end- urvekja TPP. Upphaflega áttu aðildarríki TPP að vera tólf, og segir BBC að fyr- irhugað sé að ganga þannig frá samningnum að Bandaríkin geti gerst aðili að honum seinna meir. Japan, Ástralía og Nýja-Sjáland munu leiða TPP-ferlið en auk þeirra eiga Kanada, Singapúr, Mexíkó, Perú, Síle, Víetnam, Mal- asía og Brúnei aðild að samn- ingnum. ai@mbl.is TPP ríkin halda áfram án Banda- ríkjanna BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Stefnt er að því að Skeljungur eign- ist allt hlutafé í Basko, sem á rekstrarfélag Tíu Ellefu hf., Ísland verslun hf. og Imtex ehf. Undir Basko heyra m.a. 10-11 verslanirnar, verslanir Iceland, Dunkin' Donuts- kaffihúsin, Háskólabúðirnar, veit- ingastaðurinn Bad Boys Burgers & Grill og ein Inspired by Iceland verslun. Í tilkynningu sem send var fjöl- miðlum í gærkvöldi kemur fram að heildartekjur Basko-samstæðunnar á síðasta fjárhagsári hafi numið rúm- lega 10 milljörðum króna. Heildar- eignir námu rúmum 2,3 milljörðum og rekstrarhagnaður án afskrifta og fjármagnsliða(EBITDA) var 309 milljónir króna. Miðast kaupverðið við að EBITDA Basko geti numið 500 milljónum króna þegar samlegðaráhrif félag- anna verða að fullu komin fram, og er reiknað með að það geti orðið innan tveggja ára frá kaupunum. Geta ekki framselt hlutina í 18 mánuði Miðað við þessar forsendur verður kaupverðið allt að 2,2 milljarðar króna, greitt með 318.840.580 hlut- um í Skeljungi, miðað við gengið 6,9 kr á hlut. Var dagslokagengi Skelj- ungs 6,35 kr þann 19. maí síðastlið- inn. Er miðað við nettó vaxtaberandi skuldir að upphæð 657 milljónir króna og munu seljendur Basko skuldbinda sig til að framselja ekki hluti sína í 18 mánuði frá afhendingu. Gangi kaupin eftir munu seljendur Basko eiga 13,19% hlut í Skeljungi. Ekki náðist í Árna Pétur Jónsson, forstjóra Basko, við vinnslu fréttar- innar í gærkvöld. Að sögn Valgeirs M. Baldurssonar, forstjóra Skelj- ungs, er fyrirhugað að Árni muni áfram stýra þeim rekstri sem í dag heyrir undir Basko. Munu rúmlega 400 manns starfa hjá hinu sameinaða félagi. Stefnubreyting hjá Skeljungi Kaup Skeljungs á Basko fela í sér nokkra stefnubreytingu frá því sem var þegar fyrirtækið var skráð á markað í fyrra. Þannig var forstjóri Skeljungs spurður í viðtali í Við- skiptaMogga þann 24. nóvember, í aðdraganda skráningar félagsins, af hverju smásala á bensínstöðvum fé- lagsins væri á höndum annarra aðila en fyrirtækisins sjálfs. „Eins og ég segi þá teljum við okkur best í að selja eldsneyti og við viljum einbeita okkur að því. Við höfum arðsemi reksturs okkar að leiðarljósi en erum vitaskuld alltaf með reksturinn í stöðugri endur- skoðun. Sem stendur teljum við okkur þjónusta viðskiptavini okkar best í samstarfi við aðila sem sér- hæfa sig í þægindavöruverslun. Húsnæðið og lóðirnar eru enn okk- ar og við lítum á verslunarrekstur- inn sem hluta af okkar vörufram- boði, þótt hann sé í höndum þriðja aðila,“ sagði hann þá. Basko metið á 2,2 milljarða  Skeljungur eignast m.a. 10-11 og Dunkin' Donuts, gangi kaupin eftir  Kaupin til marks um stefnubreytingu hjá Skeljungi frá því í nóvember Morgunblaðið/Júlíus Samþjöppun Með kaupum Skeljungs á Basko verður til fyrirtæki með rúmlega 400 starfsmenn um land allt. Valgeir M. Baldursson Árni Pétur Jónsson David Davis, Brexit-ráðherra bresku ríkisstjórnarinnar, segir að Bretland muni binda enda á viðræður við Evr- ópusambandið ef ekki verði látið af kröfu um að Bretar greiði allt að 100 milljarða evra útgöngureikning. Lét hann þessi orð falla í viðtali sem Sunday Times birti um helgina. Er fyrirhugað að formlegar viðræður vegna Brexit hefjist 19. júní. Skiptar skoðanir eru um hvort, og þá hversu mikið Bretland þarf að greiða vegna útgöngunnar úr ESB. Guardian bendir á að næstu tvö árin teljist Bretland áfram aðildarríki og þurfi því að greiða umsamin framlög í sameiginlega sjóði þar til aðildinni verður endanlega slitið. Árið 2013 und- irritaði David Cameron, þáverandi for- sætisráðherra, sjö ára fjárhagsáætlun ESB fyrir hönd bresku ríkisstjórnar- innar, og er ekki að fullu ljóst hvort Bretland er þar með skuldbundið til að greiða umsamin framlög til ársins 2020 og jafnvel lengur. ESB hefur líka eytt um efni fram og má vænta þess að Bretland þurfi að gera upp sinn hluta af þeim skuldum sem aðildarþjóðirnar bera ábyrgð á. Að sögn Bloomberg hafa leiðtogar ESB nefnt ýmsar upphæðir, sem þeir telja Bretland skulda. Jean-Claude Juncker, formaður framkvæmda- stjórnar ESB, telur upphæðina vera í kringum 50 milljarða punda, en Xav- ier Bettel, forsætisráðherra Lúxem- borgar, hefur gefið til kynna að upp- gjörið við ESB muni kosta Bretland á bilinu 40-60 milljarða evra. Áætlar Financial Times að reikningurinn geti numið allt að 100 milljörðum evra. Samtök endurskoðenda í Englandi og Wales reiknuðu hins vegar út að út- göngureikningurinn mundi aðeins nema 5 milljörðum punda. ai@mbl.is Davis: Við borgum ekki  Bretar hætta viðræðum ef ESB krefst greiðslu AFP Harka David Davis sendir skýr skilaboð í aðdraganda viðræðna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.