Morgunblaðið - 22.05.2017, Síða 22

Morgunblaðið - 22.05.2017, Síða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MAÍ 2017 Einar Einarsson,framkvæmda-stjóri Gallup á Íslandi, á 50 ára afmæli í dag. „Gallup er fyr- irtæki sem aðstoðar við- skiptavini sína við að taka betri ákvarðanir með því að veita þeim réttar og áreiðanlegar upplýsingar. Ég hef starfað í rannsókna- og ráðgjafageiranum í 24 ár með frábæru fólki og hef unnið með mörgum af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins við að aðstoða þau að ná betri árangri. Á þessum tímamótum hef ég hins vegar ákveðið að halda á vit ævintýranna og er að láta af störfum 1 júní. Framtíðin er óráðin en ég er spenntur að reyna fyrir mér á öðrum vettvangi með það veganesti og þá reynslu sem ég hef aflað mér hér.“ Einar spilaði handbolta í yfir 20 ár með Stjörnunni og var auk þess þjálfari félagsins í fjögur ár. „Ég fylgist enn með handboltanum af miklum áhuga enda eru tvær yngri dætur mínar í handbolta af mikl- um krafti. Ég hef starfað mikið fyrir Stjörnuna og einnig fyrir HSÍ, bæði setið í landsliðsnefnd og stjórn, það er mjög skemmtilegt og gef- andi starf. Mér finnst gaman að hjóla og spila golf og stefni að því að auka þátttöku mína í þessu tvennu í framtíðinni. Einnig hef ég skellt mér eitthvað í laxveiði og hafa Kjarrá og Grímsá verið fastir punktar síðustu ár. Reyndar ætlum við að hvíla Grímsá í sumar og fara í Langá, en þangað fer ég með mjög skemmtilegum hópi sem saman- stendur af gömlum handbolta- og fótboltakempum úr Stjörnunni. Þetta er auðvitað stór tala að verða 50 ára, en maður fagnar því að hafa náð þessum áfanga og vera við góða heilsu. Það eru gríðarleg verðmæti. Þetta verður notalegur dagur með fjölskyldunni og vinnu- félögum. Konan mín varð fimmtug í janúar og á miðvikudag bjóðum við nokkrum vinum okkar í smá veislu.“ Eiginkona Einars er Hildur Pálsdóttir snyrtifræðingur. Börn þeirra eru Hrund 28 ára viðskiptafræðingur, Harpa Hlín 23 ára, BA í sálfræði og flugfreyja hjá Wow air, Helena Embla 14 ára og Hekla Ylfa 12 ára. Framkvæmdastjórinn Einar Einarsson hef- ur unnið í rannsóknageiranum í 24 ár. Ætlar að halda á vit nýrra ævintýra Einar Einarsson er fimmtugur í dag Morgunblaðið/Eggert Í sleifur fæddist á bænum Ein- landi í Grindavík 22.5. 1927 og ólst upp í Þorkötlustaða- hverfinu. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1949, fyrrihlutaprófi í verk- fræði við HÍ 1952 og M.Sc.-prófi í vélaverkfræði við Danmarks Tekn- iske Höjskole, Polyteknisk Lærean- stalt í Kaupmannahöfn 1955. Ísleifur helgaði mestan hluta starfsævi sinnar jarðborunum víða um heim. Hann var verkfræðingur hjá jarðhitadeild Orkustofnunar 1956-61, deildarverkfræðingur hjá Jarðborunum ríkisins 1961-69 og forstöðumaður Jarðborana ríkisins 1964-88. Ísleifur vann mikið frumkvöðla- starf við borun eftir jarðgufu og heitu vatni víða um land til hitaveitu- væðingar landsins. Bortækni þess tíma var þróuð til olíuborana og vann Ísleifur mikið frumkvöðlastarf við að laga bortæknina að borun á háhitasvæðum. Á þessum tíma varð til mikil þekking hérlendis við beisl- un jarðhita. Hann tók virkan þátt í að flytja íslenska þekkingu í gufu- borunum til útlanda þegar hann tók að sér verkefni í El Salvador á veg- um Sameinuðu þjóðanna 1968. Þar þróaði hann nýja tækni til að vekja háhitaborholur og fá þær til að gjósa, en sú tækni er notuð um allan heim fram til þessa dags. Ísleifur var borverkfræðingur á vegum Sameinuðu þjóðanna í El Salvador 1968 og stjórnaði þá borun á tveimur fyrstu gufuholum í Mið- Ameríku. Hann skipulagði jarð- hitarannsóknir á vegum SÞ í Tyrk- landi 1970, framkvæmdastjóri á veg- um SÞ við jarðhitarannsóknir í Ísleifur Jónsson, fyrrv. forstöðum. Jarðborana ríkisins – 90 ára Verkfræðingur Ísleifur Jónsson helgaði mestan hluta starfsævi sinnar jarðborunum víða um heim. Veitti heiminum að- gang að jarðhitanum Strókur Ísleifur hannaði og sá um smíði goshversins við Perluna. Áshildur Eva Árnadóttir, Sunna Margrét Eggertsdóttir og Marín Mist Albertsdóttir héldu tombólu við verslun Samkaup-Strax við Borgarbraut. Þær söfnuðu með því 5.031 kr. sem þær styrktu Rauða krossinn með. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is YBX er ný kynslóð af rafgeymum í bíla g hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.isStillin Meðal viðskipta- vina Yuasa eru: Hærra ka ldræsi og lengr i ending

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.