Morgunblaðið - 22.05.2017, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MAÍ 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú fyllist mikilli ferða- og ævintýraþrá
á þessum árstíma. Þú sérð fram á skemmti-
legt sumar með fjölskyldu og vinum.
20. apríl - 20. maí
Naut Taktu enga áhættu í dag og vertu þar
sem þú finnur öryggi og frið. Þér finnst þú vera
ófrjáls, en það er bara tímabundið ástand.
Horfðu fram á veginn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hafðu samband við manneskju sem
þú hefur hugsað hlýlega til upp á síðkastið. Þú
veist hvað klukkan slær þegar vöðvabólgan
ræðst á þig. Farðu í sund eða nudd.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú stendur frammi fyrir erfiðri ákvörð-
un og mátt ekki efast um eigin dómgreind. Að
hika er sama og að tapa. Skrifaðu hjá þér það
sem þér dettur í hug, það getur nýst þér síðar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er eitt og annað sem þú ert að velta
fyrir þér þessa dagana en þér finnst þú ekki
finna neitt svar. Settu það bara bak við eyrað,
svarið kemur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur einsett þér að koma þinni
skoðun á framfæri í dag. Einhver gengur á eftir
þér með grasið í skónum. Gefðu viðkomandi
tækifæri, það sakar ekki.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þú lætur verða af því að segja hug þinn
muntu undrast hversu marga jábræður þú átt.
Hamingjan felst í því að vera sátt/ur við það
sem þú hefur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert einstaklega frjó/r í hugsun
í dag. Nú er að bretta upp ermarnar og drífa
sig í að klára hlutina. Makinn er eitthvað dauf-
ur í dálkinn, reyndu að hressa hann við.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Betur sjá augu en auga. Yfirmenn
eru ánægir með það hvað þú ert úrræðagóð/
ur. Þú gerir hreint fyrir þínum dyrum í deilum
við nágranna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þið eigið ekki að láta aðra segja
ykkur fyrir verkum um útlit og hegðun. Kann-
aðu hvort gömul tækifæri standi enn til boða.
Þér er hrósað og það gleður þig mjög.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það má auðveldlega skemmta sér
án mikils tilkostnaðar. Reyndu að skrifa niður
það sem þú vilt segja, þannig kemur þú skipu-
lagi á hugann.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er í góðu lagi að þú gerir eitthvað
fyrir sjálfa/n þig nú þegar þú hefur skilað af
þér umfangsmiklu verkefni. Samstarf þitt við
aðra er gott og þú hefur skemmtilega sýn á
hlutina.
Sigurlín Hermannsdóttir segir,að nú sé græna byltingin í al-
gleymingi, – sér finnist alltaf jafn
yndislegt að sjá blöðin breiða úr
sér áður en meindýrin fara að ráð-
ast á þau. „Laufblöð“ er heitið á
ljóðinu:
Loks hefur vorið
vakið upp gróður
af vetrarins þunga svefni.
Laufið á trjánum
lokkar það fram
úr blaðgrænu byggingarefni.
Glansandi skrúðið
skýlir og fegrar
skínandi blöðin ósnert
engum þau sinna
sjálf sig þau eiga
í heilbrigði, ein og óskert.
Í leynum enn liggja
lýsnar sem naga,
lirfur er blöðin klemma,
illgjarnir sveppir
og asparglyttur
sem einungis þrá að skemma.
Sólarhrings birtu
svolgra þau í sig
af sumarsins allsnægtarbrunni
og njóta að mega
nætur og daga
helga sig hamingjunni.
Rósssberg G. Snædal skrifar
Vísnamál í Safnamál 1980. Þar
segir frá því, að Húnvetninga-
félagið á Akureyri hafi farið í
skemmtiferð um Húnaþing. Í
Sléttuhlíð var austan vatnsveður.
Bjarni Jónsson úrsmiður frá Gröf
orti:
Þó um bretti, glugga og gler
gangi slettuhríðin
keyrðu létt, nú leiðist mér,
ljót er Sléttuhlíðin
Í Hrútafirði hrökk þessi upp úr
Bjarna, vafalítið „rímsins vegna“:
Allir grútar okkar lands
eru í Hrútafirði,
svo er útlit ekki hans
eldhúsklúta virði.
Einu sinni sem oftar var Bjarni
erlendis í innkaupaferðum. Frá
Zürich í Sviss sendi hann Rósberg
þessa vísu á korti:
Gleðinnar ég geng um dyr,
guð veit hvar ég lendi.
En ég hef verið fullur fyr
og farist það vel úr hendi.
„Bjarni var ekki líkur neinum
öðrum manni, sem ég hef kynnst á
lífsleiðinni,“ segir Rósberg. „Því
sendi ég honum þessa vísu sjötug-
um“:
Léttar stökur láttu hvína,
langt í burtu elli fældu.
Aldrei bastu bagga þína
böndum þeim, sem aðrir mældu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Græna byltingin og Bjarni frá Gröf
Í klípu
BANKASKÓ
LINN
BANK
!
BANK!
BANK
!
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„SJÁÐU BARA! BÚÐIN HINUM MEGIN VIÐ
GÖTUNA ER AÐ SELJA NÁKVÆMLEGA SAMA
SJÓNAUKA Á FIMMTÁNHUNDRUÐKALLI MINNA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sitja við hlið
veikra ástvina.
ÉG ER VARÐ-
HUNDUR
UHHHHHH…HVAÐ ERTU
AÐ VERJA? VOFF! VO
VOFF! VO
JÆJA, VERÐU
ÞAÐ BARA
ÁFRAM
HORFÐU Á ÞAÐ
ÞANNIG, HELGA.
HAUSTLOFTIÐ ER
FRÍSKANDI, ÞAÐ ER
FALLEGT FULLT TUNGL,
ÉG ER Á EYRNA-
SNEPLUNUM OG BRÁÐUM
KEMUR VETRARFRÍ!
ÞRÍR AF
FJÓRUM ER
EKKI SLÆMT!
Ferðamenn víða að úr veröld voru áSkólavörðuholti að morgni
laugardags. Án þess að Íslendingar
hafi veitt því neina sérstaka athygli
er Hallgrímskirkja einn fjölsóttasti
túristastaður landsins, en þangað
koma hundruð þúsunda gesta á
hverju ári. Það er skiljanlegt, kirkjan
er glæsileg bygging á alla lund og fal-
leg. Hljómburðurinn þar er ein-
stakur og greina mátti lotningu í svip
kirkjugesta þegar Björn Steinar Sól-
bergsson lék á orgelið. Tónar þess
fylltu út í hvert rými kirkjunnar og
hugurinn hófst í hæðir.
x x x
Á morgunrölti sínu gekk Víkverjium Þingholtsstræti, Bókhlöðu-
stíg og suður Laufásveginn. Skoðaði
falleg hús og rifjaði upp ýmsan fróð-
leik þeim viðvíkjandi. Varðliðinn sem
stóð við bandaríska sendiráðið kink-
aði kolli og brosti, ung móðir ýtti
barnavagni á undan sér og mekt-
armaður úr menningarlífi borg-
arinnar stikaði stórum og var á hrað-
ferð. Svo var tekið rölt um
Fríkirkjuveg. Iðnaðarmenn voru að
brasa við endurbætur á Thorsara-
húsinu og á bakka Tjarnarinnar
stóðu krakkar að gefa öndum brauð.
x x x
Tekinn var rúntur vestur í bæ ogfram á Ægisgarð. Danska varð-
skipið Triton lá við kaja og dátar
gættu að þyrlunni sem stóð á dekk-
inu. Á bryggjunni var slæðingur af
fólki sem beið eftir næstu lystisigl-
ingu með hvalaskoðunarbát. Það er
sjálfsagt skemmtilegt, þótt Víkverji
hafi aldrei skilið til fulls hvað gerir
hvalaskoðun að upplifun.
x x x
Annars er sumarfríið innan tíðarog fór því í þá ágætu búð Útivist
og sport, sem nú hefur verið flutt
suður á Smáratorg. Þar fást ljómandi
góð fjallaföt og Víkverji splæsti í um-
gang; buxur, vesti, brók og skó, eins
og skáldið orti forðum.
x x x
Rúnturinn endaði í bókasafninu íGrafarvogi. Þar var slæðingur af
fólki að ná í bækur, kannski krimma
eða léttmeltar skáldsögur sem þykja
góð sumarlesning. vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er
nafn þitt um alla jörðina. Þú breiðir
ljóma þinn yfir himininn.
(Sálm. 8:2)
DÖMUSKÓR
SKECHERS EMPIRE DÖMUSKÓR
MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI.
STÆRÐIR 36-41
VERÐ 13.995