Freyr - 01.08.2005, Blaðsíða 15
LÝRISK ÁSTARVÍSA
Um miðjan júní var það þegar moldin fór að anga
og margir tóku stúdentspróf og hresstu sig á tári
þá gekkst þú út í sólskinið með gleðibros á vanga
og geislar vorsins dönsuðu í þínu brúna hári.
Hver hreyfing þln var létt eins og léki blær f grasi,
sem liði bára á vogi I ferskum töfrum sínum
og aldrei vissi ég neina svo yndislega (fasi,
í engu fannst þér nokkur llk af jafnöldrunum þlnum.
Því hvar sem þú I sólskininu sumardaginn langan
fórst sviflétt eins og vængjuðu englabörnin forðum
varð tilveran sem þrungin af ilmi þeim og angan,
sem aðeins verður skynjað en tæpast lýst I orðum.
Við hittumst kvölds og morgna þá hafði ástin völdin,
það haustaði og snjóaði og loks var kominn vetur.
Og augnablikin liðu, ég sat undir þér á kvöldin
og engin hefur nokkru sinni launað mér það betur.
En það er stundum sviplegt þegar hrynja glæstar hallir,
nú hefur þú I bili tapað öllum sjönsum þlnum,
því draumarnir um þig reyndust einskisvirði allir
og önnur slær nú metin I reikningunum mínum.
Eftir Jónas Tryggvason
Já, það var mikill ólukkans skaði af þeirri skitu
sem skyndilega fékkstu og aldrei þornað getur
þvl þú varst besta kýrin mín með fjögurra prósent fitu
og I fimmtán mörkum enn þótt þú bærir snemma I vetur.
s
CH
buvelar.is
JÖTUNI\I h 5 EÍ A Rhf
Austurvegi 69 - Selfossi - Sími 4 800 400
VASKUR
• Kubota vatnskæld
• 26 hestafla vél
• Öflugt vökvakerfi
• Lyftigeta, beinn: 955 kg
• Lyftihæð: 2,7 m
»Snúningsradíus: 55 sm
• Heildarþyngd: 1665 kg
• Breidd: 89- 109 sm
• Dekk 7.00 -12 AS
Jötunn Vélar
■ Sterkur félagi -
FREYR 08 2005
15