Freyr - 01.08.2005, Blaðsíða 11
MOLAR
Dönsk skóla-
börn velja létt-
mjólk og und-
anrennu
Dönsk skólabörn drekka meiri
léttmjólk og undanrennu á
kostnað kakómjólkur, segir í
fréttabréfi mjólkuriðnaðarins,
Mejeriforeningen.
Samantekt á pöntunum á
skólamjólk fyrir næsta skólaár
sýnir að 56% skólabarna
drekka léttmjólk eða undan-
rennu. Miðað við síðasta skóla-
ár hafa pantanir á léttmjólk
aukist um 40% frá síðasta
skólaári og pantanir á undan-
rennu hafa einnig aukist. Pant-
anir á kakómjólk hafa hins veg-
ar dregist saman um 39% á
sama tíma.
Vinsældir lífrænnar mjólkur
aukast jafnframt, 37% af
skólamjólk er nú lífræn, en var
32,7% á síðasta skólaári.
Yfirlit þetta miðast við 81
þúsund pantanir en alls er búist
við að 130 þúsund nemendur
njóti þessa framtaks mjólkurbú-
anna um skólamjólk á nk.
skólaári.
Hvernig skyldi vera háttað
aðgangi íslenskra skólabarna
að mjólk í skólanum?
Fæstu salmon-
ellusýkingar í
Danmörku í
nær 20 ár
Salmonellusýkingum frá mat-
vælum fækkaði um nær helm-
ing í Danmörku milli áranna
2003 og 2004, samkvæmt
upplýsingum frá Danmarks Fö-
devareforsikring.
Hið bætta ástand stafar eink-
um af færri sýkingum í eggjum,
þar sem átak var gert til að
bæta stöðuna. Fjöldi sýkinga
frá svínakjöti dróst einnig sam-
an eftir fjölgun árið 2003, en
sýkingar frá kjúklinga- og
nautakjöti hafa verið fáar síð-
ustu ár.
Alls voru skráð 1.538 tilfelli
af salmonellusýkingum í Dan-
mörku árið 2004 sem er fækk-
un um 11 % frá árinu á undan.
Sérfræðingar telja að rekja
megi 19% af sýkingum [ fólki í
Danmörku til danskra matvæla
en 21% til innfluttra matvæla,
30% tilfella má svo skrifa á
ferðalög utanlands og ( 30%
tilfella er smitleiðin óþekkt.
Danskt svína-
kjöt vinsælt í
Póllandi
Útflutningur Dana á matvælum
til Póllands u.þ.b. tvöfaldaðist á
síðasta ári, 2004, að sögn dag-
blaðsins Börsen.
Það er einkum danskt svína-
kjöt sem er orðið vinsælt í Pól-
landi eftir að landið gekk í ESB
hinn 1. maí 2004. Útflutningur
svínakjöts jókst úr 200 milljón
dkr. 2003 í 480 milljón dkr.
2004 og nemur um helmingi af
útflutningi danskra búvara
þangað. Útflutningur á osti frá
Danmörku til Póllands þrefald-
aðist á sama tíma.
I ár er áætlað að útflutningur
búvara til Póllands nemi tölu-
vert meira en einum milljarði
dkr.
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Landsmarkaskrá 2004
Landsmarkaskrá 2004 er rúmar 500 bls. og bundin í vandað
band. í skránni eru öll búfjármörk í landinu, þar með öll skráð
frostmörk hrossa I fyrsta skipti. Þar eru, auk bæjar -og
staðarskrár, bæði nafna-og bæjarnúmeraskrár þar sem tilgreint
er hvaða litir eiga að vera á plötumerkjum.
Landsmarkaskráin fæst á skrifstofu Bændasamtaka
íslands í Bændahöllinni við Hagatorg, sími 563-0300,
tölvupóstur: sth@bondi.is. Verð kr. 6.900-
SÉRPANTANA-
ÞJÓNUSTAÁ
VARAHLUTUM [
VINNUVÉLAR OG
AMERÍSKAR
BIFREIÐAR
Gæðamálning á góðu verði!
íslandsmálning ehf.
Sætúni 4, 105 Reykjavík
Sími: 517-1500, Fax: 517-1501
Vefsíða: www.islandsmalning.is
Bændablaðið
Smáauglýsingar Bændablaðsins skila árangri.
Sími auglýsingadeildar er 563-0300.
Netfang: augl@bondi.is
FREYR 08 2005
11