Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.2005, Qupperneq 26

Freyr - 01.08.2005, Qupperneq 26
SAUÐFJÁRRÆKT Úr kjötmati sláturlamba úr fjárræktarfélögunum haustið 2004 Frá því kjötmati var breytt í landinu haustið 1998 hef- ur verið fjallað sérstaklega um niðurstöður þess þegar gerð er grein fyrir niður- stöðum úr uppgjöri fjár- ræktarfélaganna á hverju ári. Þessar niðurstöður eru allar sett- ar fram sem meðaltöl fyrir hina tvo þætti kjötmatsins og fyrir slíka útreikninga er flokkunum breytt í tölugildi á samfelldum skala. Hér skal rifjað upp hvern- ig það er gert. Fyrir fituflokkun fær fituflokkur 1 tölugildið 2, og fituflokkur 2 gildið 5. Mikið hefur aukist að sláturhúsin séu farin að nota fituflokk 3-, sem í þessum útreikninum fær tölu- gildið 7, fituflokkur 3 hefur tölugildið 8 og fituflokkur 3+ gildið 9, fituflokkur 4 hefur gildi 11 og fituflokkur 5 tölugildi 14. Matinu fyrir gerð er breytt þannig að E fær gildið 14, U fær gildi 11, tölugildið fyrir R flokk er 8, fyrir 0 flokk er það 5 og fyrir P flokkinn 2. Það sem nú er helsta breyting er, eins og segir hér að framan, að algengt er orðið að fituflokkur 3- sé notað- ur og sú breyting hefur í för með sér tölulega örlítið hag- stæðara fitumat en áður var. KJÖTMAT í EINSTÖKUM SÝSLUM Tafla 1 gefur yfirlit um flokkun eftir sýslum, auk þess sem gefið er yfirlit um meðaltölin fyrir ein- stök ár, allt frá því að hið nýja kjötmat var tekið upp, þannig að lesendur geti þar gert sér grein fyrir þeim gríðarlega miklu breyt- ingum sem orðið hafa i þessum þáttum á örfáum árum. Þarna blasir einnig við hin feikilega mikla aukning sem er í skýrslu- Tafla 1. Meðaltal úr kjötmati í fjárræktarfélögunum haustið 2004 ( einstökum sýslum Sýsla Fjöldi Gerð Fita Hlutfall Kjósarsýsla 1.610 7,28 7,13 102 Borgarfjarðarsýsla 15.449 7,46 6,98 107 Mýrasýsla 14.982 7,55 7,03 107 Snæfellsnes 15.347 7,89 7,30 108 Dalasýsla 29.466 7,61 7,02 108 Barðastrandarsýsla 13.939 7,26 6,16 118 Vestur-ísafjarðarsýsla 6.914 7,61 6,55 116 Norður-ísafjarðarsýsla 4.981 7,57 7,00 108 Strandasýsla 26.220 8,20 6,71 122 V-Húnavatnssýsla 30.836 8,18 6,93 118 A-Húnavatnssýsla 31.380 7,03 5,68 124 Skagafjörður 37.926 7,66 6,73 114 Eyjafjörður 17.307 7,83 6,73 116 S-Þingeyjarsýsla 30.698 8,00 6,17 130 N-Þingeyjarsýsla 29.368 8,30 6,60 126 N-Múlasýsla 42.032 7,34 6,39 115 S-Múlasýsla 21.656 7,67 6,88 111 A-Skaftafellssýsla 17.535 7,84 6,77 116 V-Skaftafellssýsla 25.856 7,91 7,17 110 Rangárvallasýsla 21.105 7,21 7,06 102 Árnessýsla 17.087 7,97 7,52 106 Landið allt 2004 451.694 7,72 6,71 115 2003 356.210 7,80 6,98 112 2002 308.457 7,43 6,78 110 2001 298.921 7,29 6,64 110 2000 273.893 7,35 6,90 107 1999 254.701 6,75 6,20 109 1998 225.845 6,52 6,16 106 haldinu á þessu tímabili sem þýð- ir að ekki er verið að bera saman sambærilega hópa að öllu leyti á milli ára. Þeir sem fylgst hafa með þróun síðustu ára á einstök- um búum þekkja að breytingarn- ar hafa í raun verið enn stórfelld- ari en taflan sýnir. Rétt er að benda á að þó að fjölgun falla með kjötmatsupplýsingar sé feikilega mikil frá árinu 2003 til 2004 er hún hlutfallslega heldur minni en fjölgun á skýrslufærðu fé á milli ára. Þetta skýrist af því að afurðastig er nokkru minna á þeim búum sem eru að hefja skýrsluhald en þeim, sem þar voru áður, og einnig hinu að dæmi eru um að einhverjir þeirra sem voru að byrja skýrsluhald skili ekki upplýsingunum um kjötmatið í uppgjörið. IEftir Jón Viðar Jónmundsson, Bændasamtökum íslands Taflan sýnir að meðaltal úr matinu fyrir gerð er eilítið lægra 2004 en 2003 eða 7,72 saman- borið við 7,80. Fitumatið tekur um leið nokkrum jákvæðum breytingum eða úr 6,98 í 6,71 (lægra meðaltal er minni fita). Þannig hefur hlutfallið á milli matsþáttanna breyst úr 1,12 í 1,15, en eins og margir lesend- ur þekkja er þetta hlutfall notað sem ákveðinn mælikvarði á heildargæði. Það er vel þekkt að báðir þessir matsþættir eru verulega háðir vænleika lamb- anna, þ.e. með auknum fall- þunga batnar mat að öðru jöfnu fyrir gerð og fita eykst og fituflokkur hækkar. Eins og fram kemur í yfirlitsgreininni um uppgjör fjárræktarfélag- anna var fallþungi lamba ívfð lægri víða um land 2004 en 2003, þannig að, að teknu tilliti til fallþungabreytinga, má greina jákvæða þróun og ef til viðbótar er horft til hinnar miklu aukningar í skýrsluhald- inu og áhrifa hennar á tölurnar er alveg Ijóst að kjötmatið 2004 var hagstæðara en nokkru sinni hefur verið. FITUMAT í EINSTÖKUM SÝSLUM Fitumatið er verulega hagstæð- ara árið 2004 en árið áður. Eins og áður er bent á koma þar fram einhver smávægileg áhrif þess að fituflokkur 3- er nú not- aður miklu víðar en áður. Tafla 1 sýnir að í einstökum sýslum er langhagstæðasta fitumatið í Austur-Húnavatnssýslu þar sem meðaltalið er 5,68. Þetta er um- talsvert hagstæðara fitumat en árið áður en þá var það einnig hagstæðara þar en á öðrum svæðum. Nú á ekki að vænta mismunar í fitumati á milli slát- urhúsa, þó að, eins og bent var á í hliðstæðri grein á síðasta ári, FREYR 08 2005

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.