Fréttablaðið - 20.12.2017, Síða 12

Fréttablaðið - 20.12.2017, Síða 12
Vitamix TNC er stórkostlegur. Mylur alla ávexti, grænmeti, klaka og nánast hvað sem er. Býr til heita súpu og ís. Til í þremur litum, svörtum, hvítum og rauðum KKælitækni ehf. Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Besti vinurinn í eldhúsinu Jólatilboðsverð kr. 79.527,- Alþingi „Hver er raunveruleg staða kvenna í samfélagi sem sættir sig við jafn víðfeðmt kyn- bundið ofbeldi eins og kemur fram í þessum fjölmörgu frá- sögnum? Hversu margar konur hafa jafnvel hrökklast frá vinnu- stöðum sínum, verið haldið niðri og sagt að þegja,“ spurði Albert- ína Friðbjörg Elíasdóttir, upp- hafsmaður sérstakrar umræðu á þingi um kvenfrelsisbyltinguna #metoo, sem tröllriðið hefur hinum vestræna heimi undan- farnar vikur. Konur í stjórnmálum stigu fram fyrir um mánuði og sögðu frá kynbundnu ofbeldi í sinn garð. Síðustu þrjár vikur hafa ell- efu hópar til viðbótar stigið fram með svipaðar sögur. Samkvæmt Jafnréttisstofu hafa 4.609 konur skrifað undir yfirlýsingar þar sem kynbundnu ofbeldi og áreitni er mótmælt. Að auki hafa fylgt þess- um yfirlýsingum 616 frásagnir af slíku ofbeldi. Fleiri hópar eru að undirbúa sams konar aðgerðir. Til andsvara var dómsmálaráð- herra, Sigríður Á. Andersen. Sagði hún umræðuna afar þarfa og að ríkisstjórnin ætli að vinna að fjölda mála til að efla kvenfrelsi svo kynbundið ofbeldi myndi minnka. Þorsteinn Sæmundsson, þing- maður Miðflokksins, segir hafa verið hrollvekjandi að fylgjast með og að sjá koma fram í dags- ljósið svo margar óhugnanlegar sögur kvenna og ofbeldi í þeirra garð. „Það hefur verið hrollvekju líkast að heyra frásagnir kvenna og fá vitneskju um kynferðislegt ofbeldi gagnvart svo mörgum konum að það er nánast óhugs- andi. Ég dái hugrekki þeirra og hreinskilni,“ sagði Þorsteinn. „Þær eru lýsingar á mannfyrir- litningu og ofbeldishneigð og birta mynd af ástandi sem er óverjandi og öllum karlmönnum til skammar.“ Andrés Ingi Jónsson var annar þingmaður VG sem tók þátt í umræðunum og sagði þingið verða að taka sig á. „Nú stendur það upp á okkur að breyta sam- félaginu til hins betra,“ sagði Andrés Ingi. „Við skulum fagna því að #metoo hafi kveikt umræð- una og gert okkur öll að femín- istum. Nú skulum við öll halda áfram að vera femínistar og skila af okkur raunverulega bættu sam- félagi. sveinn@frettabladid.is Þingheimur á einu máli um að karlar þurfi að standa upp og axla ábyrgðina Umræða um kvenfrelsisbyltinguna #metoo, í skugga valdsins, fór fram á þingi í gær. Þingheimur sammæltist allur um að karl- menn þyrftu að axla ábyrgð. Þingmaður Miðflokksins líkti sögum kvenna við hrollvekju og dáðist að hugrekki þeirra. „Við þurfum á því að halda að karlar standi upp og láti vita að þetta sé ekki í lagi, þetta eigi ekki að líðast, þetta gangi ekki lengur,“ sagði Albertína Friðbjörg Elíasdóttir í upphafsræðu sinni á þingi. FréttAblAðið/Ernir „til mín er beint nokkrum spurningum sem ég ætla að reyna að svara á þeim stutta tíma sem mér gefst til þess. Hér er til að mynda spurt hvort umfang vandans hafi verið metið sérstaklega í íslensku samfélagi. ég get svarað því fljótt: nei, það hefur ekki verið metið heildstætt. ég er ekki viss um að hægt sé að meta þennan vanda með fullri vissu,“ sagði Sigríður Andersen. Alþingi Guðmundur Andri Thors- son, þingmaður Samfylkingar, segir framkomu karla í garð kvenna geta orðið karlþjóðinni áþján. „Við erum feður, afar, bræður, synir, frændur, vinir og samborgarar kvenna, en ekki herrar,“ sagði Guðmundur Andri í ræðu sinni. Hann beindi orðum sínum að karlmönnum um að taka af skarið. Frásögur kvenna og umræðan sem fylgir lýsi upp skúmaskot þar sem skálkaskjól hrynji. „Ofbeldi karla á hendur konum sem lýsir sér með alls kyns hætti en eitrar líf allra sem í kringum það eru. Birtingar- myndirnar eru með ýmsu móti en allar eiga þessar frásagnir það sammerkt að þar er einstaklingur í valdastöðu, karlkyns, sem ræðst að valdaminni einstaklingi, konu, með orðum eða athöfnum,“ bætti Guðmundur Andri Thorsson við. Helgi Hrafn Gunnarsson tók í sama streng og sagði ábyrgðina vera karla og þeir þurfi að axla þessa ábyrgð.  „Magnið af þeim tilvikum sem henda konur er svo algerlega sturlað að það er ekkert minna en eitthvað djúpt, eitthvað sjúkt, í menningu okkar sem ég held að sé mjög rótgróið, mjög gamalt,“ sagði Helgi Hrafn. – sa Eru samborgarar kvenna en ekki herrar Við lestur frásagna kvenna í borgarleikhúsinu 10. desember. FréttAblAðið/StEFán Árið 2017 sögulegt Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, segir árið sem nú er senn á enda fara í annála sem árið þar sem konur rufu þögnina um kynferðislegt ofbeldi, áreitni og valdbeitingu. Þegar konur stigu fram lyftu þær grettistaki og gáfu tóninn á þann hátt að við getum ekki annað en haldið áfram þeirri vegferð að bættri menningu og meiri virðingu í samskiptum kynjanna. Einnig sagði hún ofbeldi vera ofbeldi, sama hvernig á það er litið. „Í fyrsta lagi er það tómt mál að tala um að við Íslendingar búum í vel- ferðarsamfélagi þegar það er hluti af veruleika kvenna og til þessa hluti af viðurkenndum veruleika kvenna að upplifa ofbeldi í leik og starfi. Auðvitað er kynbundið ofbeldi ekkert annað en ofbeldi. Það er engin ástæða til að setja annan merkimiða á það, einhvern merkimiða sem ætlað er að draga úr alvarleikanum og afleiðingunum, ætlað að hjúpa gjörninginn einhverju glensi, einhverri stemningu. Það er bara nóg komið,“ sagði Hanna Katrín. Kallar eftir aðgerðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingkona VG, sagði viðbrögð þurfa að vera sterkari við þessari byltingu og minntist hún sérstaklega á stjórnarmenn leikhúsanna og Ríkisútvarpsins í ræðu sinni. „Ég auglýsi eftir raunverulegum og skýrum viðbrögðum, bæði einkaaðila og opinberra stofnana, við þeim frásögnum sem komið hafa fram. Það er ekki nóg að segjast ætla að vera með viðbrögð og skoða og rýna og kanna og kynna, heldur þarf að koma fram með viðbrögð með áþreifanlegum hætti. Þar þarf ríkisstjórn Íslands að vera í fararbroddi með skýr skilaboð og enn skýrari aðgerðir á öllum sviðum,“ sagði Rósa Björk. 616 Frásagnir hafa birst opinber- lega af ofbeldi karla í garð kvenna. 4.609 Konur hafa skrifað undir yfirlýsingar og mótmælt kyn- bundnu ofbeldi. 2 0 . d e s e m b e r 2 0 1 7 m i Ð V i K U d A g U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A Ð i Ð 2 0 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 8 E -1 9 7 0 1 E 8 E -1 8 3 4 1 E 8 E -1 6 F 8 1 E 8 E -1 5 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 1 9 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.