Fréttablaðið - 20.12.2017, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 20.12.2017, Blaðsíða 17
Nýlega er lokið formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu, sem er svæðissamstarf Norðurlandanna fimm, Eystra- saltslandanna, Rússlands, Póllands og Þýskalands, auk Evrópusam- bandsins. Eins og kunnugt er var ráðinu komið á fót í því skyni að treysta lýðræðisþróun, öryggi og velferð í ríkjunum nærri Eystra- saltinu, í kjölfar frelsisbylgjunnar í Evrópu, þegar Sovétríkin hrundu. Eystrasaltslöndin fengu þá loks endurnýjað sjálfstæði og kom Ísland þar myndarlega að verki. Formennskuár Íslands var merkilegt m.a. fyrir þær sakir að það markaði 25 ára afmæli sam- starfsins. Ég gegndi stöðu for- manns stjórnarnefndar ráðsins á þessu afmælisári fyrir Íslands hönd. Mörgu miðaði vel fram og lagði Ísland höfuðáherslu á jafn- rétti, lýðræði og réttindi og stöðu barna. Formennskuárinu lauk með fundi utanríkisráðherra aðildar- landanna í Hörpu um mitt þetta ár. Þeim fyrsta í rúm þrjú ár. Þar var Íslandi þakkað gott starf, m.a. á vettvangi barnaverndar. Börn í öndvegi Eitt af því sem hefur borið hæst í samstarfi Eystrasaltsríkjanna eru einmitt málefni sem lúta að því að treysta öryggi barna. Hér er um fjölþætt úrlausnarefni að ræða sem spannar allt frá mansali og vernd barna gegn hvers kyns ofbeldi og illri meðferð, þ.m.t. kynferðisof- beldi. Snar þáttur í þessu samstarfi hefur verið að stuðla að rannsókn- um og skapa nýja þekkingu, miðla þessari þekkingu sem og dýrmætri reynslu á meðal aðildarríkjanna, m.a. á sviði fræðslu, þjálfunar og annarrar tæknilegrar aðstoðar til að tryggja öryggi og bæta hag barna í viðkvæmri stöðu. Fljótlega eftir að ég hóf störf á vettvangi Eystrasaltsráðsins fyrir nokkrum árum, varð ég þess áskynja að á þessu sviði sam- starfsins hafði Ísland markað sér sterka stöðu sem tekið var eftir. Hafið er yfir allan vafa að á sviði barnaverndar hafði Ísland verið leiðandi. Fulltrúi okkar Íslendinga, Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, sem á sínum tíma var kjörinn fyrsti formaður þessa samstarfs í ráðinu árið 2002, hefur raunverulega gegnt þar for- ystuhlutverki á þessu málasviði í áraraðir. Það eru engar ýkjur þegar fullyrt er að áhrif Íslands hafi haft afgerandi áhrif á þróun barnaverndarmála í öllum aðildar- ríkjum Eystrasaltsráðsins, og eru þá Norðurlönd með talin. Barnahús að íslenskri fyrirmynd hafa risið á öllum Norðurlöndum og nú á formennskutíma Íslands er það sérstaklega gleðilegt, að þau hafa tekið til starfa í Litháen, Eist- landi og nú síðast Lettlandi. Barna- húsin hafa að markmiði að tryggja barnvinsamlega rannsókn ofbeldis Réttindi barna í alþjóðasamstarfi Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra gegn börnum og viðeigandi hjálp. Þau eru ekki einungis starfsemi sem fer fram innan fjögurra veggja, heldur byggja á víðtæku samstarfi lykilstofnana sem hafa hlutverki að gegna á sviði réttarfars, heilbrigðis- þjónustu og barnaverndar. Þannig hefur hróður Barnaverndarstofu og verk hennar borist víða. Spámaðurinn og föðurlandið Í þessu ljósi er undarlegt að fylgj- ast með þeirri atlögu sem nýlega hefur verið gerð að mannorði og störfum Braga Guðbrandssonar í sumum fjölmiðlum. Það er aug- ljóst að hún tengist því að hann hefur verið trúr því hlutverki að standa vörð um rétt þeirra barna sem eiga allt sitt undir því að eftir- lit með réttindum þeirra sé öflugt. Og spornað við þegar út af hefur borið. Það getur vel verið að hann hafi þurft að stíga á einhverjar tær í kerfinu vegna þessa. Líklega er það óhjákvæmilegt. Það er hans skylda barnanna vegna. Upp úr stendur þó það þrekvirki sem hann hefur unnið hér heima og á alþjóðavettvangi á þessu sviði í nánu samstarfi við starfsfólkið á öflugri Barnaverndarstofu. Í alþjóðasamstarfi eigum við Íslendingar stundum öfluga tals- menn, sem gerir það að verkum að fámenni Íslands í hinum stóra heimi verður algjört aukaatriði. Þá er einfaldlega hlustað á kröftuga rödd Íslands, vegna þess að við höfum sitthvað handfast og gagn- legt til málanna að leggja. Þannig er það í barnavernd í norðurhluta Evrópu. Yfir því eigum við að gleðjast og þakka þeim sem hönd leggja á plóg. Það eigum við ekki síst að gera barnanna okkar vegna. Þau eiga það skilið. Þau eru fram- tíðin. Það eru engar ýkjur þegar fullyrt er að áhrif Íslands hafi haft afgerandi áhrif á þróun barnaverndarmála í öllum aðildarríkjum Eystrasalts- ráðsins, og eru þá Norður- lönd með talin. Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF TÖLVUM OG TÖLVUBÚNAÐI SNJALLAR JÓLAGJAFIR 20. desem ber 2017 • B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl XBOX ONE X Nýjasta leikjatölvan frá Microsoft 79.990 PS4 SLIM FIFA18 1TB + FIFA 18 + 2.stk stýripinnar 52.990 PS4 SLIM+LEIKUR 1TB + Battlefront 2 + 1.stk stýripinni 48.990 SNES MINI Með 20 innbyggðum leikjum 23.990 Allt að 30% afslátt ur af ö llum tölvule ikjum 30% AFSLÁT TUR ALLA DAGA TIL JÓLA OPIÐ10-19 SWITCH Með Super Mario Odyssey leiknum 56.990 S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 17M i ð V i k u D A G u R 2 0 . D e S e M B e R 2 0 1 7 2 0 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 6 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 8 E -0 F 9 0 1 E 8 E -0 E 5 4 1 E 8 E -0 D 1 8 1 E 8 E -0 B D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 1 9 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.