Fréttablaðið - 20.12.2017, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 20.12.2017, Blaðsíða 26
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Fjarðarkaup eiga sér langa sögu í Hafnarfirði. Hana má rekja til ársins 1973 en Fjarðar- kaup hafa verið á núverandi stað við Hólshraun frá árinu 1982. Þar hefur verslunin vaxið og dafnað. Viðskiptavinir Fjarðarkaupa koma af öllu höfuðborgarsvæðinu enda er aðkoma að versluninni góð og næg bílastæði. Hafnfirðingar segja sjálfir að Fjarðarkaup séu eins og félagsmiðstöð, þar rekst maður alltaf á einhvern kunnugan. Gísli Sigurbergsson, einn eigenda Fjarðarkaupa, segir að fyrirtækið leggi mikinn metnað í kjötborðið alla daga og sérstaklega fyrir hátíðir. „FK-hamborgarhrygg- urinn er okkar stolt. Kjötið er sér- valið, reykt og saltað fyrir Fjarðar- kaup. FK-hamborgarhryggurinn hefur verið mjög vinsæll undan- farin ár og mest seldi jólamaturinn hjá okkur,“ segir Gísli. „Reyndar er svínakjöt vinsæll matur á jólunum en í öðru sæti hjá okkur er heill svínabógur, síðan lambahryggur eða -læri og loks purusteikin,“ segir hann enn fremur. „Svína- kjöt er ódýr matur og það hefur verið mikil aukning í sölu þess hjá okkur undanfarið,“ bætir Gísli við en Fjarðarkaup er líka með mikið úrval af hangilærum og fram- pörtum, nautasteikum og alls kyns villibráð. „Við leggjum ríka áherslu á metnaðarfullt kjötborð. Tveir kjötiðnaðarmenn starfa hjá okkur við að þjóna viðskiptavininum eftir hans þörfum. Hægt er að panta alls kyns útfærslur af fylltum lambalærum eða lambahryggjum. Við erum með veglegt kjötborð og persónulega þjónustu. Allir geta fundið rétta jólamatinn enda er kjötborðið okkar sérstaða og starfsfólkið sinnir öllum óskum viðskiptavinarins.“ Það eru ekki margar verslanir sem bjóða upp á jafn fjölbreytt úrval í kjötborði og Fjarðarkaup. Viðskiptavinurinn velur kjötið sjálfur og því er pakkað á staðnum. Þannig veit fólk alltaf að hverju það gengur í Fjarðarkaupum. Þótt borðið sé stútfullt af jólakræs- ingum þessa dagana þá er einnig fiskborð í Fjarðarkaupum þar sem boðið er upp á nýjan fisk og fiskrétti. Gísli segir að sömuleiðis sé hægt að fá skötu en hún er í loft- tæmdum umbúðum til þæginda fyrir viðskiptavininn. Í Fjarðarkaupum er mikið vöruúrval og viðskiptavinir geta fengið allt sem þá vantar fyrir jólin. „Við erum með fjölbreytt meðlæti með jólamatnum, hvort sem það er með FK-hamborgarhryggnum eða öðrum réttum,“ segir Gísli en þess má geta að í Fjarðarkaupum er heimilisdeild þar sem er úrval af fallegri gjafavöru. Þá er hægt að grípa jólanáttfötin eða -nærfötin með í verslunarferðinni í Fjarðar- kaup. Verslunin Fjarðarkaup verður opin til kl. 19 í dag og á morgun en 22 á föstudag og laugardag. Hægt er að skoða afgreiðslutíma á heima- síðunni www.fjardarkaup.is Mikið vöruúrval einkennir kjötborðið í Fjarðarkaupum. Kjötiðnaðarmenn geta útbúið kjötið eins og viðskiptavinurinn vill hafa það. FK-hamborgarhryggurinn er vinsælasti jólamaturinn í Fjarðarkaupum. MYNDIR/EYÞÓR Vinsælt er að panta fylltan lambahrygg eða -læri fyrir jólin í Fjarðarkaupum. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . D E S E M B E R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R 2 0 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 6 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 8 E -2 3 5 0 1 E 8 E -2 2 1 4 1 E 8 E -2 0 D 8 1 E 8 E -1 F 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 1 9 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.