Fréttablaðið - 20.12.2017, Side 26
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is,
s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage,
johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Fjarðarkaup eiga sér langa sögu í Hafnarfirði. Hana má rekja til ársins 1973 en Fjarðar-
kaup hafa verið á núverandi stað
við Hólshraun frá árinu 1982. Þar
hefur verslunin vaxið og dafnað.
Viðskiptavinir Fjarðarkaupa koma
af öllu höfuðborgarsvæðinu enda
er aðkoma að versluninni góð og
næg bílastæði. Hafnfirðingar segja
sjálfir að Fjarðarkaup séu eins og
félagsmiðstöð, þar rekst maður
alltaf á einhvern kunnugan.
Gísli Sigurbergsson, einn
eigenda Fjarðarkaupa, segir að
fyrirtækið leggi mikinn metnað í
kjötborðið alla daga og sérstaklega
fyrir hátíðir. „FK-hamborgarhrygg-
urinn er okkar stolt. Kjötið er sér-
valið, reykt og saltað fyrir Fjarðar-
kaup. FK-hamborgarhryggurinn
hefur verið mjög vinsæll undan-
farin ár og mest seldi jólamaturinn
hjá okkur,“ segir Gísli. „Reyndar er
svínakjöt vinsæll matur á jólunum
en í öðru sæti hjá okkur er heill
svínabógur, síðan lambahryggur
eða -læri og loks purusteikin,“
segir hann enn fremur. „Svína-
kjöt er ódýr matur og það hefur
verið mikil aukning í sölu þess hjá
okkur undanfarið,“ bætir Gísli við
en Fjarðarkaup er líka með mikið
úrval af hangilærum og fram-
pörtum, nautasteikum og alls kyns
villibráð.
„Við leggjum ríka áherslu á
metnaðarfullt kjötborð. Tveir
kjötiðnaðarmenn starfa hjá okkur
við að þjóna viðskiptavininum
eftir hans þörfum. Hægt er að
panta alls kyns útfærslur af fylltum
lambalærum eða lambahryggjum.
Við erum með veglegt kjötborð
og persónulega þjónustu. Allir
geta fundið rétta jólamatinn enda
er kjötborðið okkar sérstaða og
starfsfólkið sinnir öllum óskum
viðskiptavinarins.“
Það eru ekki margar verslanir
sem bjóða upp á jafn fjölbreytt
úrval í kjötborði og Fjarðarkaup.
Viðskiptavinurinn velur kjötið
sjálfur og því er pakkað á staðnum.
Þannig veit fólk alltaf að hverju
það gengur í Fjarðarkaupum. Þótt
borðið sé stútfullt af jólakræs-
ingum þessa dagana þá er einnig
fiskborð í Fjarðarkaupum þar
sem boðið er upp á nýjan fisk og
fiskrétti. Gísli segir að sömuleiðis
sé hægt að fá skötu en hún er í loft-
tæmdum umbúðum til þæginda
fyrir viðskiptavininn.
Í Fjarðarkaupum er mikið
vöruúrval og viðskiptavinir geta
fengið allt sem þá vantar fyrir jólin.
„Við erum með fjölbreytt meðlæti
með jólamatnum, hvort sem það
er með FK-hamborgarhryggnum
eða öðrum réttum,“ segir Gísli en
þess má geta að í Fjarðarkaupum
er heimilisdeild þar sem er úrval
af fallegri gjafavöru. Þá er hægt að
grípa jólanáttfötin eða -nærfötin
með í verslunarferðinni í Fjarðar-
kaup.
Verslunin Fjarðarkaup verður opin
til kl. 19 í dag og á morgun en 22
á föstudag og laugardag. Hægt er
að skoða afgreiðslutíma á heima-
síðunni www.fjardarkaup.is
Mikið vöruúrval einkennir kjötborðið í Fjarðarkaupum.
Kjötiðnaðarmenn geta útbúið kjötið eins og viðskiptavinurinn vill hafa það.
FK-hamborgarhryggurinn er vinsælasti jólamaturinn í Fjarðarkaupum. MYNDIR/EYÞÓR
Vinsælt er að panta fylltan lambahrygg eða -læri fyrir jólin í Fjarðarkaupum.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . D E S E M B E R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
2
0
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
E
-2
3
5
0
1
E
8
E
-2
2
1
4
1
E
8
E
-2
0
D
8
1
E
8
E
-1
F
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
1
9
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K