Fréttablaðið - 20.12.2017, Page 17
Nýlega er lokið formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu, sem er svæðissamstarf
Norðurlandanna fimm, Eystra-
saltslandanna, Rússlands, Póllands
og Þýskalands, auk Evrópusam-
bandsins. Eins og kunnugt er var
ráðinu komið á fót í því skyni að
treysta lýðræðisþróun, öryggi og
velferð í ríkjunum nærri Eystra-
saltinu, í kjölfar frelsisbylgjunnar
í Evrópu, þegar Sovétríkin hrundu.
Eystrasaltslöndin fengu þá loks
endurnýjað sjálfstæði og kom
Ísland þar myndarlega að verki.
Formennskuár Íslands var
merkilegt m.a. fyrir þær sakir að
það markaði 25 ára afmæli sam-
starfsins. Ég gegndi stöðu for-
manns stjórnarnefndar ráðsins
á þessu afmælisári fyrir Íslands
hönd. Mörgu miðaði vel fram og
lagði Ísland höfuðáherslu á jafn-
rétti, lýðræði og réttindi og stöðu
barna. Formennskuárinu lauk með
fundi utanríkisráðherra aðildar-
landanna í Hörpu um mitt þetta
ár. Þeim fyrsta í rúm þrjú ár. Þar
var Íslandi þakkað gott starf, m.a.
á vettvangi barnaverndar.
Börn í öndvegi
Eitt af því sem hefur borið hæst í
samstarfi Eystrasaltsríkjanna eru
einmitt málefni sem lúta að því
að treysta öryggi barna. Hér er um
fjölþætt úrlausnarefni að ræða sem
spannar allt frá mansali og vernd
barna gegn hvers kyns ofbeldi og
illri meðferð, þ.m.t. kynferðisof-
beldi. Snar þáttur í þessu samstarfi
hefur verið að stuðla að rannsókn-
um og skapa nýja þekkingu, miðla
þessari þekkingu sem og dýrmætri
reynslu á meðal aðildarríkjanna,
m.a. á sviði fræðslu, þjálfunar og
annarrar tæknilegrar aðstoðar
til að tryggja öryggi og bæta hag
barna í viðkvæmri stöðu.
Fljótlega eftir að ég hóf störf
á vettvangi Eystrasaltsráðsins
fyrir nokkrum árum, varð ég þess
áskynja að á þessu sviði sam-
starfsins hafði Ísland markað sér
sterka stöðu sem tekið var eftir.
Hafið er yfir allan vafa að á sviði
barnaverndar hafði Ísland verið
leiðandi. Fulltrúi okkar Íslendinga,
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, sem á sínum
tíma var kjörinn fyrsti formaður
þessa samstarfs í ráðinu árið 2002,
hefur raunverulega gegnt þar for-
ystuhlutverki á þessu málasviði
í áraraðir. Það eru engar ýkjur
þegar fullyrt er að áhrif Íslands
hafi haft afgerandi áhrif á þróun
barnaverndarmála í öllum aðildar-
ríkjum Eystrasaltsráðsins, og eru
þá Norðurlönd með talin.
Barnahús að íslenskri fyrirmynd
hafa risið á öllum Norðurlöndum
og nú á formennskutíma Íslands
er það sérstaklega gleðilegt, að þau
hafa tekið til starfa í Litháen, Eist-
landi og nú síðast Lettlandi. Barna-
húsin hafa að markmiði að tryggja
barnvinsamlega rannsókn ofbeldis
Réttindi barna í alþjóðasamstarfi
Guðmundur
Árni
Stefánsson
sendiherra
gegn börnum og viðeigandi hjálp.
Þau eru ekki einungis starfsemi
sem fer fram innan fjögurra veggja,
heldur byggja á víðtæku samstarfi
lykilstofnana sem hafa hlutverki að
gegna á sviði réttarfars, heilbrigðis-
þjónustu og barnaverndar. Þannig
hefur hróður Barnaverndarstofu og
verk hennar borist víða.
Spámaðurinn og föðurlandið
Í þessu ljósi er undarlegt að fylgj-
ast með þeirri atlögu sem nýlega
hefur verið gerð að mannorði og
störfum Braga Guðbrandssonar í
sumum fjölmiðlum. Það er aug-
ljóst að hún tengist því að hann
hefur verið trúr því hlutverki að
standa vörð um rétt þeirra barna
sem eiga allt sitt undir því að eftir-
lit með réttindum þeirra sé öflugt.
Og spornað við þegar út af hefur
borið. Það getur vel verið að hann
hafi þurft að stíga á einhverjar tær
í kerfinu vegna þessa. Líklega er
það óhjákvæmilegt. Það er hans
skylda barnanna vegna. Upp úr
stendur þó það þrekvirki sem
hann hefur unnið hér heima og
á alþjóðavettvangi á þessu sviði í
nánu samstarfi við starfsfólkið á
öflugri Barnaverndarstofu.
Í alþjóðasamstarfi eigum við
Íslendingar stundum öfluga tals-
menn, sem gerir það að verkum
að fámenni Íslands í hinum stóra
heimi verður algjört aukaatriði. Þá
er einfaldlega hlustað á kröftuga
rödd Íslands, vegna þess að við
höfum sitthvað handfast og gagn-
legt til málanna að leggja. Þannig
er það í barnavernd í norðurhluta
Evrópu. Yfir því eigum við að
gleðjast og þakka þeim sem hönd
leggja á plóg. Það eigum við ekki
síst að gera barnanna okkar vegna.
Þau eiga það skilið. Þau eru fram-
tíðin.
Það eru engar ýkjur þegar
fullyrt er að áhrif Íslands hafi
haft afgerandi áhrif á þróun
barnaverndarmála í öllum
aðildarríkjum Eystrasalts-
ráðsins, og eru þá Norður-
lönd með talin.
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF TÖLVUM OG TÖLVUBÚNAÐI
SNJALLAR
JÓLAGJAFIR
20. desem
ber 2017 • B
irt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
XBOX ONE X
Nýjasta leikjatölvan frá Microsoft
79.990
PS4 SLIM FIFA18
1TB + FIFA 18 + 2.stk stýripinnar
52.990
PS4 SLIM+LEIKUR
1TB + Battlefront 2 + 1.stk stýripinni
48.990
SNES MINI
Með 20 innbyggðum leikjum
23.990
Allt að
30%
afslátt
ur af ö
llum
tölvule
ikjum
30%
AFSLÁT
TUR
ALLA DAGA TIL JÓLA
OPIÐ10-19
SWITCH
Með Super Mario Odyssey leiknum
56.990
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 17M i ð V i k u D A G u R 2 0 . D e S e M B e R 2 0 1 7
2
0
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
8
E
-0
F
9
0
1
E
8
E
-0
E
5
4
1
E
8
E
-0
D
1
8
1
E
8
E
-0
B
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
9
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K