Skátablaðið Faxi - 01.03.1968, Side 2
I. tölublað 2
Rxtstj.:
Marinó Sigursteinsson
Asbjörn Eydal
árgangur 1968
Til aðstoðar voru:
Guðbgörg Sigursteinsdóttir
Eygló Guðmundsdóttir
Inga Jóhannsdóttir
Kristinn ólafsson
Georg Þo Kristjánsson
&- i Jö ■ Kazuð-c.o'c
^Þapn_24. februar 1968 kl. 15 var haldið hóf í hinum nýju húsakinnum
félagsins. Tilefnið var 30 ára afmæli Faxa. Ætluðu "Gtlagar og Jónae
B. Jónsson skátahöfðingi að koma, en veðurguðirnir urðu þeim ekki
hliðhollir í þetta skipti. Þarna voru samankomnir margir skátar fafnt
eldri sem yngri. ^ Halldór Ingi Guðmundsson felagsforingi setti hófið.
Síðan talaði Jón Runólfsson fyrir hönd eldri skáta en hann var einn
af^stofnendum^Faxa. Þá afhenti séra Jóhann Hlíðar Skátafélaginu gjöf
frá "Útlögum í Reykjavík og sæmdi einnig nokkra skátafélaga heiðursmerki
Ehl.S. Heiðursmerkin veitt fyrir 5 ára starf og sérstakan dugnað í
félaginu. Hvítu liljuna (hvíta smárann) hlutu að þessu sinni:
Bjarni Sighvatsson, deildarforingi.
Sigurður Þ. Jónsson, sveitarforingi.
Jón Ögmundsson, aðstoðar félagsforingi.
Bergur ölafsson,' gjaldkeri Faxa.
Hvíti' smárinn: Svana Ingólfsdóttir, deildarforingi
Bláá liljan: Elías Baldvinsson.
Halldór Svavarsson.
Þá var Kristni Sigurðssyni veitt græna liljan, en hún er veitt þeim,
sem hefur unnið Skátafélaginu mikið gagn.
Þá var Jóni Ögmundssjmi veittur silfurkrossinn fyrir afrek, sem sagt
er frá annarstaðar í bíaðinu. Þá veitti Jón Ögmundsson Tómasi Stefánss.
og^Róbert Sigurmundssyni og Marinó Sigursteinssyni viíprkenningu fyrir
frábært starf við innréttingu skátaheimilisins.
Bj. Jóh.
% )