Morgunblaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 4
Sektir fyrir notkun farsíma undir stýri í Evrópulöndum Heimild: FDM Fimm hæstu sektirnar Eistland 400¤ Holland og Skotland 230¤ Danmörk og Slóvenía 200¤ Ítalía 160¤ Noregur 140¤ Fimm lægstu sektirnar Makedónía 45¤ Ísland og Serbía 40¤ Búlgaría 25¤ Tyrkland 20¤ Lettland 15¤ Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is „Samgöngustofa fagnar því að hreyf- ing sé komin á þetta mál,“ segir Þór- hildur Elínardóttir, samskiptastjóri hjá Samgöngustofu, en ríkissaksókn- ari hefur gert þá tillögu til dómsmála- ráðherra að sekt fyrir notkun farsíma án handfrjáls búnaðar verði 40 þús- und krónur. Þetta er áttfalt á við nú- verandi sekt, en ökumenn sem nota farsíma undir stýri eru í dag sektaðir um fimm þúsund krónur. Sektin hef- ur ekki hækkað síðan árið 2006. „Samgöngustofa hefur lengi hvatt til þess að sektarupphæðin verði end- urskoðuð. Núverandi sektarfjárhæð er gengin sér til húðar fyrir löngu og hefur núorðið lítinn fælingarmátt enda hefur upphæðin verið sú sama í 16 ár. Við sjáum að alltof margir öku- menn nota símann við akstur eða í stuttu stoppi á rauðu ljósi. Það er orð- ið löngu tímabært að taka þetta fast- ari tökum,“ segir Þórhildur en Ísland er eitt þeirra Evrópulanda þar sem umferðarsektir eru hvað lægstar. Undir ökumönnum komið „Í rannsóknum lögreglu og Rann- sóknarnefndar samgönguslysa hafa komið tilfelli þar sem leiddar hafa verið líkur að því að alvarleg slys og banaslys hafi átt sér orsakir í notkun síma undir stýri,“ segir hún en bætir við að farsímanotkun sem orsakavald- ur slysa sé að líkindum mjög van- skráð. Árlega eru um 500 ökumenn kærðir fyrir notkun farsíma undir stýri, en mest hafa rúmlega 900 verið kærðir á einu ári fyrir brotið. Þórhildur segir að Samgöngustofa hafi á undanförnum árum staðið fyrir herferðum gegn farsímanotkun við akstur og vinni að því að hvetja fólk til að haga sér í samræmi við það sem það veit að er rétt. Hugmyndir um að fastar verði tekið á þeim undantekn- ingum sem eru á því séu af hinu góða, því farsímanotkun undir stýri sé hættuspil og alls ekki einkamál þeirra sem það stunda. „Bílstjórar nota farsímana af því þeir gera ráð fyrir því að sleppa af því þeir hafa alltaf sloppið. Ef þeir geri það ekki skipti það svo litlu máli. Það þarf að gera gangskör að því að upp- ræta þetta, í þágu umferðaröryggis,“ segir Þórhildur og bætir við að lykill- inn sé samvinna í fræðslu, forvörnum og löggæslu. „Yfirleitt er það þannig að ef slys verður og lögreglumaður áttar sig á því að ökumaður hefur ekki haft at- hyglina á veginum þá er hann spurð- ur hvar athyglin var áður en slysið varð. Sumir viðurkenna að hafa verið í farsímanum, aðrir kannast ekki við það en þá eru oft vitni sem geta sagt hvað gerðist,“ segir Ómar Smári Ár- mannsson, yfirmaður umferðardeild- ar lögreglunnar. „Sektir hafa ekki hækkað í áratug og það er löngu kominn tími til þess. Það þarf að vera þannig að fólk hugsi sig tvisvar um áður en það ákveður að brjóta af sér.“ Lítill fælingarmáttur í sektinni  Ríkissaksóknari leggur til að sektin verði áttfölduð  Ísland eitt af þeim Evrópulöndum þar sem um- ferðarsektir eru með þeim lægstu  Árlega um 500 ökumenn kærðir fyrir notkun farsíma undir stýri Morgunblaðið/Ómar Sekt Í dag er sekt fyrir að nota far- síma undir stýri 5.000 krónur. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017 Síðumúla 21, Selmúlamegin, sími 533 6040, www.stimplar.is Áratuga reynslaÖrugg þjónusta Mikið úrval af hurða- og póstkassaskiltum, barmmerkjum og hlutamerkjum og fleira Stimplar eru okkar fag það eru skiltin líka Algengt er að fólk hirði ekki um að ganga þannig frá sorpi að það komist í grenndargáma og er það þá gjarnan skilið eftir í reiðileysi. Op grenndargáma eru höfð þröng til að börn fari sér ekki að voða í þeim. Fólk þarf því að gefa sér tíma til að minnka umfang umbúða eða hluta stærri umbúðir niður til að þær komist í gám- ana. Eitthvað hefur safnast upp af rusli við grenndar- gáma við Háaleitisbraut en skv. upplýsingum frá Reykjavíkurborg er það þó hirt reglulega. Þessa dag- ana séu margir starfsmenn borgarinnar í sumarleyfi og því geti draslið safnast upp til óprýði í borginni. ernayr@mbl.is Morgunblaðið/Golli Rusl í reiðileysi þegar illa er gengið frá Baldur Arnarson baldura@mbl.is Halldór Halldórsson, oddviti Sjálf- stæðismanna í Reykjavík, mun óska eftir því að innri endurskoðun borg- arinnar yfirfari aðdraganda að lokun brautar 06/24, svonefndrar neyðar- brautar, á Reykjavíkurflugvelli. Eins og fjallað hefur verið um í Morgunblaðinu hefur stjórnskipun- ar- og eftirlitsnefnd óskað eftir því að Ríkisendurskoðun rannsaki að- draganda þess að neyðarbrautinni var lokað. Með þeirri beiðni fylgdi ítarleg tímalína í málinu frá árinu 2005 og var hluti hennar endurbirtur hér í blaðinu í gær. Halldór segir beiðni þingnefndar- innar gefa tilefni til sambærilegrar athugunar hjá borginni. „Ég mun óska eftir því að sam- bærileg tímalína verði unnin af hálfu borgarinnar og málið allt skoðað á sama hátt og nefndin bað Ríkisend- urskoðanda að gera. Það er mikil- vægt að eiga þetta samandregið af hálfu borgarinnar. Það þarf að yfir- fara athafnir borgarinnar og hvort eitthvað sé ekki samkvæmt reglum eða heimildum. Það er mjög mikil- vægt að fá þetta fram. Það eru enda að minnsta kosti tveir málsaðilar í þessu leikriti,“ segir Halldór og vísar til borgar og ríkis. Athugi úthlutun lóða Hann rifjar upp að þegar aðal- skipulag borgarinnar var samþykkt 2013 hafi það verið staðfest af hálfu Skipulagsstofnunar með fyrirvara, af hálfu ráðherra, varðandi Reykja- víkurflugvöll. „Það væri t.d. áhuga- vert að kanna hversu ríkur sá fyrir- vari er. Fór borgin fram úr sjálfri sér með úthlutun lóða þegar ekki var bú- ið að loka brautinni?“ spyr Halldór og vísar til brautar 06/24. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri baðst undan viðtali. Jón Gunnarsson samgönguráð- herra segir það munu taka tíma að endurmeta valkosti fyrir innanlands- flug. Tillögur nefndar, undir forystu Rögnu Árnadóttur, dugi þar ekki. Að sama skapi séu hugmyndir um að loka vellinum innan fárra ára „al- gjörlega út úr myndinni og óraun- hæfar“. „Við verðum að ná einhverri mál- efnalegri umræðu um þessi mál. Það var vitnað mikið í vinnu Rögnu- nefndarinnar. Ég tel að sú vinna hafi verið algerlega ófullnægjandi, sam- anber þær upplýsingar sem hafa verið að koma fram um þann valkost sem nefndin taldi vænlegastan til að þróa, Hvassahraun, að þar sé mögu- lega vatnsupptökusvæði Suður- nesja,“ segir Jón og bætir því við að eins hafi nefndin vanreifað öryggis- hlutverk vallarins. Þorgeir Pálsson, fv. flugmálastjóri, sé að vinna skýrslu um þá hlið málsins. Brynjar Harðarson, framkv.stj. Valsmanna hf., sagði málið varða ríki og borg. Það væri Knattspyrnufélag- inu Val óviðkomandi. Fari yfir lokun á neyðarbraut  Oddviti Sjálfstæðisflokks vill athugun innri endurskoðunar í borginni á málinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Úr lofti Reykjavíkurflugvöllur. Var aðeins tímabundið » Haft var eftir Njáli Trausta Friðbertssyni, þingmanni Sjálf- stæðisflokkins og flugumferð- arstjóra, í Morgunblaðinu í gær að stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd Alþingis telur að nú sé komið fram að flugbraut 06/ 24 hafi aðeins verið lokað tímabundið þegar fram- kvæmdir hófust á Hlíðarenda. Vegagerðin hefur kynnt drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrir- hugaðra framkvæmda á Vest- fjarðavegi um Dynjandisheiði og á Bíldudalsvegi frá Bíldudals- flugvelli að Vestfjarðavegi á Dynj- andisheiði. Markmið framkvæmdarinnar er að opna heilsárshringveg um Vest- firði með því að bæta samgöngur um Vestfjarðaveg milli norðan- og sunnanverðra Vestfjarða og um Bíldudalsveg milli Bíldudals og Vestfjarðavegar. Núverandi Vestfjarðavegur er 41,1 kílómetra langur en gert er ráð fyrir að nýr vegur verði 35,4- 39,2 km langur, háð leiðarvali. Áætlanir eru um að meta umhverf- isáhrif þriggja veglína. Núverandi Bíldudalsvegur er 29,1 km langur en gert er ráð fyrir að nýr vegur verði aðeins styttri. Hægt er að gera athugasemdir við áætlunina til 31. júlí 2017. Drög að matsáætlun fyrir Vestfjarðaveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.