Morgunblaðið - 06.07.2017, Side 10

Morgunblaðið - 06.07.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017 Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. Fyrirtæki og verslanir Sumarleikföng í úrvali www.danco.is Heildsöludreifing 45 cm boltar Flottir á trampólín arBolt Kútar Sá kúl rpu u Vatnsbyssur Fötur YooHoo Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Fulltrúar á vegum Matvælastofnun- ar fóru í rúmlega eitt þúsund eft- irlitsheimsóknir í matvæla-, búfjár- og fóðurfyrirtæki í fyrra vegna eft- irlits með matvælum og fóðri. Í um 25% tilvika voru atriði ekki í lagi og gerðar kröfur um úrbætur. Alvarleg frávik frá þeim kröfum sem gerðar eru voru 108 talsins á 32 starfsstöðv- um. Þetta kemur fram í starfsskýrslu Matvælastofnunar (MAST) fyrir seinasta ár, sem er nýkomin út. Niðurstöður frammistöðuflokkun- ar benda þó til þess að staða fyrir- tækja sem framleiða matvæli úr dýraríkinu sé almennt góð. Eftirlit og sýnatökur til að kanna hvort leifar af varnarefnum yfir leyfilegu hámarki finnast í ávöxtum og grænmeti leiddu m.a. í ljós að af 232 sýnum sem tekin voru reyndust átta innihalda leifar varnarefna sem voru yfir því hámarksgildi varnar- efna sem reglur kveða á um. „Það voru epli, sætuhnúðar og spínat frá Bandaríkjunum, vínber frá Indlandi, hnúðsilla frá Hollandi, vatnsmelónur frá Kostaríka, íslensk steinselja og frosin jarðarber frá Kína. Í öllum til- fellum var málinu fylgt eftir með stöðvun á dreifingu og var framleið- anda eða innflutningsaðila gefinn kostur á að staðfesta niðurstöðu með nýju sýni,“ segir í skýrslunni. Bent er á að síðasta ár var „óvenju mikið um að leifar greinist yfir há- marksgildi. Það á sér m.a. skýringar í því að hér er í raun mjög lítill mark- aður og viðbúið að sjá miklar sveifl- ur milli ára. En nú hefur einnig fjölgað mjög þeim efnum sem skim- að er fyrir hjá rannsóknastofu Matís sem greinir sýnin“. 581 ábending um velferð dýra Mjög hefur fjölgað ábendingum frá almenningi um illa meðferð á dýrum. Í fyrra barst alls 581 ábend- ing þar sem grunur var um illa með- ferð á dýrum, flestar eða 156 voru vegna hrossa, 209 vegna hunda og 59 vegna sauðfjár. Fulltrúar MAST fóru í 983 heim- sóknir á 747 býli og aðrar starfs- stöðvar í fyrra vegna eftirlits með dýravelferð og komu í ljós alvarleg frávik frá kröfum um velferð dýra á 84 bæjum. Í eftirlitsferðum á ali- fuglabú voru skráð alvarleg frávik á 11 starfsstöðvum af alls 62 búum. „Dæmi um alvarleg frávik vegna dýravelferðar er ófullnægjandi loft- ræsting, of mikill þéttleiki og skort- ur á eigin innra eftirliti með fugl- unum,“ segir í skýrslunni. Þá kemur fram að í fyrra voru tekin um 90 sýni úr fiskeldisstöðvum, bæði úr seiðum og sláturfiski, og reyndust öll sýnin laus við lyfjaleifar og án nokkurra aðskotaefna. Farið var í eftirlit á um þriðjung starfsstöðva með hrossa- hald í fyrra eða 233. Alvarleg frávik frá velferð hrossa komu fram í 20 til- vikum (9%), í flestum tilfellum vegna holdafars/vanfóðrunar. 108 alvarleg frávik komu í ljós  Alvarleg frávik frá kröfum um velferð dýra á 84 bæjum í fyrra skv. ársskýrslu MAST  Átta sýni ávaxta og grænmetis innihéldu leifar varnarefna sem voru yfir hámarksgildi Tölur MAST » Útflutningur hrossa jókst í fyrra er flutt voru út 1.474 hross, flest til Þýskalands eða 626. » 33.670 jólatré voru flutt til landsins í fyrra, mun fleiri en á umliðnum árum skv. starfs- skýrslu MAST. Innflutningur hunda og katta 2003–2016 250 200 150 100 50 0 Hundar Kettir 2002 2003 2004 2005 2006 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 217 232 4946 114 26 125 Heimild: Matvælastofnun Eftirlit með matvælum og fóðri Heimild: Matvælastofnun Starfsgrein Fjöldi starfsstöðva Alvarleg frávik Fjöldi eftirlits- heimsókna með alvarleg frávik Fjöldi starfs- stöðva með alvarleg frávik Lagarafurðir 318 43 22 19 Búvörur 73 38 15 6 Fóður 67 27 8 7 Samtals 458 108 45 32 Alvarleg frávik 2016 Innflutningur á hundum til landsins jókst mjög í fyrra en þá voru fluttir inn 217 hundar af 67 mismunandi tegundum og frá 33 löndum. Hafa ekki verið fluttir inn fleiri hundar til lands- ins á einu ári frá 2006. Flestir hundarnir eða 21 eru af tegundinni Labrador retriev- er en einnig voru m.a. fluttir inn sjö franskir bolabítar, sex lang- hundar, sex tíbeskir spaniel- hundar og fimm ástralskir fjár- hundar. Innfluttir kettir voru 49 tals- ins, alls átta tegundir frá 15 löndum. Heimiliskettir eru flest- ir í þessum hópi en einnig voru fluttir inn fimm persneskir kett- ir, sex norskir skógarkettir, tveir abyssiníukettir og einn síbersk- ur köttur. Flestir hundar og kettir sem fluttir eru til landsins koma frá Bandaríkjunum (49), Noregi (34), Danmörku (27) og Svíþjóð (27). Langhundar og abyssiníu kettir INNFLUTT GÆLUDÝR Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Marktækur munur var á upplifun starfsmanna af hávaða á milli mæl- inga sem voru gerðar sem hluti af til- raunaverkefni sem Akureyrarkaup- staður, Heilbrigðiseftirlit Norður- lands eystra, Kennarasamband Íslands, Samband íslenskra sveitar- félaga, Umhverfisstofnun og Vinnu- eftirlitið fóru af stað með haustið 2015. Ráðist var í verkefnið í þremur leikskólum á Akureyri, Krógabóli, Lundarseli og Naustatjörn, til að kortleggja hvað í starfsumhverfi leikskóla ylli mestum hávaða og hvað væri best að gera til að draga úr hon- um. Úrbætur skiluðu árangri Gerðar voru mælingar haustið 2015 og í kjölfar þeirra var ráðist í úrbætur, svo sem á húsnæði, skipu- lagi starfsins og efnt var til fræðslu um hljóðvist, hávaða, rödd og radd- heilsu fyrir starfsfólk og börn leik- skólanna. Haustið 2016 var mælingin svo endurtekin. Umbætur á húsnæði og aðbúnaði skiluðu sér mjög vel að mati starfs- fólks. Eftir breytinguna upplifði það minni hávaða í matsal, á matartíma, í frjálsum leik, af húsgögnum og þá upplifði starfsfólkið minni glymj- anda í húsnæðinu. Breytingar á skipulagi matartíma, útiveru og á frjálsum leik leiddu til að starfsfólk kvartaði minna undan hávaða á þeim tímum dagsins. Mat starfsfólks á eigin raddheilsu versnaði á milli 2015 og 2016. Líkleg skýring á því þykir vera sú að í milli- tíðinni hafði það verið frætt um lík- amleg einkenni sem fylgja raddveilu. Þá kom fram að starfsfólk leikskól- anna þriggja fann helst fyrir streitu í miklum hávaða þegar unnið var með stóra hópa barna í frjálsum tímum. Lögðu flestir starfsmenn til að fækk- að yrði í hópum til að draga mætti úr hávaða. Ánægja með verkefnið „Verkefnið er til eftirbreytni,“ segir varaformaður Félags leik- skólakennara, Fjóla Þorvaldsdóttir, en hún er afar ánægð með samvinn- una, framkvæmd verkefnisins og niðurstöðuna. Verkefnið verður kynnt á málþingi sem til stendur að halda í haust fyrir leik- og grunn- skóla og bæklingar séu nú þegar til- búnir á vefsíðu Kennarasambands Íslands. Vonast hún til að sveitar- félögin sýni verkefninu áhuga, það og niðurstöðuna sé í raun hægt að nota í hvaða skóla sem er og á hvaða vinnustað sem er til að bæta vinnu- umhverfi fullorðinna og barna. Finna þarf orsakir hávaðans, úr- bætur á umhverfi bera árangur, skipulag og kennsluhættir geta dregið úr hávaða, auka þarf þekk- ingu á raddvernd og hávaða og efla fræðslu um málaflokkinn, með það að markmiði að bæta öryggi, líðan og starfsumhverfi í leik- og grunnskól- um, er niðurstaðan. Streita og raddveila hrjá leikskólastarfsfólk  Tilraunaverkefni um hávaða í leikskólarými lokið  Mark- tækur munur eftir úrbætur sem voru hluti af verkefninu Morgunblaðið/Eggert Leikskólabörn Það er skemmtilegt hjá þessum prúðu börnum en stundum getur þó hávaðinn farið úr böndunum þegar mörg eru saman komin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.