Morgunblaðið - 06.07.2017, Síða 12

Morgunblaðið - 06.07.2017, Síða 12
Hinn breski Meurig Bowen hefur velt því lengi fyrir sér hvað það er við klassíska tónlist sem mörgum finnst leiðinlegt. Helstu ástæður sem fólk gefur er að verkin séu of löng, því þyki leiðigjarnt að sitja of lengi og horfa á sömu hljómsveitina, það megi ekki drekka áfengi á meðan á tónleikum stendur, það fái ekki að taka myndir af upplifuninni og því þyki einfaldlega of dýrt að fara á sinfóníutónleika. Bowen vildi taka á þessu. Klassísk tónlist er að hans mati eitthvað sem allir eiga að geta notið. Hann skipu- leggur nú Cheltenham Music Festival í Bretlandi og þar mun hann koma upp sinfóníutónleikunum Classical Mix- tape sem ganga þvert á allt það sem telst hefðbundið þegar kemur að klassískri tónlist. Þetta kemur fram á vef BBC. Gestir munu sjálfir ráða því hversu mikið þeir borga, allt niður í 1 pund, eða tæpar 134 krónur íslenskar. Hvert verk verður aðeins um 6 mínútur að lengd svo engum ætti að leiðast löng seta. Á þremur sviðum verður fjöldi listamanna sem munu leika mörg mis- munandi verk og er áheyrendum þann- ig gert kleift að hreyfa sig og labba á milli tónleika. Það kemur í veg fyrir að gestir þurfi að sitja of lengi. Einnig er áheyrendum velkomið að taka með sér drykki og þá er fólki boð- ið að liggja á gólfinu og njóta tónlist- arinnar, kjósi það svo. Að lokum bendir Bowen á að fólki sé frjálst að taka eins mikið af myndum og myndböndum og því hugnast, ekki sé verra ef fólk ákveður að fara í beina útsendingu á Facebook á meðan á tónleikum stend- ur svo hægt sé að deila tónlistinni með sem flestum. Tónleikarnir fara fram hinn 11. júlí næstkomandi á Tewkesbury Abbey sem er í Glouces- tershire á Englandi. Hvert verk aðeins sex mínútur að lengd Reuters Sinfónía Hefðbundin klassísk tónlist hefur ekki alltaf höfðað til allra. Óhefðbundnir sinfóníutónleikar 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Mörður Gunnarsson Otte-sen, talsmaður Töfra-staða, segir að á svæð-inu eigi gestir að geta gengið um og lært af umhverfinu með skipulögðum hætti. „Töfrastaðir er hópur fólks sem hefur áhuga á samfélagsuppbyggingu, vistrækt og endurvinnslu þess sem samfélagið lætur frá sér. Við vorum áður á Torfastöðum þar sem Býli andans starfar og rekur þar svitahof. Verk- efnið nú er að koma að samfélags- myndun og kennslu í vistrækt sem er hönnunaraðferð þar sem hannað er í takt við náttúruna,“ segir Mörður og bætir við að Töfrastaðir vilji ekki dvelja í gagnrýni á ástand umhverf- ismála heldur vinna í lausnum. Land að láni í tvö ár Allt starf Töfrastaða er unnið af sjálfboðaliðum sem flestir eru er- lendir. „Ölfus styrkir okkur með því að lána okkur landið. Það fyrir- komulag er til reynslu í tvö ár. Við höfum einnig fengið afnot af fjórum kennslustofum hjá sveitarfélaginu. Ölfus er að þróast í umhverfisvænt sveitarfélag sem rekur meðal annars grænfána leikskóla og skóla,“ segir Mörður og bætir við draumurinn sé að kenna grunnskólabörnum um- hverfisvitund og koma upp kennslu- miðstöð um umhverfismál þar sem lögð verði áhersla á landgræðslu og skógrækt. Erfitt er að fá íslenska sjálf- boðaliða til starfa að sögn Marðar. Um 200 manns komi að verkefninu og af þeim séu um 20 virkir. „Umhverfisvitund á Íslandi er Töfrastaðir byggja Sanda suðursins Töfrastaðir eru félagsskapur sem fékk úthlutað átta hektara landi við Þorlákshöfn fyrir verkefnið Sandar suðursins. Verkefninu er ætlað að tengja fólk náttúrunni og stuðla að aukinni umhverfisvitund. Í því skyni verða haldnar fræðsluhátíðir, við- burðir og svæðið hannað til að kenna gestum á meðan þeir njóta umhverfisins. Á kennslusvæðum verður hægt að fræðast um fjölbreyttar aðferðir við ræktun. Talsmaðurinn Mörður Gunnarsson Ottesen, talsmaður Töfrastaða, við ræktunarstörf á Söndum suðursins á landi sem Ölfus lánaði til tveggja ára. Ljósmynd/Töfrastaðir Viðburðir Laugardagsviðburðir Sanda suðursins eru opnir almenningi. Söngkonan Bryndís Jakobsdóttir mun koma fram á stofutónleikum Gljúfrasteins næstkomandi sunnu- dag 9. júlí. Þar ætlar Bryndís að frumflytja nýtt efni ásamt vel völdum listamönnum. Hefjast tónleikarnir klukkan 16 og er miðaverð 2.000 krónur. Stofutónleikar á Gljúfrasteini næstkomandi sunnudag Bryndís Jakobs heldur tónleika Morgunblaðið/Árni Sæberg Árlega fer fram svokölluð Hvanneyr- arhátíð í Borgarfirði og í ár verður engin breyting á. Hátíðin, sem fer fram hinn 8. júlí næstkomandi, skartar veglegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Kvenfélagið í sveitinni mun sjá um kaffisölu en einnig verður boðið upp á veitingar á veitingastaðnum Skemmunni og Hvanneyri pub. Fyrir þá sem vilja gera góð kaup verður handverksmarkaður í íþrótta- höllinni, en einnig verður haldið upp á opnunardag samsýningar borg- firskra listamanna og nefnist sýn- ingin Sumarlist 2017. Börnin fá líka eitthvað fyrir sinn snúð en boðið verður upp á kerru- ferðir fyrir þau, auk þess sem hús- dýr verða á svæðinu og sýning á ís- lenskum landnámshænum. Séra Flóki Kristinsson mun segja sögu Hvanneyrarkirkju og Sveinn Hall- grímsson mun ganga með gesti um gömlu torfuna, auk fjölda annarra viðburða. Hvanneyrarhátíðin í Borg- arfirði er því skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Sumarið er tími hátíðarhalda um land allt Sýning á íslenskum landnáms- hænum og húsdýr á svæðinu Morgunblaðið/Ófeygur Fegurð Íslenska landnámshænan hefur löngum þótt mikið augnayndi. SMÁRALIND www.skornirthinir.is Útsöluverð 9.498 verð áður 18.995 stærðir 36-47 Útsöluverð 7.499 verð áður 24.995 stærðir 36-47 30-70% afsláttur Útsalan er hafin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.