Morgunblaðið - 06.07.2017, Síða 27

Morgunblaðið - 06.07.2017, Síða 27
maður Starfsmannafélags Kópa- vogs, sat í tölvunefnd á vegum Samtaka íslenskra sveitarfélaga, í sóknarnefnd Kópavogskirkju, um árabil í stjórn Félags byggingar- fulltrúa og sat í nefndum á vegum SATS (samtök tæknimanna í sveit- arfélögum) og í nefndum um breyt- ingar á lögum og reglugerðum á sviði byggingarmála. Helstu áhuga- mál Gísla eru ferðalög innan lands og utan, ættfræði, sagnfræði, grúsk, uppbygging og dvöl í sumar- húsi fjölskyldunnar. Fjölskylda Eiginkona Gísla er Rúna Bjarna- dóttir, f. 22.3. 1948, bókavörður. Foreldrar hennar voru Bjarni Mar- inó Ólafsson, f. 26.2. 1914, d. 23.1. 1991, og k.h., Katrín Marta Magn- úsdóttir, f. 22.10. 1918, d. 5.12. 2001, bændur í Skálakoti undir V- Eyjafjöllum. Dætur Gísla og Rúnu eru Urður Gísladóttir Norðdahl, f. 14.7. 1987, BS í hjúkrunarfræði og MS í lýð- heilsu frá Lundi, búsett í Kópavogi, og Arna Gísladóttir Norðdahl, f. 10.3. 1992, bókavörður og háskóla- nemi búsett í Kópavogi. Systkini Gísla eru Birgir Már Norðdahl, f. 19.11. 1944, skipaverk- fræðingur í Danmörku; Edda Norðdahl, f. 22.3. 1946, skrif- stofumaður og gistihúsrekandi í Kópavogi, og María Norðdahl, f. 13.4. 1950, kennari og nuddari í Reykjavík. Foreldrar Gísla voru Baldur Norðdahl, f. 17.10. 1922, d.. 21.11. 1988, bóndi og verkamaður, og Oddný Gísladóttir, f. 8.4. 1923, d. 18.6. 1992, bóndi, verkakona, saumakona, kaupkona og húsmóðir. Úr frændgarði Gísla Norðdahl Gísli Norðdahl Kristín Þorláksdóttir húsfr. í Seljatungu Jón Erlendsson b. í Seljatungu í Flóa María Þorláksína Jónsdóttir húsfr. á Stóru-Reykjum Gísli Jónsson b., oddviti og hreppstj. á Stóru- Reykjum í Flóa Oddný Gísladóttir b.áÚlfarsfelli, verkak., saumak.og kaupm. í Innri- Njarðvík ogKeflavík og húsfr. á Eskifirði og í Reykjavík Helga Einarsdóttir húsfr. á Stóru- Reykjum Jón Hannesson b. á Stóru-Reykjum Birgir Már Norðdahl skipa- verkfræðingur í Danmörku Edda Norðdahl skrifstofum. og gistihúsarek- andi í Kópavogi Oddný Sturlu- dóttir, fyrrv. borgarfulltrúi Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari Kristjana Esther Jónsdóttir sjúkraþjálfi Valdís Jónsdóttir húsfr. í Rvík. Gunnar Gunnars- son hand- boltamað- ur María Norð- dahl kennari og nuddari í Rvík Guðlaug Brynjólfsdóttir húsfr. í Fljótsdal Guðbjörg Úlfarsdóttir Norðdahl húsfr. á Úlfarsfelli og í Rvík Kjartan Norðdahl b. á Úlfarsfelli í og verkam. í Rvík Baldur Norðdahl b. á Úlfarsfelli í Mosfellssveit, síðar verkam. í Innri-Njarðvík og Rvík Skúli Norðdahl arkitekt Haraldur Skúlason Norðdahl tollvörð- ur í Rvík Guðbjörg Astrid Skúladótir listdansari og skólastj. Klassíska listdans- skólans Úlfar Jónsson b. í Fljótsdal í Fljótshlíð Eiríkur Guðmundsson trésm. í Rvík Einar Helgi Guð- munds- son b. í MiðdalGuðmundur Einarsson fráMiðdal listam. Guðbjörg Guðmundsdóttir Norðdahl húsfr. á Úlfarsfelli Tryggvi Einarsson b. í Miðdal Sveinn Einarsson veiðistjóri IngaValfríður Einarsdóttir húsfr. í Rvík Rúnar Hauks- son arkitekt Haukur Einars- son prentari Sigríður Eiríksdóttir hjúkrunark.Vigdís Finnbogadóttir Erró myndlistarmaður Egill Guðmundsson arkitekt AriTausti Guðmundsson jarðeðlisfr. og dagskrárgm. Einar Sveinsson arkitekt Einar Valgeir Tryggvason arkitekt Þuríður Sigurðardóttir söngkona Bragi Norðdahl fyrrv. flugstjóri Skúli Norðdahl vegaverkstj. og b.áÚlfarsfelli í Mosfellssveit Lennon minnst Gísli og Rúna við minnismerkið um bítilinn fræga. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017 105 ára Dóra Ólafsdóttir 101 ára Guðrún Guðmundsdóttir 90 ára Helga K. Helgadóttir Þóra Þorbergsdóttir 85 ára Esther Elíasdóttir Katrín Jónsdóttir 80 ára Freyr Ófeigsson Hafdís M. Magnúsdóttir Jóhannes Ástvaldsson Laufey Guðlaugsdóttir Sigurður Þórðarson 75 ára Lárus Sveinsson Marta Vilhjálmsdóttir 70 ára Daníel Guðmundsson Edda Sigfúsdóttir Haukur Viðar Benediktsson Mary Súsanna Bache Ryszard Lecki Sveinjón Jóhannesson 60 ára Ásbjörn Björnsson Borgþór Jónsson Einar Bjarnason Ester Sumarliðadóttir Hafdís Harðardóttir Hafþór Baldvinsson Helga Ólafsdóttir Hildur Haraldsdóttir Hjörtur Arnar Sigurðsson Ingvar Þór Magnússon Jónas Jóhannesson Jón Lúðvíksson Miroslawa Hetmanska Pamela Wright Ragnar Elías Maríasson Sigríður Helgadóttir 50 ára Anna S. Oddgeirsdóttir Candido A. Ferral Abreu Elín K. Sigurðardóttir Helga G. Sturlaugsdóttir Hjálmar Axel Ingibergsson Inga Valborg Ólafsdóttir Jóhanna Pálsdóttir Jón Geir Þormar Jón Sigurðsson Kristinn Árni Emilsson Kristín Kristjánsdóttir Merlin Mabida Nara Ólöf Ásdís Baldvinsdóttir Pálmar Axel Gíslason Sigurlaug Sigurjónsdóttir Sigþór Þorleifsson Símon Hólm Reynisson Sólborg Erlendsdóttir Steingrímur K. Reynisson Sveinbjörg Sigurðardóttir 40 ára Baldur Páll Guðmundsson Berglind Þ. Gunnarsdóttir Birkir Jónas Einarsson Guðjón S. Jónatansson Hildigunnur Guðfinnsdóttir Kristine Marie Wichuk Kristín Kristjánsdóttir María Waltersdóttir Saulius Prizginas Sigríður Eysteinsdóttir Steinunn Þórðardóttir Una Björg Jóhannesdóttir Þorbjörg K. Gunnarsdóttir Þóra Birna Ásgeirsdóttir 30 ára Aivaras Stankevicius Halldór Logi Logason Rakel Anna Róbertsdóttir Stefán Ísak Agnarsson Þröstur Magnússon Til hamingju með daginn 30 ára Valdimar ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk prófi í viðskiptafræði frá HR og starfar hjá Deloitte. Maki: Ragnhildur Hauks- dóttir, f. 1990, læknir. Systkini: Viðar Snær, f. 1997, og Gígja Björk, f. 2007. Foreldrar: Íris Björk Við- arsdóttir, f. 1968, fjár- málafulltrúi, og Jóhann Friðgeir Valdimarsson, f. 1967, óperusöngvari. Þau eru búsett í Reykjavík. Valdimar Viktor Jóhannsson 30 ára Skúli Þór ólst upp í Lammhult í Svíþjóð, býr í Reykjavík og rekur Tölvu- vini, tölvuverkstæði og verslun. Bróðir: Óli Halldór Daní- elsson, f. 1989, starfar við umönnun í Svíþjóð. Foreldrar: Sólveig Skúla- dóttir, f. 1962, starfs- maður Rauða krossins í Svíþjóð, og Daníel Ing- þórsson, f. 1960, fjölvirki og rekur verkstæði hjá Neshamri. Skúli Þór Daníelsson 40 ára Vigdís lauk BSc- prófi í viðskiptafræði og er aðstoðarframkvæmda- stjóri Pipar/TBWA. Maki: Birgir Örn Tryggva- son, f. 1969, tónlistarm. Börn: Magdalena Björk, f. 1991; Brynjar Karl, f. 2003; Ástrós Birta, f. 2004, og Axel Ernir, f. 2007. Foreldrar: Jóhann Ein- varðsson, f. 1938, d. 2013, og Guðný Gunnars- dóttir, f. 1942. Vigdís Jóhannsdóttir  Hrönn Egilsdóttir hefur varið dokt- orsritgerð sína við Jarðvísindadeild Há- skóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Kalk- myndandi lífverur á breytilegrum búsvæðum grunn- og djúpsjávar (Cal- cifying organisms in changing shallow and deep marine environments). Leið- beinandi var Jón Ólafsson, prófessor emeritus við Jarðvísindadeild HÍ. Kalkmyndandi lífverum stafar ógn af þeim umhverfisbreytingum sem eru að verða í hafinu vegna stórtækrar losunar mannkyns á koldíoxíði (CO2), sem leiðir síðan til súrnunar sjávarins og lækk- unar á kalkmettun í sjó. Þessari ritgerð er ætlað að fylla upp í mikilvæg göt í þekkingu okkar og efla þannig skilning okkar á afleiðingum súrnunar sjávar fyrir kalkmyndandi lífríki innan þriggja ólíkra búsvæða í og við sjó, þ.e. fjöru, grunnsævi og djúpsævi. Doktorsritgerðin samanstendur af fjórum vísindagreinum auk inngangs. Greinar I og II fjalla um árstíðabundinn og daglegan breytileika í efnajafnvægi ólífræns kolefnis í fjörupollum, sem er mikill miðað við búsvæði neðan sjávar- borðs. Lýst var líffræðilegum ferlum hjá kalkmyndandi rauðþörungi (Ellisol- andia elongata) í samhengi við þennan mikla breytileika í umhverfi. Þá voru framkvæmdar til- raunir á rannsókn- arstofu sem benda til þess að kalk- myndandi þör- ungar sem þrífast í fjörum, þar sem breytileiki í um- hverfi er mikill, séu minna viðkvæmir fyrir þeim CO2 styrk sem spáð er að verði í andrúmslofti framtíðar heldur en tegundir sem þrífast einungis neðan sjávarborðs. Grein III fjallar um árs- tíðabundinn umhverfisbreytileika á grunnsævi við Ísland en rannsóknin fór fram í Breiðafirði. Djúpsjórinn er til- tölulega stöðugt búsvæði. Þrátt fyrir það benda reiknilíkön til þess að Norðurhöf verði að mestu undirmettuð með tilliti til kalkgerðarinnar aragóníts fyrir árið 2100, sem telja má að ógni kalkmyndandi lindýrum á þessu svæði. Í grein VI er lýst tegundasamsetningu, dreifingu og fjölbreytileika samloka og snigla á háum breiddargráðum í Norð- ur-Atlantshafinu, þ.e. norður og suður af Grænlands-Íslands-Færeyja (GIF) hryggnum. Hrönn Egilsdóttir Hrönn Egilsdóttir lauk BS-gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands árið 2007 og meistaragráðu (MRes) í sjávarlíffræði frá Háskólanum í Plymouth í Englandi árið 2008. Maki hennar er Róbert Cabrera og saman eiga þau einn son, Egil Cabrera, f. 2013. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi styrktu Hrönn til að ljúka doktorsnámi og vinna áfram að rannsóknum á súrnun sjávar sem nýdoktor við Jarðvísinda- stofnun. Hún mun hefja störf hjá Hafrannsóknastofnun haustið 2017. Doktor

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.