Morgunblaðið - 06.07.2017, Síða 29

Morgunblaðið - 06.07.2017, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Láttu ekki smámuni fara í taug- arnar á þér. Reyndu að láta orð fylgja at- höfn svo allt falli í ljúfa löð. Nauðsynlegt er að sýna gott fordæmi. 20. apríl - 20. maí  Naut Stundum er þetta spurning um að vera réttur maður á réttum stað á réttum tíma. Fæst orð bera minnsta ábyrgð. Vertu félagslynd/ur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þið kynnist einhverjum ókunnug- um gesti og eigið svolítið bágt með að átta ykkur á honum. Notaðu hrósið sem þú fékkst, en passaðu þig á að sá sem hrósaði þér þekki ekki þann sem þú hrós- ar! 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er eitthvert valdatafl í gangi í kringum þig svo þér er skapi næst að gef- ast upp. Hikaðu ekki við að deila leynd- armálum þínum með einkavinum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Sagt hefur verið að heimilislíf drepi rómantíkina, en þú gætir sannað hið gagn- stæða. Sýndu tillitssemi og reyndu að skemma ekki fyrir. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Láttu þér ekki detta í hug að þú verðir að láta af öllum skoðunum þínum þótt þú lendir í einhverjum barningi með þær. Ekki sjá eftir neinu því þú munt fljótt finna frelsi og frið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Enginn leysir vandamál betur en þú. Mundu samt að þú átt að ráða slíku sjálfur en ekki hlaupa eftir óskum annarra. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Oft er haft á orði að maður geti ekki neytt neinn til þess að elska sig. Láttu ekki fólk fara í taugarnar á þér held- ur sýndu því skilning. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Allt hefur sinn vanagang, en virðist samt öðruvísi. Sýndu fyrirhyggju og gerðu áætlanir um framtíðina. 22. des. - 19. janúar Steingeit Undanfarið hefurðu keppst við að taka til og skipuleggja heima við og í vinnu. Maður gengur einungis í einum frakka í einu, eins og tekið er til orða. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft að stíga skrefið til fulls ef þú vilt að hjólin fari að snúast þér í hag. Vandinn er bara að vita hvað þú vilt og grípa gæsina þegar hún gefst. 19. feb. - 20. mars Fiskar Notaðu daginn til þess að flagga dyntum þínum. Mundu bara að leyna eng- um staðreyndum sem skipta máli. Ólafur Stefánsson hefur orð áþví á Leir að það sér verið að gera veður út af því hvort forsætis hafi gránað eitthvað skyndilega, eins og það skipti þjóðina einhverju máli, eða hvort verið sé að hrekkja hana. Nær væri að gera sér áhyggj- ur út af því hve tryggt stjórnar- samstarfið væri og í hvað stefndi með haustinu. – „ Það hafa ekki all- ir trú á að hún lifi árið út, stjórnin:“ Um gránað hár sér gera rell, en gæta síður að hinu, að stefnir í með stóra hvell á stjórnarheimilinu. Friðrik Steingrímsson bætti við: Sumir fara sí í hringi sjá ei fyrir næsta skref, aðrir vona að hún springi eru til í stjórnarþref. Ármann Þorgrímsson sagði að sér sýndist þetta allt í besta lagi, – „samfellt sólskin“: Sólin hyllir Bjarna Ben. birtu ljær og ekki spillir Andersen öðru nær. Helgi R. Einarsson skrifaði út af þessu með „brennivínið í búð- irnar“. – „Það er rétt að Helgi Selj- an orti ekki limruna, sem ég sendi þér um daginn en hún hefði ekki orðið til ef hans hefði ekki notið við. Nú reyni ég að setja mig aftur í hans spor. Búðir með brennivín fyrir bjórlegin fyllisvín er hættuleg þróun, heimska og sóun, en alls ekkert græskulaust grín. Og þessa lét Helgi fylgja með með yfirskriftinni „Steypa“: Um borgarbraginn er slagur. (Að byggja er allra hagur.) Burt með allt grænt, gróið og vænt. Lífið er dásamlegt, Dagur. Páll Imsland heilsaði leirliði und- ir svefninn: Sævaldur Sævar- á enda úr sjóróðri var nú að lenda með slatta af ýsu og slöttung af hnísu og kokkshræðu þó nokkuð kennda. Jón Ásgeirsson frá Þingeyrum reið burtu frá drykkjuskála. Þá varð honum að orði: Héðan glaður held ég frá húsi mammonsvina skuldafrí og skelli á skeið um veröldina. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af stjórnarheimilinu og borgarbragnum Í klípu MAGGA ÁTTI VIÐ HRÚGU AF VANDAMÁLUM AÐ STRÍÐA, Á VINNUSTAÐ ÞAR SEM ALLT VAR „SPIKK OG SPAN“. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG HEF EKKI ÁHYGGJUR. EF ÉG ER EKKI NÓGU GÁFAÐUR TIL ÞESS AÐ FÁ GÓÐA VINNU GET ÉG ALLTAF FARIÐ AÐ KENNA.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi ... að breyta tölvupóst- unum og sms-unum ykkar í úrklippubók. Grettir HRÓLFUR… VARÐ- TURNINN ÞARNA ER AÐ SÆRA MENNINA OKKAR! HANN GERÐI ÞAÐ, EN NÚNA SENDIR HANN OKKAR MÖNNUM SKEYTI! ÉG HÉLT AÐ ÓVINURINN HEFÐI KLÁRAÐ ÖRVARNAR? ANDLITIÐ ÞITT LÆTUR LAUK FARA AÐ GRÁTA!! ÞETTA ER SÁR T ÉG HEF MARGT AÐ BJÓÐA HEIMINUM EN HEIMURINN VILL ÞAÐ EKKI! HVAÐ SAGÐIRÐU? SPURÐU HEIMINN Víkverji nær varla upp í nef sér afbræði vegna bikarleiks KR og Stjörnunnar síðastliðinn sunnudag. Fyrsta mark þess leiks kom úr ólög- legri upphafsspyrnu og hefði aldrei átt að fá að standa. Til þess að bíta höfuðið af skömm dómarans kom jöfnunarmark KR síðan úr víta- spyrnu sem líklega hefði aldrei talist brot úti á velli. Stærsti leikur átta liða úrslitanna í næststærstu fót- boltakeppni hér innanlands mark- aðist því talsvert af nánast ófyrirgef- anlegum dómaramistökum. Það að dómarinn hafi hallað jafnt á bæði lið er ekki afsökun. x x x Ýmislegt annað í leiknum orkaðitvímælis fyrir bæði lið, en eftir stendur að dómari, tveir aðstoðar- dómarar og varadómari gátu ekki framkvæmt upphafsspyrnu þessa mikilvæga leiks skammlaust. Hér hefur áður verið bent á það að leik- menn sem standa sig ekki enda oft- ast á bekknum, og þjálfarar sem ekki ná viðunandi árangri mega oft- ar en ekki taka pokann sinn. Dóm- arar, sem nánast eyðileggja knatt- spyrnuleiki með röngum ákvörð- unum, mæta hins vegar oftast galvaskir og keikir í næsta leik eins og ekkert hafi ískorist, jafnvel með nokkra illa dæmda leiki í röð. x x x Því veltir Víkverji þessu fyrir sérað hann var tiltölulega nýbúinn að lesa viðtal við Guðna Bergsson, formann KSÍ, á fótbolta.net, þar sem sá var spurður hvers vegna mætingu á leiki í íslensku deildinni hefði hrakað svo mjög sem raun ber vitni á síðustu árum. Hann nefndi þar ýmsa þætti, eins og mikið fram- boð af beinum útsendingum eða það hvort bæta þyrfti aðstöðuna á vell- inum. Þá gæti jafnvel verið að miða- verðið væri of hátt, eða samanburð- urinn við fótboltann úti í heimi óhagstæður Íslandi. x x x Þetta eru allt saman góðar og gild-ar skýringar. Víkverji leggur þó til eina enn, sem er að hugsanlega sé fólk ekki spennt fyrir því að fara á völlinn til þess að sjá lélega dómara setja svip sinn á leikinn. vikverji@mbl.is Víkverji Drottinn er hlutdeild mín, segir sál mín, þess vegna vona ég á hann. (Harmlj. 3:24) Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk | Sími 551 5979 | lebistro.is Gypsy Jazz Með Gunnari H ilmarsyni og ge stum Alla föstudaga og laugardaga kl: 22:00 HAPPY HOUR eftir kl . 22:00 Django Nights

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.