Morgunblaðið - 06.07.2017, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Raftónlistarhátíðin Extreme Chill
Festival var fyrst haldin vestur á
Snæfellsnesi fyrir átta árum og
hefur verið haldin víða um land og
jafnvel úti í heimi. Þetta árið verð-
ur hátíðin haldin á sex mismun-
andi stöðum í Reykjavík og hefst í
dag með tónleikum í Lucky Rec-
ords og í Mengi, en fjörið stendur
svo fram á sunnudag 9. júlí. Fram
kemur mikill fjöldi innlendra og
erlendra listamanna, Mixmaster
Morris, Courtesy, Christoper
Chaplin, Studnitzky, Jónas Sen,
Jón Ólafsson & Futuregrapher,
Gyða Valtýsdóttir, Stereo Hypnos-
is, Reptilicus, Tonik Ensemble,
Mikael Lind, SiGRÚN, Poco
Apollo (Halldór Eldjárn) og fleiri.
Helsti gestur hátíðarinnar að
þessu sinni er þó hljómsveitin The
Orb, sem er ein áhrifamesta og
þekktasta rafhljómsveit heims, en
hún leikur á tónleikum á Húrra á
laugardagskvöld.
Ein áhrifamesta hljómsveit
danstónlistarsögunnar
Breska hljómsveitin The Orb er
ein áhrifamesta hljómsveit dans-
tónlistarsögunnar, allt frá því
fyrsta lag sveitarinnar, „Tripping
on Sunshine“ kom út 1988. Fyrsta
starfsár Orb naut sveitin tals-
verðra vinsælda í Bretlandi, átti
lög á vinsældalistum og seldi plöt-
ur í bílförmum, en minna hefur
farið fyrir henni síðustu ár.
Síðustu tvo áratugina hafa þeir
Alex Paterson og Thomas Fehl-
mann skipað Orb en Paterson
stofnaði hana árið 1988 með
Jimmy Cauty, sem þá var í KLF.
Cauty hætti fljótlega til að sinna
KLF, en Paterson hefur rekið Orb
síðan með ýmsum samstarfsmönn-
um og þá helst Fehlmann sem
stýrði einmitt upptökum á fyrsta
lagi Orb á sínum tíma. Meðfram
sveitinni hefur Paterson starfað
sem plötusnúður, kom meðal ann-
ars hingað til lands í ágúst 1999
og spilaði á Gauki á Stöng. Hann
hefur líka verið afkastamikill í
endurhljóðblöndun og þannig vél-
að um verk svo ólíkra listamanna
sem Big Audio Dynamite, Primal
Scream, Mike Oldfield, Lisa
Stansfield, Yellow Magic Orc-
hestra, U2, The Cranberries, Kill-
ing Joke, Can, Nine Inch Nails og
Serge Gainsbourg.
Breytingar eru mikilvægar
Í spjalli segir Alex Paterson að
samstarf við aðra tónlistarmenn
og einnig það að sýsla með verk
annarra sé sveitinni mjög mikil-
vægt. „Það hefur líka verið rauður
þráður í starfi okkar í gegnum ár-
in. Breytingar eru mikilvægar og
tónlist getur breytt lífi þínu. Þeir
sem smíða hljóð mega ekki setja
sér nein takmörk.
Það hefur alltaf skipt mig miklu
að fylgjast með því sem er að ger-
ast í kringum mig, að heyra hvað
aðrir eru að gera. Undanfarin ár
hefur Thomas [Fehlmann] verið
mjög önnum kafinn við önnur
verkefni en ég gert plötur með
ýmsum, The Dream, sem kom út
2007, vann ég með Youth [bassa-
leikara Killing Joke] og Tim Bran
[úr Dreadzone] og Metallic Sphe-
res, sem kom út 2010, með David
Gilmour [úr Pink Floyd] og
Youth.“
Náttúru- og umhverfishljóð
Áður en lengra er haldið með
viðtalið má skjóta inn að Fehl-
mann var aftur kominn á fullt með
sveitinni 2012 þear þeir félagar
tóku upp efni á tvær (frábærar)
breiðskífur með Lee „Scratch“
Perry, The Orbserver in the Star
House og More Tales from the
Orbservatory sem komu úr 2012
og 2013. Moonbuilding 2703 AD
kom svo út 2015 og COW / Chill
Out, World! á síðasta ári, en sú
skífa var meðal annars merkileg
fyrir það hvernig þeir nýttu upp-
tökur af náttúru- og umhverfis-
hljóðum, margar úr fórum Pater-
sons, sem efnivið, en hann segist
hafa skráð tónleikaferð sveitar-
innar um heiminn með farsíma og
hljóðnema og síðan hefðu þeir
sýslað með hljóðin jafnharðan.
Lög af þeirri skífu segir hann að
verði líka áberandi á tónleikunum
á Húrra.
Paterson segir að þeir félagar
séu nú í óða önn að vinna að
næstu skífu, nú í samvinnu við þá
Roger Eno, [ítalska tónlistar-
manninn Daniele] Gaudi og Jah
Wobble. „Það liggur því í augum
uppi að mér finnst samstarf mikil-
vægt. Ekki alltaf, en í það minnsta
núna,“ segir Paterson. Í framhaldi
af þessu rifja ég upp að hann
sagðist vera alæta á tónlist þegar
ég tók við hann viðtal fyrir átján
árum og hann segir að það hafi
ekkert breyst: „Hlustaðu bara á
útvarpsstöðina mína, www.-
WNBC.london sem sendir út allan
sólarhringinn.“
– Þú komst fyrst hingað sem
plötusnúður 1999 og Thomas Feld-
mann til að troða upp á Iceland
Airwaves 2008. Hvað manstu eftir
Íslandsferðinni?
„Ég hugsa til hennar með hlýju,
þetta var mjög skemmtileg og fjöl-
breytt ferð. Eitt af því sem ég
man vel eftir er að fljúga út á land
í smárellum og að hafa komið
fram á hiphopkvöldi í samkomusal
skóla – man einhver eftir því?“
Extreme Chill Festival hefst í
kvöld með tónleikum í Lucky
Records og Mengi, eins og áður er
getið. Á morgun verður kvikmynd-
in Lunar Orbit: The Orb Movie
sýnd í Bíó Paradís og þá eru tón-
leikar á Húrra um kvöldið. Tón-
leikar verða í Miðgarði – Center
Hotels og Húrra á laugardags-
kvöld og lokatónleikar hátíðar-
innar í Fríkirkjunni á sunnudag.
Frekari upplýsingar má sjá á
www.extremechill.org.
Raftónlist
í Reykjavík
Raftónlistarhátíðin Extreme Chill Festival hefst í dag
Raftónlist á sex stöðum í Reykjavík The Orb, ein
þekktasta rafhljómsveit heims, helsti gestur hátíðarinnar
Félagar Þeir Alex Paterson og Thomas Fehlmann hafa starfað saman í nærfellt þrjá áratugi.
Kitty Kovács kemur fram á Alþjóð-
legu orgelsumri í Hallgrímskirkju í
dag kl. 12. Á efnisskránni er Passa-
caglía og fúga í c-moll eftir J.S.
Bach og verk eftir Zsolt Gárdonyi.
Kitty Kovács er fædd í Gyor í Ung-
verjalandi 1980 og útskrifaðist 2003
frá tónlistardeild Széchenyi István-
háskólans þar í borg með diplómu í
píanó- og kammertónlist. „Eftir út-
skriftina starfaði hún sem undir-
leikari í Gyor og lagði síðan stund á
undirleikaranám við Ferenc Liszt
Akademíuna í Búdapest,“ segir í til-
kynningu. Hún hefur starfað sem
píanókennari og
organisti hér-
lendis frá 2006.
Undanfarin fjög-
ur ár hefur hún
stundað orgel-
nám við Tón-
skóla þjóðkirkj-
unnar og lauk í
vor kantorsnámi
þaðan. Hún hefur
verið kirkjuorganisti við Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum og kenn-
ari við Tónlistarskóla Vestmanna-
eyja frá 2011.
Leikur verk eftir Bach og Gárdonyi
Kitty Kovács
Myndlistarsýn-
ingin #276331054
– Story Provided
If Wanted verður
opnuð í dag kl. 18
í Listastofunni að
Hringbraut 119. Á
henni sýna saman
þau Kolbrún Inga
Söring og Mu-
stafa Boga sem er
tyrkneskur. Sýn-
ingin er sögð viðbragð innan stærra
hugtaks með titlinum The Fouth
Culture – A Micro Nation og að það
viðbragð fjalli um andleg og líkamleg
mörk, setji spurningarmerki við þau,
tilveru þeirra og áhrif á líf okkar í
samtímanum. Koblrún Inga og Boga
hafa skapað saman verkið „The
Fourth Culture – A Micro Nation“
sem er rými sem heldur utan um
gagnrýna sýn á samfélagið, skv. til-
kynningu. Frekari upplýsingar um
sýninguna má finna á Facebook.
Andleg og líkam-
leg mörk könnuð
Kolbrún Inga og
Mustafa Boga
Bryndís Hafþórs-
dóttir listfræð-
ingur heldur er-
indi í Listasafni
Reykjavíkur,
Hafnarhúsi, í
kvöld kl. 20 sem
ber yfirskriftina
„Íslensk list, af
því hún er til“.
„Galleristar og
aðrir sem sjá um
kynningu á íslenskri myndlist á er-
lendri grundu hafa lagt áherslu á
að list íslenskra myndlistarmanna
eigi erindi út fyrir landsteinana
burtséð frá bakgrunni þeirra, að
hún sé hvorki séríslensk né stað-
bundin. Í fyrirlestri sínum mun
Bryndís Hafþórsdóttir halda öðru
fram. Hún telur að list Ragnars
Kjartanssonar sem sé einmitt af-
sprengi samruna þess staðbundna,
hins íslenska bakgrunns, við hið al-
þjóðlega,“ segir m.a. í tilkynningu.
Skiptir bakgrunn-
urinn máli?
Bryndís
Hafþórsdóttir
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Skiptu um lit!
iGreen V4.02.005
umgjörð
kr. 14.900,-
Með iGreen umgjörðum getur þú útbúið
þá litasamsetningu sem þú vilt.
TOPPUR ehf
Bifreiðaverkstæði
TOPPUR er viðurkennt
þjónustuverkstæði fyrir
Skemmuvegi 34 • Kópavogi • Sími 557 9711 • toppur@toppur.is