Morgunblaðið - 11.07.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.07.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017 Það tekur enga stund að rétta nágrönnum okkar og vinum á Grænlandi hjálparhönd. Hringdu í 907 2003 og leggðu til 2.500 krónur í hjálparstarfið. Söfnunarreikningur Hjálparstarfs kirkjunnar: 0334-26-056200, kennitala 450670-0499. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum, segir ekki hægt að úti- loka að hætt verði við að leyfa lunda- veiðar í þrjá daga í næsta mánuði, verði niðurstaða seinna lundarallsins jafnsvört og hin fyrri var, sem sýndi einungis 40% ábúð lunda í Vest- mannaeyjum. „Við erum með þá stefnu að lundinn njótið ávallt vafans, en við erum líka með þá stefnu að ábyrgðina á veiðum og valið að veiða ekki eigi ekki að taka alfarið frá veiðimönnum,“ sagði Elliði í samtali við Morgunblaðið í gær. Meirihluti umhverfis- og skipulags- ráðs Vestmannaeyja, fulltrúar D lista, ákvað á síðasta fundi sínum að heimila lundaveiði í Vestmannaeyjum í þrjá daga í ágúst, 11., 12. og 13. Fulltrúi E- lista vildi fresta ákvörðun vegna þess hve lítið hefði sést af lunda síðustu vik- ur. Ábúð minnkaði mikið milli ára Fram kom í frétt hér í Morgun- blaðinu 22. júní sl. að niðurstaða fyrra lundaralls Náttúrustofu Suðurlands hefði verið sú að ábúð lunda í Vest- mannaeyjum hefði verið með léleg- asta móti. Einungis hefði verið orpið í um fjórar lundaholur af hverjum tíu í Eyjum. Í fyrra hefði ábúðin þar verið 77%. Það væri einungis í Dyrhólaey sem ábúðarhlutfallið væri lægra en í Vestmannaeyjum eða 34%. Annars staðar hringinn í kringum landið væri ástandið gott eða mjög gott í lunda- varpinu. Tekið var fram á Facebook-síðu Náttúrustofunnar eftir fyrra lunda- rallið að ábúðarhlutfallið hefði verið kannað fyrr í vor en áður. Þess vegna gæti ábúðarhlutfallið átt eftir að hækka, sérstaklega á Suðurlandi þar sem varp hefði byrjað seint undan- farin ár. Endanlegt ábúðarhlutfall þar fengist eftir seinna lundarallið sem yrði í lok þessa mánaðar. Í bókun meirihluta umhverfis- og skipulagsráðs um lundaveiðar frá því 4. júlí sl. segir m.a.: „Meirihluti ráðs- ins telur afar mikilvægt að stýring veiða á lunda í Vestmannaeyjum taki á öllum stundum fyrst og fremst mið af viðkomu stofnsins. Samkvæmt lög- um er veiðitímabil lunda að öllu jöfnu frá 1. júlí til 15. ágúst eða 46 dagar. Með tilliti til stöðunnar samþykkir ráðið að skerða veiðitímabilið um 94% og heimila eingöngu veiðar í 3 daga af 46, frá 11. ágúst til 13. ágúst. Er um að ræða sama dagafjölda og árin 2015 og 2016.“ Eru bjargveiðimenn hvattir „til þess að ganga fram af varkárni við veiðar og haga þeim með þeim hætti að lundinn njóti ætíð vafans.“ Morgunblaðið/Ómar Lundi Fyrra lundarallið sýndi einungis 40% ábúð lunda í Eyjum, sem þýðir að orpið hafi verið í 4 af hverjum 10 lundaholum. Í fyrra var ábúðin 77%. Vilja að lundinn njóti vafans Baldur Arnarson baldura@mbl.is Alls voru seldar rúmlega 103 þúsund gistinætur á Suðurnesjum fyrstu fimm mánuði ársins og er það 67% aukning frá sama tímabili í fyrra. Þær upplýsingar fengust frá Sýslumanninum á Suðurnesjum að samtals séu í gildi 111 gistileyfi á svæðinu. Þar af séu 7 á Ásbrú. Tölur um fjölda seldra gistinátta eru sóttar á vef Hagstofunnar. Hjörvar Pétursson, sérfræðingur hjá Hagstofunni, segir tölur um fjölda gistinátta í einstökum mánuð- um sóttar til valinna gististaða. Hann vísaði á töflu með sundurlið- un eftir tegund gistingar á Suður- nesjum. Samkvæmt henni skráði Hagstofan 31 gististað á Suðurnesj- um í maí í fyrra. Gistileyfin eru nú hins vegar tæplega þrefalt fleiri. Geta ekki fylgst með öllum Spurður út í þetta misræmi segir Hjörvar að Hagstofan fylgist grannt með helstu gististöðum. Hún hafi hins vegar ekki mannafla til að skrá umsvif allra sem hafa gistileyfi. Steinþór Jónsson, hótelstjóri á Hótel Keflavík, telur fjölgun gisti- staða á Suðurnesjum meginskýring- una á fjölgun seldra gistinátta. Þá hafi framboð á gistingu á Ásbrú og nærri flugvellinum sitt að segja. „Það hefur verið spenna á mark- aðnum og margir eru tilbúnir að nýta hvers konar gistingu sem er í boði. Fólk leitar þangað sem hag- kvæmara er að gista. Það losnaði um mikið húsnæði á Ásbrú við brott- hvarf varnarliðsins. Það húsnæði seldist síðan ódýrt. Kaupverðið var jafnvel langt undir byggingarkostn- aði og gistirými á Ásbrú er eftir því ódýrt,“ segir Steinþór en hlutfall Ís- lendinga í gistingu á Suðurnesjum var 12,5% fyrstu 5 mánuði ársins. Gistinætur á Suðurnesjum 2007–2017 Heimild: Hagstofa Íslands Janúar til maí Allt árið Íslendingar Útlendingar Hlutf. Íslend. Fjöldi alls Breyting Fjöldi alls Breyting 2007 10.018 8.840 53,1% 18.858 –– 53.823 –– 2008 8.831 8.178 51,9% 17.009 -9,8% 58.625 8,9% 2009 4.885 13.559 26,5% 18.444 8,4% 56.603 -3,4% 2010 5.590 11.993 31,8% 17.583 -4,7% 58.217 2,9% 2011 6.230 15.301 28,9% 21.531 22,5% 67.596 16,1% 2012 4.927 17.697 21,8% 22.624 5,1% 72.643 7,5% 2013 7.204 22.902 23,9% 30.106 33,1% 90.545 24,6% 2014 7.336 27.230 4,6% 34.566 14,8% 109.684 21,1% 2015 8.820 41.094 17,7% 49.914 44,4% 145.866 33,0% 2016 11.523 49.138 19,0% 60.661 21,5% 207.371 42,2% 2017 12.673 88.512 12,5% 101.185 66,8% –– –– Ljósmynd/Keilir/Birt með leyfi Ásbrú Vísbendingar eru um að Suðurnes séu að festa sig í sessi sem fyrsti og síðasti áfangastaður ferðamanna. Alls 111 með gisti- leyfi á Suðurnesjum  Seldar gistinætur í janúar til maí voru 67% fleiri en í fyrra Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Fyrstu fimm mánuði ársins 2017 hefur sárasóttartilfellum fjölgað talsvert umfram það sem sést hefur síðastliðin ár. Þetta kemur fram í fréttabréfi sóttvarnalæknis, Far- sóttafréttir. Alls hafa 23 einstakl- ingar á þessu ári greinst með sára- sótt, sextán karlmenn og sjö konur. Til samanburðar voru einungis sex einstaklingar greindir með sárasótt yfir sama tímabil 2014. Þá kemur einnig fram í fréttabréfinu að fjöldi þeirra sem greinst hafa með HIV, lekanda og klamydíu er líkur því sem sést hefur undanfarin ár. Fyrstu sex mánuði ársins greind- ist talsverður fjöldi einstaklinga með lekanda en þeim hefur þó fækkað frá því 2016. Karlar eru í meirihluta þeirra sem greinast með lekanda en alls hafa 20 karlar greinst á þessu ári og 13 konur. Í fréttabréfi sóttvarnalæknis er tekið sérstaklega fram að ónæmi lekanda fyrir sýklalyfjum sé vaxandi vanda- mál víða en fjölónæmir stofnar lek- andabaktería hafa enn sem komið er ekki greinst á Íslandi. Klamydía enn í sérflokki Klamydíusýkingar eru enn í sér- flokki af þeim kynsjúkdómum sem greinast hér á Íslandi og hafa 303 karlar og 403 konur greinst með klamydíu það sem af er árinu og er það svipaður fjöldi og hefur verið á síðustu tveim árum. Árið 2014 greindust hins vegar um 800 ein- staklingar með klamydíu á fyrstu sex mánuðum ársins og því rúmlega 100 færri einstaklingar sem grein- ast í ár. HIV-sýkingum fækkar Fjöldi þeirra sem greinst hafa með HIV-sýkingar á fyrstu sex mánuðum ársins er minni en á sama tímabili í fyrra. Af þeim sem hafa greinst á þessu hafa þrír verið samkynhneigðir, þrír fíkniefnaneyt- endur og tveir gagnkynhneigðir. Þrír eru af erlendu bergi brotnir og tveir af þeim voru með þekkta HIV- sýkingu fyrir komuna til landsins. Þá eru karlar í miklum meirihluta þeirra sem greinast með HIV- sýkingu á Íslandi en sjö af þeim átta sem greindust með HIV árið 2017 eru karlkyns. Þá voru sextán einstaklingar greindir með HIV á sama tímabili í fyrra eða um helm- ingi fleiri en í ár. Hins vegar greindust átta einstaklingar með HIV-sýkingu á fyrstu sex mánuðum ársins 2015 en fjórir greindust árið 2014. Starfshópur um kynsjúkdóma Heilbrigðisráðherra skipaði í mars síðastliðnum starfshóp til að stemma stigu við útbreiðslu kyn- sjúkdóma og HIV/alnæmis á Íslandi og hefur starfshópurinn verið í samráði við fulltrúa HIV-Ísland, forsvarsmenn Samtakanna 78, ásamt aðilum sem sinna forvarna- starfi hér á landi. Þá er áætlað að starfshópurinn skili tillögum sínum til heilbrigðis- ráðherra um aðgerðir til að sporna við útbreiðslu kynsjúkdóma á kom- andi hausti. Sárasótt í sókn á Íslandi  HIV-sýkingum fækkað um helming Morgunblaðið/Sigurgeir S. Forvörn Smokkurinn er ein besta forvörnin gegn kynsjúkdómum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.