Morgunblaðið - 11.07.2017, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Við verðum með skemmtilegt pró-
gramm. Megnið af því er samið af
flautuleikurum svo það er svolítið
sérstakt að því leytinu til,“ segir
Freyr Sigurjónsson flautuleikari
sem kemur fram á öðrum tón-
leikum Sumartónleikaraðar lista-
safns föður síns, Sigurjóns Ólafs-
sonar, í kvöld kl. 20.30. Með honum
leika flautuleikarinn Anna Noaks
og píanóleikarinn Leo Nicholson.
„Við Anna vorum saman í Royal
Northern College of Music í Man-
chester svo það má með sanni segja
að við séum af sama skólanum. Við
höfum þó þroskast hvort í sína átt-
ina síðan þá, hún hefur að mestu
leyti haldið til í London þar sem
hún hefur mikið verið að vinna við
upptökur fyrir kvikmyndir eins og
Harry Potter, James Bond og Lord
of the Rings. Ég hef starfað sem
fyrsti flautuleikari við sinfóníu-
hljómsveitina í Bilbao á Spáni frá
1982 og kennt við tónlistarháskól-
ann þar,“ segir Freyr.
„Píanóleikarinn Leo er miklu
yngri en við en hann lærði í sama
skóla og við Anna í Manchester.
Svo lærði hann í Trinity Laban tón-
listarháskólanum í Greenwich þar
sem Anna er kennari. Þar vann
hann sig upp úr hlutverki nemanda
og er nú kennari og undirleikari
þar í fullu starfi,“ segir Freyr og að
þau Noaks og Nicholson hafi boðið
honum að vera með masterklassa í
Trinity sl. jól sem hann hafi þegið.
„Við þrjú tókum okkur saman og
bjuggum til smá prógramm sem við
spiluðum í London og ætlum að
endurtaka núna. Það er mjög gam-
an að fá þetta tækifæri til að spila
með þessu góða fólki,“ segir Freyr.
Mjög fjölbreytt
Freyr segir efnisskrá tónleik-
anna vera mjög fjölbreytta. „Við
ætlum að byrja á verkinu Rigoletto
- Fantasie eftir Franz og Karl
Doppler til þess að fá stemningu í
fólkið frá byrjun. Svo ætlum við að
flytja Return to Avalon eftir David
Heath, en það er svolítið sérkenni-
legt og fjallar um þegar yfir
200.000 Katarar voru drepnir í
Avalon í Frakklandi á 13. öld,“ seg-
ir Freyr og nefnir að þau ætli líka
að leika Tríó fyrir tvær flautur og
píanó eftir Jean-Michel Damase.
„Anna hefur kynnst Damase per-
sónulega og því er tónlistin hans
henni mjög kær. Þetta verk hefur
sjaldan verið flutt en er mjög
áheyrilegt. Við endum svo á ein-
hverju óvæntu. Anna er með suður-
amerískar rætur svo við gerum lík-
lega eitthvað skemmtilegt með
það.“
Freyr nefnir að nú séu liðin tíu
ár frá því hann spilaði síðast á Ís-
landi. „Mér þykir mjög gaman að
spila fyrir íslenska áheyrendur því
þeir hafa svo mikinn tónlistar-
áhuga.. Þegar ég horfi úr fjarlægð
verð ég alveg undrandi á því hvað
það er mikið af góðum íslenskum
tónlistarmönnum bæði innanlands
og utan.“
Af mikilli tónlistarfjölskyldu
Honum finnst prógrammið á
Sumartónleikaröðinni mjög athygl-
isvert í ár en systir hans, Hlíf Sig-
urjónsdóttir, er einmitt listrænn
stjórnandi tónleikaraðarinnar.
Freyr segir þau systkinin vera
komin af mikilli tónlistarfjölskyldu í
Danmörku. „Þetta liggur samt í
blóðinu í Íslendingum, þetta kemur
ekki bara frá dönsku hliðinni.
Börnin mín eru að leggja fyrir sig
tónlist líka, sonur minn er í meist-
aranámi í fiðluleik í Leipzig í
Þýskalandi og dóttir mín er á leið
til London í framhaldsnám í flautu-
leik. Það er undarlegt með hana,
hún flýgur áfram með hæstu eink-
unir, ég fatta það ekki,“ segir
Freyr kíminn.
Eins og áður kom fram er Freyr
búsettur í Bilbao á Spáni og kveðst
hann hafa verið þar í 35 ár. „Það er
stutt í að ég fari á ellilífeyri en svo
er aldrei að vita hvað skeður á eft-
ir. Ég er búinn að fá æðislega mörg
tækifæri og horfi fram á við,“ segir
Freyr að lokum.
Spilar á Íslandi í
fyrsta sinn í 10 ár
Freyr Sigurjónsson heldur tónleika í listasafni föður síns,
Sigurjóns Ólafssonar, ásamt Önnu Noaks og Leo Nicholson
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í föðurhúsum Freyr í safni föður síns, Sigurjóns Ólafssonar, þar sem hann heldur tónleika í kvöld.
Nýrri sýningu eins þekktasta ball-
ettflokks heims, Bolshoi í Moskvu,
hefur verið aflýst en sú átti að fjalla
um eina mestu ballettstjörnu allra
tíma, Rudolf Nureyev. Frumsýn-
ingin átti að fara fram í dag en eng-
ar haldbærar skýringar hafa verið
gefnar á því hvers vegna sýningin
var blásin af, að því er fram kemur
á vef dagblaðsins The Guardian. Í
frétt blaðsins segir að orðrómur sé
á kreiki um að ástæðan sé opinská
umfjöllun í verkinu um samkyn-
hneigð dansarans sem þyki ekki
sæma hinum virta ballettflokki en
eins og þekkt er þá er andúð á sam-
kynhneigðum mikil í Rússlandi.
Þykir hneisa fyrir ballettflokkinn
að hætt hafi verið við sýninguna.
Bolshoi sendi frá sér tilkynningu
á laugardaginn var um að hætt
hefði verið við sýninguna en í henn-
ar stað yrði ballettinn Don Kíkóti
sýndur. Vladimir Urin, stjórnandi
Bolshoi-leikhússins, hefur gefið þá
skýringu að sýningin hafi ekki ver-
ið tilbúin og talsmaður Bolshoi hef-
ur gefið út þá yfirlýsingu að hún
muni ekki fara á fjalirnar fyrr en í
fyrsta lagi á leikárinu 2018-19, þar
sem næsta ár hefur þegar verið
skipulagt í húsinu.
Ballettinn um Nureyev samdi
Ilya Demutsky, dansana Yuri Pos-
sokhov en stjórnandi sýningarinnar
var Kirill Serebrennikov, þekktur
leikhúss- og kvikmyndaleikstjóri í
Rússlandi.
Hætt við sýningu Bolshoi um Nureyev
Mikilsvirtur Ballettdansarinn Rudolph
Nureyev lést árið 1973, 54 ára að aldri.
Hljómsveitin Green Day hefur sent frá sér yfirlýsingu
vegna tónleika sem hún hélt á hátíðinni Mad Cool Festi-
val í Madrid skömmu eftir að loftfimleikamaður hrapaði
þar til bana en hljómsveitin hefur verið gagnrýnd fyrir
að hafa komið fram vegna þess. Forsprakki sveitar-
innar, Billie Joe Armstrong, segir í yfirlýsingunni að
hljómsveitin hafi ekki vitað af banaslysinu fyrr en að
tónleikum loknum og að ef hún hefði vitað af því hefði
hún líklega aflýst tónleikunum. Loftfimleikamaðurinn
sem lést, Pedro Aunión Monroy, var í glerkassa sem féll
um 30 metra til jarðar að viðstöddum þúsundum gesta.
Vissu ekki af andláti loftfimleikamanns
Billie J. Armstrong
Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi.
Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is
BÍÓ
áþriðjudögum í Laugarásbíó
750
á allarmyndir nema íslenskar
kr.
FRÍ
ÁFYLL
ING
Á GOS
I
Í HLÉI
ÍSL.
TAL
SÝND KL. 10.20SÝND KL. 8 SÝND KL. 3.50
SÝND KL. 5, 8, 10.40
ÍSL. 2D KL. 4, 6
ENSK. 2D KL. 6, 8, 10