Morgunblaðið - 11.07.2017, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.07.2017, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017 ✝ Hörður Sigfús-son fæddist á Dalvík 2. apríl 1925. Hann lést á sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 28. júní 2017. Foreldrar hans voru Sigfús Páll Þorleifsson og Ás- gerður Jónsdóttir. Hörður átti fjögur systkini og eina uppeldissystur. Þau eru: Kristín (látin), Hlín (látin) Kári (látinn), Kári (býr í Reykjavík) og Ragn- heiður Sigvaldadóttir (býr á Dalvík). Hörður kynntist eiginkonu sinni Hermínu Þorvaldsdóttur eiga þrjú börn og níu barna- börn; Sigríður, fyrri maður hennar var Kristján Jóakimsson (látinn), þau ólu upp Kristján Einar Guðmundsson, hann á þrjú börn. Seinni maður Sigríð- ar er Jón Sigurgeirsson; Leifur Kristinn, kvæntur Steinunni Jó- hannsdóttur, þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn. Hörður vann á Bílaverkstæði Dalvíkur í rúmlega hálfa öld og sinnti auk þess ýmsum viðgerð- um og smíðum í bílskúrnum við heimili sitt, ýmist fyrir sjálfan sig eða aðra. Hann tók einnig virkan þátt í samfélaginu á Dal- vík með störfum sínum fyrir björgunarsveitina og slökkvilið- ið. Útför Harðar fer fram frá Dalvíkurkirkju í dag, 11. júlí 2017, og hefst athöfnin kl. 13.30. frá Víkurbakka á Árskógsströnd (d. 18.8. 2012) á Dalvík og gengu þau í hjónaband 9. júní 1946. Þau hófu bú- skap í Bjargi við Hafnarbraut 2 á Dalvík hjá foreldr- um Harðar en árið 1955 byggðu þau sér heimili að Goðabraut 16 þar sem Hörður bjó til dánardags. Hörður og Hermína eignuðust fjögur börn, þau eru: Valur, kvæntur Sigrúnu Friðriks- dóttur, þau eiga fjögur börn og sjö barnabörn; Ásgerður, gift Gunnþóri Sveinbjörnssyni, þau Elsku afi Hörður er farinn, sæll lífdaga. Afi var einn af þessum „gömlu“ Dalvíkingum sem allir könnuðust við, maður sem lifði miklar breytingar á samfélaginu, fæddur 1925. Afi lifði tímana tvenna, kreppuár og góðæri, heimsstyrjöld og mikla tækniþróun, m.a. á bíla- kosti landans en hann var alla tíð á kafi í einhverju bílastússi. Afi var einn af þeim sem tóku þátt í ýmsum flutningum, m.a. á mjólk úr Svarfaðardal þar sem ófærð og vitlaust veður reyndi á þol og kænsku afa og samferðamanna að komast á áfangastað, laga vélar og finna ráð. Afi var einmitt karlinn sem gjarnan fann ráð og leysti við- fangsefni og gat í mínum huga gert við allt. Afi var einn þeirra sem ferj- aði dráttarvélar að sunnan árið 1958 sem frægt er í sögunni og hann rifjaði stundum upp. Afi talaði oft um þær miklu breyt- ingar sem hafa orðið á sam- göngum, bílakosti og snjóruðn- ingstækjum. Jarðgöng, brýr og malbik komið til sögunnar. Afi vann lengi á Bílaverkstæði Dal- víkur, var þar verkstæðis- formaður lengi vel og átti marga samferðamenn sem minnast hans og verka hans með hlýju enda kenndi hann mörgum að gera við bíla. Afi keyrði og gerði við bíla allt sitt líf og ófáar stundirnar sem ég átti í skúrnum hjá honum er hann dyttaði að bílum og hjól- um eða hverju sem laga þurfti. Afi var lengi félagi í björg- unarsveitinni og á 40 ára af- mæli sveitarinnar undir lok síð- ustu aldar var afi heiðraður fyrir mikil og góð störf í þágu björgunarsveitarinnar. Það mætti lengi telja upp allt það sem afi tók sér fyrir hendur og gerði fyrir mig, en fyrst og fremst var hann mér einkar góður afi, langafi barnanna minna og tengdaafi konunnar minnar, afi sem alltaf var gott að vera í kringum, hlusta á frá- sagnir hans um gamla tíma sem og pælingar um tækniþróun. Í Goðabrautinni hjá afa og ömmu Hermínu sem lést 2012 var allt- af athvarf og hlýja. Afi var góð- ur afi og verður sárt saknað. Hann var hress og stálminn- ugur alveg fram á síðasta dag, keyrði enn en eftir skamm- vinna sjúkrahúsdvöl fékk hann hvíldina sem hann var tilbúinn í umvafinn afkomendum sínum. Hvíldu í friði afi minn og takk fyrir samfylgdina um lífið. Gunnþór, Kristbjörg, Ása, Ægir og Kári á Dalvík. Afi Hörður var snillingur, hjálpsamur, góður, fyndinn og alltaf tilbúinn að gera allt fyrir alla. Ég man eftir honum þegar ég var krakki, alltaf með upp- brettar skyrtuermar í prjóna- vesti að brasa eitthvað úti í skúr, hann var ekkert hættur að vinna þegar hann kom heim af Bílaverkstæðinu. Það var alltaf hægt að fara til afa ef eitthvað bilaði, t.d. ef keðjan fór af hjólinu, þá skrapp maður bara í skúrinn til afa og hann reddaði öllu. Síðan ég man eftir mér vann afi á Bílaverkstæði Dalvíkur og var ég svo heppin að fá að vinna með honum tvö sumur, en hann afi benti mér á að sækja um vinnu á lagernum á Bílaverkstæðinu þegar mig vantaði vinnu sumarið eftir 9. bekk. Ég fékk vinnuna og var það ótrúlega skemmtilegt sum- ar, þar kynntist ég manninum mínum sem ég er gift í dag – allt afa að þakka eða að kenna, eins og hann sagði svo oft sjálf- ur. Mér fannst þetta mjög skemmtilegt að geta verið svona samferða afa og fá að fylgjast með honum í vinnunni, sitja með honum í kaffi og svo framvegis. Afi var alltaf að dytta að öllu, húsinu, bílunum og fleiru. Allt var snyrtilegt og fínt hjá afa og hver hlutur átti sinn stað, aldrei óreiða á neinu og allra síst í bílskúrnum. Afi var duglegur að endurnýta hluti, ósjaldan kom hann með eitt- hvað úr gámunum, t.d. þegar Ari, elsti strákurinn minn, var lítill, kom afi færandi hendi með bláa plastdráttarvél sem hann hafði hirt í gámunum, það vantaði á hana stýri en afi lík- legast reddaði stýri á vélina og færði drengnum í sveitina og enn er þessi vél til. Hann hafði ótrúlega gaman af því að fylgj- ast með langafastrákunum sín- um og ekki skemmdi fyrir að þeir höfðu gaman af bílum og að skrúfa í sundur dót, fikta í tökkum og brasa. Hann smíðaði líka heilu fólksbílskerrurnar úr efniviði sem aðrir voru búnir að henda. Sparksleðarnir eru líka ein- kenni afa, hann er búinn að smíða þá nokkra og erum við svo heppin að eiga einn eftir hann. Afi var mikill berjakarl og nýtti hverja stund til að komast í ber á haustin, hann smíðaði líka berjatínur úr nið- ursuðudósum sem hann hefði örugglega getað sett á markað ef hann hefði viljað. Mér fannst dásamlegt að fá að fylgja afa síðustu metrana og fá að kveðja hann, en var vissulega farin að hlakka til að heimsækja hann á Dalbæ, þar sem hann vonaðist eftir að eyða síðustu árunum sínum. Ég er samt þakklát fyr- ir það að hann fékk að fara svona heill, með allt á hreinu fram á síðasta dag með húm- orinn á sínum stað og ótrúlega hress þrátt fyrir þau veikindi sem hann gekk í gegnum síð- ustu dagana. Elsku besti afi Hörður, takk fyrir allt. Kristín. Þegar ég kvaddi afa Hörð síðastliðið haust vegna vetrar- dvalar í Kanada, átti ég alveg eins von á að það yrði okkar hinsta kveðja enda þessi ung- lingur kominn á tíræðisaldur. Í vetur áttum við síðan mörg Skype-samtöl á laugardögum þegar hann var í mjólkurgraut hjá mömmu og pabba. Þessi rafrænu samtöl voru okkar ís- lensku hádegisfréttir, því afi var algerlega með puttann á púlsinum varðandi málefni líð- andi stundar, hvort sem það hét pólitík, veður og færð eða fasteignamarkaðurinn á Dalvík. Svo leið veturinn og vorið og það var ekki fyrr en daginn sem ég kom heim frá Kanada sem ljóst var að hann væri á förum. Afi var með eindæmum starfsamur og verklaginn. Það lék allt í höndunum á honum og auk þess var hann afar vand- virkur. Ég minnist þess að eitt sinn bauðst ég til að slá lóðina í Goðabrautinni. Ég vandaði mig sérstaklega, vissi að það dygði enginn slóðaháttur. Ég lauk slættinum og gekk heim sem eru varla meira en 200 metrar. Ég var ekki komin upp að horni þegar ég heyri sláttuvél- ina fara aftur í gang, ég hafði ekki vandað mig nógu mikið. Afi vann á Bílaverkstæðinu á Dalvík í 52 ár. Þegar vinnudegi lauk hélt hann áfram í bíl- skúrnum fram að kvöldmat og eftir fréttir. Á slaginu sjö var matur en áður tók afi góðan tíma í að þvo sér, hann var snyrtimenni og settist aldrei óhreinn að matarborðinu þrátt fyrir að vinnan væri þannig að oft væru menn skítugir upp fyrir haus, en ekki afi. Ég var oft í kvöldmat hjá ömmu og afa og í minningunni var kvöldmatartíminn allsherj- arskilafundur á viðburðum dagsins, þó aðallega fréttir af mönnum og málefnum í sveitar- félaginu. Ógjarnan voru sögur af hrakförum bænda í Svarf- aðardal eða Skíðadal sem komu á verkstæðið með landbúnaðar- tæki í lamasessi, sumir virtust koma trekk í trekk sem skrif- aðist ýmist á ómögulegt teg- undarheitið, Zetor eða Ford, eða miður laghentan bóndann. Sumir virtust ekki kunna með vélar að fara og það er kannski eins gott að ég man ekki lengur á hvaða bæjum þeir bændur bjuggu. Ég drakk þetta allt saman í mig óafvitandi án þess að leggja nokkuð til málanna en amma fussaði duglega yfir ósköpunum. Það var ekki fyrr en ég var orðin fullorðin og fór að rifja upp þessa kvöldmat- artíma að ég gerði mér grein fyrir því hlutverki sem Bíla- verkstæðið gegndi fyrir sam- félagið á Dalvík á þessum tíma. Þangað áttu flestir einhvern tímann erindi og sumir oftar en aðrir, þarna var lífæð sam- félagsins ekki síður en á bryggjunni. Á sumrin átti mað- ur stundum erindi niður eftir, ýmist til að biðja afa að lagfæra hjólið eða að veiða í skurðunum sunnan við verkstæðið og í minningunni var ys og þys við verkstæðið. Hurðir stóðu gjarnan opnar því bílum var ýmist ekið inn eða út; mjólk- urbílar, vörubílar, dráttarvélar, sláttuvélar og kannski ekki að furða að afi vildi helst ekki sjá okkur þvælast þarna niður frá Hörður Sigfússon Mikið hefur verið rætt og ritað síðustu vikur og mán- uði um mengun á Suðurnesjum, nánar í Reykja- nesbæ og þá sérstaklega um mengun frá kolaveri/- brennslu við Helguvík. Hver hélt að fyrir 20 árum að Íslend- ingar færu að brenna heilu skipsfarmana af kolum líkt og gert var á Íslandi 1930? Og þar að auki á nokkrum stöðum á landinu? Þetta eru mjög mikil mistök og það er ekki of seint að snúa til baka og loka þessum stöðum. Þessir aðilar fá nið- urfellingu á sköttum og tollum, þetta er skömm og hneisa fyrir Ísland sem ferðamannaland og leiðandi land á alþjóðavettvangi sem grænt land. Það er hrylli- legt að vita til þess að Ísland sé mengaðasta land í Evrópu á hvern íbúa og landið þarf að ganga með betlistaf og kaupa losunarheimild til að mæta alþjóðaskuldbindingum sínum um minnkun á losun á meng- andi efnum frá verksmiðjum og bílum. Það er sorglegt að heyra að álverið á Reyðarfirði borgi ekki tekjuskatt og arður af sölu á orku frá Kárahnjúkum rétt sleppi til að borga af lánum sem tekin voru til að byggja þetta umdeilda orkuver. Ég las viðtal við forstjóra Landsvirkjunar um þetta og þar kom þetta skýrt fram. Stóriðjufíklar á Íslandi vildu álver við Helguvík og kolaspú- andi verksmiðju númer tvö. Sem betur fer hefur álver þar verið blásið af. Trúlega endar það sem geymsla bílaleigubíla á mörgum hæðum, en það er raunhæft í dag á meðan þessi ferðamanna- straumur er til landsins. En mér segir svo hugur að Íslendingar eigi eftir að rústa hon- um með hárri skattlagningu og heimsins hæsta matarverði. Heim- ila þarf innflutning matvæla, tollfrían og án verndartolla, þá fyrst nautakjöt, hænsnakjöt og svínakjöt. Þetta springur með álögum sem nú eru. Ferða- menn reka upp öskur er þeir kaupa mat á veitingahúsum og í Bónus og þó er það nú lægst þar. Sá risi frá USA sem opnaði í Garðabæ í vor, sýndi Íslend- ingum hvaða okur var og er á Íslandi. Vonandi verður það bara byrjunin. Gott væri að fá Walmart hingað til landsins og Tesco frá Bretlandi. Það er lág- mark að fólkið í landinu eigi greiðan aðgang að matvælum á réttu verði. Í dag er virðisauka- skattur og okur á matvælum og burt með verndartolla. Ég bjó í Bretlandi og sá að virðisauka- skattur var ekki á matvælum og þannig verðlagningu vantar okkur á Íslandi. En ég hef ekki sagt skilið við Suðurnes og mengun þar. Ferðamannaflóðið og sú vinna sem skapast á Keflavíkur- flugvelli er næg fyrir Keflavík og nágrenni, en í dag er starf- andi erlent vinnuafl þar. Nýja flugstöð vantar þar innan fárra ára, terminal 2, og væri þar möguleiki á einkavæðingu. Einnig vantar nýja flugbraut þar og það þarf að hefjast handa strax því tíminn líður. Mengun hefur alla tíð verið til staðar á þessu svæði sl. 65 ár. Bandarísk herstöð var þar og gífurleg mengun kom og kemur þaðan. Allt sorp og af- gangsolía var grafin þar. Árið 1986 kom í ljós að gífurlegt magn af olíu hafði lekið í jörð þar á vissum tíma, sumir töluðu um heilu skipsfarmana. Á því ári kom allavega í ljós að vatns- ból frá Fitjum í Ósabotnum voru menguð og flekkurinn færðist hægt yfir allan skagann, gervihnattamyndir sýndu það. Vatn er því sótt í land Grinda- víkur fyrir allt svæðið. Ameríski herinn greiddi vissa upphæð þar, en þeir viðurkenndu ekki bótaskyldu og var þetta kallað aðstoð „aid“. Tíðni krabbameins hefur alla tíð verið hæst á landsvísu í Keflavík og Njarðvík, þar er herstöðin í fyrsta sæti sem or- sakavaldur. Árið 1980 ritaði Sólveig Þórðardóttir ljósmóðir í Keflavík grein í blað um háa tíðni fósturláta á þessu svæði og hroðalega vansköpun á börn- um, en Svíar höfðu ekki séð an- að eins, nema frá Víetnam. Þá var hennar grein talin vera af pólitískri andúð á herstöðinni og vegna þess að hún sat í bæj- arstjórn fyrir Alþýðubanda- lagið. Í blaðagrein í staðarmiðli staðfesti Konráð, fv. yfirlæknir, þetta, mengað vatn var talið sökudólgurinn. Fengu foreldrar bætur? Svarið er nei. Krabbameinstíðni er ekki Marlboro-manninum einum að kenna. Sökin er herstöðvarinn- ar. Eftir árið 2006 fór fram hreinsun í stöðinni. Klór með fergingu sorphauga, ruslið er þar enn. Því er ljóst að fleiri kolaverksmiðjur munu stór- auka tíðni krabbameins í ná- grenni sínu, ekki var á það bæt- andi. Mengun í og við Reykjanesbæ Eftir Virgil Scheving Einarsson Virgill Scheving Einarsson » Tíðni krabba- meins hefur alla tíð verið hæst á landsvísu í Keflavík og Njarðvík. Höfundur er landeigandi og býr á Efri-Brunnastöðum, Vatnleysuströnd. Ugglaust ekki allan tímann sem athyglin er vak- andi (ekki t.d. þegar Morg- unblaðið er lesið) en margir halda því fram að fjöldi fólks hafi meiri áhuga á allt öðr- um miðlum en út- varpi og dagblöðum. Maður þekkir samt marga, ekki síst auglýsingafólk sem þætti bæði gagnlegt og fróðlegt að vita á hvaða útvarpsstöðvar, ef ein- hverjar, þjóðin er að hlusta dags daglega. Ætli margir hlustendur flakki milli jafn- margra stöðva og ykkar ein- lægur? Alla vega ekki mamma sem núorðið hefur tækið sitt eingöngu stillt á blessað Ríkis- útvarpið, rás 1. Sjálfur hef ég vitaskuld þá afburðarás í fyrsta sæti fremsta vals í bíl- tækinu. Rás 2 kemur svo næst formsins vegna en ég hlusta æ sjaldnar á þá vísu rás, ólíkt Gullbylgjunni í þriðja sæti sem endurútvarpar einnig helstu fréttatímum Bylgjunnar. Er nú verður undan að láta í fjórða vali fyrir hinni fram- sæknu útvarpsstöð sem nýlega setti upp sendi á FM 97,3 fyrir Reykjavíkursvæðið og er nefnd Útvarp Suðurland FM 96,3. Afar vel heppnaður send- ir þar varðandi hljómgæði og dagskráin jafnan prýðileg, sér- staklega á föstu- dagskvöldum seint, þegar mel- ódíur og kántrý ráða ríkjum. Eftir sem áður verður BBC World Service fimmti valkost- urinn í tækinu mínu – þessi frá- bæra rás gamla heimsveldisins sem endurvarpað er út um all- an heim og gott að vita að við Íslendingar erum í hópi þeirra frjálsu þjóða sem ná útsending- unum. Sjötta og síðasta for- gangsrásin er svo Útvarp Saga sem oft spilar skemmtilegustu músíkina að mínu mati, hvað svo sem segja má um sumt annað útvarpsefni þeirrar stöðvar. Blessunarlega eru auk þess í vali aðrar sex stöðvar til- tækar á FM sviðinu, auk fleiri sem fyrirfinnast ef svo ber und- ir. Útvarp er sem sagt áberandi í mínu lífi – og margra annarra veit ég vel – en væri nú ekki bæði gagn og gaman að vita nokkuð nákvæmlega á hvaða stöðvar þjóðin hlustar– eða hvort hún hlustar á nokkrar út- varpsrásir. Morgunblaðið hefur oft í tím- ans rás treyst félagsvís- indadeild Háskóla Íslands til að framkvæma skoðanakannanir á sinn kostnað, er stundum hafa farið furðu nærri sanni. Er sá vettvangur hinn eini rétti til að varpa fram spurn- ingunni: „Á hvaða útvarps- stöðvar hlustar þú?“ Hvenær, hversu lengi, hvar og e.t.v. fleira sem alvörurannsókn gæti leitt í ljós. Manni finnst þó að mennta- stofnunin, hver svo sem hún yrði, ætti að bera kostnaðinn af framkvæmd könnunar- innar, enda fróðlegt félags- fræðiverkefni á ferðinni. Og þar fyrir utan tengist Morg- unblaðið nú útvarpsstöð er ný- lega kom inn á markaðinn af fádæma afli, endurnýjuð með atvinnufólki á þessu sviði. Mér sem slíkum dettur allt- af í hug Háskólinn á Bifröst þegar merkar kannanir ber á góma en vísast er Háskólinn í Reykjavík vænlegasti kostur- inn þegar á allt er litið. Núverandi mæling á hlustun takmarkaðs fjölda út- varpsstöðva er ekki boðleg í nútíma samfélagi sem tekið hefur stórfelldum breytingum á aðeins örfáum árum. Alvöru rannsókn á útvarpshlustun er beinlínis brýn. Hlustum við öll á útvarp? Eftir Pál Pálmar Daníelsson Páll Pálmar Daníelsson » Alvörurannsókn á útvarpshlust- un er beinlínis brýn. Höfundur er leigubílstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.