Morgunblaðið - 11.07.2017, Blaðsíða 14
EM KVENNA Í FÓTBOLTA 201714
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
1.395
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði frá 365
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
Greinaklippur
frá 595
585
Strákústar
á tannbursta
verði
Garðkló Garðskófla
595
1.995
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
frá 1.995
Garðslöngur
í miklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
4.995
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar,
sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar,
stauraborar.........
Léttar og góðar hjólbörur
með 100 kg burðargetu
Úðabrúsar
í mörgum stærðum
frá 995
999
Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Sláttuorf
3.999
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Það er kominn mikill spenningur í
hópinn en við hugsum bara um einn
dag í einu eins og er,“ segir Sif Atla-
dóttir, miðvörður kvennalandsliðs-
ins og leikmaður sænska liðsins
Kristiandstad. Þegar Morgunblaðið
náði tali af Sif var hópurinn nýkom-
inn til Reykjavíkur eftir að hafa
dvalið við æfingar á Selfossi um ný-
afstaðna helgi.
Sif segir ferðina hafa nýst vel til
æfinga en hafi ekki síður verið mikil-
væg til þess að þétta hópinn.
„Það var mjög góður undirbún-
ingur að fara til Selfoss yfir helgina
og ná að æfa vel. Þetta var að sjálf-
sögðu líka gert til þess að þétta hóp-
inn enn frekar fyrir komandi átök í
Hollandi,“ segir Sif og bætir við að
nú sé öll einbeiting hópsins á fyrsta
leik mótsins.
„Nú erum við alveg farnar að ein-
beita okkur að 18. júlí þegar leikur-
inn á móti Frökkum fer fram. Við er-
um náttúrlega í þessu fyrir þetta
enda langskemmtilegast að spila
svona stóra leiki.“
Fjölskyldan kemur til Hollands
Sif gerir ráð fyrir að fjölskyldan
muni fylgja sér út og segist vona að
tími gefist til þess að eyða tíma með
henni. „Bæði fjölskyldan og tengda-
fjölskyldan ætla út skilst mér, það
verður ábyggilega ekki mikill frítími
á meðan á mótinu stendur en von-
andi nær maður að eyða einhverjum
tíma með sínum nánustu.“
Spurð um hverjum beri að þakka
fyrir þann mikla árangur sem
stelpurnar hafa náð segir Sif ýmsa
hafa stutt rækilega við bakið á
landsliðinu og komið því á þann stað
sem það er á í dag.
„Allt starfsfólk, aðrir leikmenn,
fjölskylda og fleiri. Það má í raun-
inni segja að þetta sé sigur heildar-
innar enda hafa allir staðið sig afar
vel. Svo má að sjálfsögðu ekki
gleyma sjúkraþjálfurunum sem eru í
heimsklassa,“ segir Sif sem vill ekki
gefa upp hvaða leikmenn kvarti
mest undan sjúkrateyminu. „Það er
engin af þeim sem kvartar enda eru
þær allar grjótharðar. Það er bara
alvörutöffarar í þessu liði.“
Það kemur maður í manns stað
Á undanförnum misserum hefur
landsliðið orðið fyrir mörgum
skakkaföllum sökum meiðsla hjá
lykilmönnum liðsins.
Nýjasta tilvikið er meiðsli lands-
liðsfyrirliðans, Margrétar Láru, og
segir Sif að hún vonist til þess að
aðrir leikmenn stígi inn og grípi
tækifærið í hennar fjarveru. „Þetta
er auðvitað ótrúlega sorglegt en það
er víst þannig í íþróttunum að maður
kemur í manns stað. Ég vona að þær
stelpur sem stíga inn eigi eftir að
nýta tækifærið og hjálpa liðinu,“
sagði Sif að lokum.
Það eru bara
alvörutöffarar
í þessu liði
Öll einbeiting á fyrsta leik mótsins
Morgunblaðið/Golli
Sif Atladóttir Hún segir mikinn
spenning vera í hópnum.
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Ný stuðningsmannatreyja frá Hen-
son fyrir Evrópumótið í knattspyrnu
í Hollandi kemur senn í verslanir. Að
sögn Halldórs Einarssonar, eiganda
Henson, er unnið hart að því að af-
greiða pantanir til verslana.
Verða treyjunar komnar í sölu í
verslunum Pennans og hjá Heim-
kaupum í þessari viku. Þá hafa einn-
ig sérstakir treflar og derhúfur verið
framleiddar fyrir Evrópumótið í
Hollandi sem hefst 16. júlí.
Halldór Einarsson, eigandi Hen-
son, segir að treyjan hafi skírskot-
anir til Hollands en að blái liturinn
og Íslandi sé vitanlega í aðal-
hlutverki.
Halda uppi stemningunni
Halldór segir í samtali við
Morgunblaðið að það sé mikill mark-
aður fyrir treyjurnar, en hann telur
að á milli fimm og sex þúsund stuðn-
ingsmannatreyjur hafi selst í fyrra
fyrir Evrópumótið í Frakklandi. Rík
ástæða sé til að halda þeirri stemn-
ingu uppi sem myndaðist í fyrra.
„Það er ekkert vit í öðru en að
sýna kvennalandsliðinu þá virðingu
að leggja mikinn metnað í þessa
framleiðslu. Það er engin spurning
að það skiptir feiknamáli að lands-
liðið finni fyrir stuðningnum og að
stúkan sé vel blá á litinn,“ segir
Halldór. Fátt er því til fyrirstöðu
fyrir Íslendinga að klæða sig í
stuðningsmannatreyjuna eða þá í
landsliðsbúninginn sjálfan og
mynda bláa heild á móts við hina
appelsínugulu búninga sem gest-
gjafarnir í Hollandi klæðast, eins og
þekkt er.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tólfan Friðgeir Bergsteinsson, einn meðlima stuðningsmannasveitarinnar Tólfan, skartar hér nýju stuðnings-
mannatreyjunni sem hönnuð var fyrir Evrópumótið í Hollandi. Treyjurnar eru allar merktar númerinu tólf.
Henson býr til treyjur
fyrir EM í Hollandi
Hátt í sex þúsund treyjur seldust fyrir EM í Frakklandi
Klæðnaður Stuðningsmannatreyja Tólfunnar, auk trefils og derhúfu, fyrir
EM í Hollandi. Bláklæddir Íslendingar munu vafalaust setja svip á mótið.
Friðgeir Bergsteinsson, meðlimur
stuðningssveitarinnar Tólfan, seg-
ist í samtali við Morgunblaðið vera
mjög sáttur með útkomu stuðnings-
mannatreyjunnar fyrir Evrópu-
mótið í Hollandi.
Hann segir stemninguna innan
Tólfunnar vera mjög góða. Það
megi meðal annars sjá á heimasíðu
Tólfunnar þar sem ítarlegir pistlar
hafa verið skrifaðir um mótið sem
framundan er. Þá er hann viss um
að sú stemning sem myndaðist á
landinu síðasta sumar við EM í
Frakklandi haldi áfram í Hollandi.
„Stelpurnar eiga það líka einfald-
lega skilið.“
Að sögn Friðgeirs hefur fylgj-
endum Tólfunnar fjölgað umtals-
vert síðustu ár. „Þetta hefur stækk-
að frá nokkrum
einstaklingum í
það, miðað við
hvernig þetta
var í Frakklandi,
að þjóðin er orð-
in að heilli Tólfu,
finnst mér. Það
vinna allir saman
í heild.“
Aðspurður hve
langt hann telji
íslenska liðið geta náð á mótinu,
segir Friðgeir það vera erfitt að
spá um það. Hann vilji frekar
spyrja að leikslokum og segist
treysta þjálfurum og leikmönnum
landsliðsins fullkomlega til að skila
góðum árangri í Hollandi.
axel@mbl.is
Stemningin mjög góð hjá Tólfunni
Friðgeir
Bergsteinsson