Morgunblaðið - 11.07.2017, Page 8

Morgunblaðið - 11.07.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017 Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 30 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Glæsilegir sólskálar sem lengja sumarið og gera sælureitinn ómótstæðilegan Yfir 40 litir í boði! Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Sólskálar - sælureitur innan seilingar Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími 554 4300 • Fax 564 1187 198 4 - 2016 ÍS LEN SK FRAML EI ÐS LA32 Marine Le Pen var kynnt í hefð-bundnum fjölmiðlum sem „hægri ofstækismaður.“    Hún vildi losnavið evruna og draga úr óðagoti í málefnum innflytj- enda.    En í innanlands-málum vildi hún styrkja stöðu verkalýðshreyfinga og hækka laun þeirra sem minna hafa á kostnað hinna.    Hér á landi sem víðast annarsstaðar kokgleyptu grunnir fjölmiðlungar fyrirsagnirnar og endurprentuðu þær.    Óskaplega urðu allir glaðir þeg-ar bankaundrið Macron, sem hafði auðgast ótrúlega á braski á örfáum árum, tók upp byltingar- kyndilinn gegn öfgafrúnni.    Hann lofaði ýmsu en hæst þóþrennu:    Að taka hart á Pútín.    Að vinda ofan af evruvandanum.   Koma flóttamannavandanum úrsögunni án allra öfga.    Þessi mál eru nú í biðstöðu.    Fyrsta verkið er að lækka skattaá þeim sem hæstar hafa tekj- urnar.    Það er eftir að hann bauð Trumpað fagna með sér falli Bastill- unnar. Emmanuel Macron Byltingarmaður banka STAKSTEINAR Donald Trump Veður víða um heim 10.7., kl. 18.00 Reykjavík 13 heiðskírt Bolungarvík 9 alskýjað Akureyri 11 heiðskírt Nuuk 10 heiðskírt Þórshöfn 11 skýjað Ósló 17 alskýjað Kaupmannahöfn 18 heiðskírt Stokkhólmur 22 heiðskírt Helsinki 21 léttskýjað Lúxemborg 21 skýjað Brussel 20 léttskýjað Dublin 16 skýjað Glasgow 13 rigning London 23 skúrir París 19 rigning Amsterdam 20 skúrir Hamborg 15 rigning Berlín 20 skýjað Vín 27 léttskýjað Moskva 17 skúrir Algarve 25 heiðskírt Madríd 31 heiðskírt Barcelona 28 léttskýjað Mallorca 32 heiðskírt Róm 30 heiðskírt Aþena 33 heiðskírt Winnipeg 22 alskýjað Montreal 21 skýjað New York 25 skýjað Chicago 23 þrumuveður Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 11. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:31 23:36 ÍSAFJÖRÐUR 2:50 24:27 SIGLUFJÖRÐUR 2:31 24:12 DJÚPIVOGUR 2:51 23:16 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég sit hér úti í sólinni og er að reyna að ákveða hvaða hest ég á að fara með út. Skipti um skoðun á korters fresti enda gætu allir þrír hestarnir sem ég var með á Íslands- mótinu gert góða hluti úti,“ segir Guðmundur Frið- rik Björgvinsson, tamningamaður á Efri-Rauðalæk. Hann var at- kvæðamikill á Ís- landsmótinu á Gaddstaðaflötum og er nú að ákveða hvaða hest hann fer með á Heimsleik- ana í Hollandi þar sem hann fær tækifæri til að verja heimsmeistaratitil sinn. Guðmundur og Glúmur frá Þór- oddsstöðum voru undir Íslandsmets- tíma í 100 metra skeiði, á 7,08 sek- úndum. Metið er þó enn óstaðfest. Ólafur Þórisson, formaður Hesta- mannafélagsins Geysis, segir að völl- urinn hafi verið mældur og allar upplýsingar verði sendar til Lands- sambands hestamannafélaga sem staðfesti metið eftir að hafa farið yfir öll gögn. Ólafur staðfestir að brautin hafi verið rétt rúmlega 100 metra löng og telur að það ætti ekki að spilla metinu, af því að skekkjan var í þá áttina. Guðmundur hefur verið með Glúm frá Þóroddsstöðum í 5-6 mánuði. Hann segist hafa þjálfað hann mikið og hugsað vel um fóðrun. „Hann er orðinn sterkur, eins og topp- íþróttamaður. Ég þjálfa hann eins og ég myndi þjálfa sjálfan mig ef ég ætti að fara í svona keppni.“ Hörkukeppni Ólafur segir að mótið hafi gengið vel. Góð hross hafi verið í öllum greinum og góður árangur náðst. Tímarnir í skeiðgreinum hafi verið sérlega góðir og hörkukeppni í öllum hringvallargreinum. Töltið var sterkt. Bergur Jónsson á Kötlu frá Ketilsstöðum sigraði með einkunninni 8,94, Guðmundur Björgvinsson og Straumur frá Feti urðu í öðru sæti með 8,83. Af öðrum úrslitum má nefna að Þórarinn Ragnarsson og Spuni frá Vesturkoti sigruðu í fimmgangi. Artemisa Bertus og Korgur frá Ing- ólfshvoli urðu efst í fjórgangi en þar sem Artemisa er ekki íslenskur rík- isborgari hlaut Jakob Svavar Sig- urðsson Íslandsmeistaratitilinn en hann sat Júlíu frá Hamarsey. Ljósmynd/Rangárbakkar Samningar Landsmót hestamanna árið 2020 verður á Rangárbökkum. Gengið var frá samningum um mótshaldið á mótinu um helgina. Glúmur undir Íslandsmeti  Góður árangur á Íslandsmóti á Hellu Guðmundur F. Björgvinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.