Morgunblaðið - 11.07.2017, Side 10

Morgunblaðið - 11.07.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017 Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Varmadælur & loftkæling Verð frá aðeins kr. 180.000 m.vsk Midea MOB12 Max 4,92 kW 2,19 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,44) f. íbúð ca 90m2.. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir • Hægt að fá WiFi sendi svo hægt sé að stjórna dælunni úr GSM síma Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Umsóknum um aðstoð til Umboðs- manns skuldara fjölgaði á fyrri helmingi ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Alls bárust 778 um- sóknir frá janúar til júníloka samanborið við 759 á sama tíma í fyrra. Á því ári fjölgaði mikið fólki í fjárhagsvandræðum sem leitaði til umboðsmanns miðað við árið þar á undan. Í júní sl. bárust umboðsmanni 116 umsóknir sem er sami fjöldi og í júní í fyrra. 51 óskaði eftir ráðgjöf og 36 sóttu um greiðsluaðlögun. Stór hluti umsækjenda er fólk sem er yngra en fertugt Stór hluti þeirra sem sækja um greiðsluaðlögun, ráðgjöf eða aðra aðstoð er fólk sem er yngra en fer- tugt, að sögn Eyglóar Kristjáns- dóttur, fjármálastjóra hjá Umboðs- manni skuldara. ,,Yngra fólk er stærra hlutfall af hópnum núna heldur en áður,“ segir hún ,,Við sjáum að hópurinn hefur breyst töluvert frá því sem áður var. Það er mun minna um fasteignaskuldir og meira um almennar skuldir.“ Hins vegar breytist kynjahlutfallið meðal umsækjenda lítið. Standa í skilum með húsaleigu en láta frekar annað bíða Spurð hvort ástæður umsókna séu í mörgum tilvikum þær að um- sækjendur eigi í erfiðleikum með að greiða af húsaleigu segir hún að flestir standi í skilum með húsaleigu en láti þá eitthvað annað frekar bíða. Algengt er að fólk sé komið í alvarleg fjárhagsvandræði vegna neysluskulda, yfirdráttarlána og smálána, kortaskulda o.fl. þegar það leitar aðstoðar hjá umboðsmanni. Samkvæmt nýrri samantekt um- boðsmanns voru alls 116 umsóknir um greiðsluaðlögun í vinnslu innan embættisins þann 1. júlí, þar sem verið var að taka afstöðu til þess hvort samþykkja ætti umsókn eða ekki. Í júní voru 33 umsóknir sam- þykktar og 13 var synjað. Skyndileg aukning í mars Umboðsmanni skuldara hafa nú borist 6.976 umsóknir um greiðslu- aðlögun einstaklinga frá stofnun embættisins. Á bak við hverja umsókn getur verið annars vegar einstaklingur og hins vegar sambýlisfólk/hjón og eru því fleiri einstaklingar sem sótt hafa um greiðsluaðlögun einstaklinga en fjöldi umsókna segir til um. Marsmánuður á þessu ári sker sig sérstaklega úr þegar litið er á fjölda umsókna hjá umboðsmanni en þá bárust embættinu óvenju- margar umsóknir eða alls 184 sam- anborið við 121 umsókn í mánuðin- um á undan og 136 umsóknir í sama mánuði í fyrra. Umsóknum um ráð- gjöf þar sem leitað er vægari úr- ræða en greiðsluaðlögunar fjölgaði mikið í mars og einnig umsóknum um greiðsluaðlögun og um erindi og fræðslu. Að sögn Eyglóar er engin einhlít skýring á þessu en hugsanlega hafi haft áhrif að starfsmenn Umboðs- manns skuldara hófu í febrúar sér- staka kynningu og fræðslu sem hugsanlega hafi losað einhvern uppsafnaðan tappa og því hafi fleiri umsóknir borist í kjölfar þess. Af þeim málum sem er lokið hjá umsjónarmönnum á árinu hefur náðst samningur í 75% tilfella, að því er fram kemur á minnisblaði umboðsmanns en heimild til greiðsluaðlögunarumleitana hefur verið felld niður í 14% tilfella. Frá 1. ágúst 2010 hefur Umboðs- manni skuldara borist 6.629 um- sóknir um ráðgjöf, þar sem leitað er vægari úrræða en greiðsluaðlög- unar. Nú eru 39 ráðgjafarmál til vinnslu hjá embættinu. 51 umsókn barst í júní. Fleiri leita aðstoðar en í fyrra  ,,Yngra fólk er stærra hlutfall af hópnum núna heldur en áður“  778 umsóknir til Umboðsmanns skuldara á fyrri helmingi ársins  Minna er um fasteignaskuldir og meira um almennar skuldir Fjöldi umsókna í janúar–júní eftir árum Heimild: Umboðsmaður skuldara 1.000 800 600 400 200 0 2013 2014 2015 2016 2017 Ráðgjöf ErindiGreiðslu- aðlögun einstaklinga Fjárhagsað- stoð v/skipta- kostnaðar Heildarfjöldi 1.112 1.079 557 759 778 Greiðsluaðlögun einstaklinga Fjöldi Greiðsluaðlögun einstaklinga Í vinnslu hjá UMS 116 Í vinnslu hjá umsjónarmanni 66 Vinnslu lokið 6.794 Þ.a. samningar 3.160 Þ.a. synjað 943 Þ.a. afturkallað 787 Þ.a. niðurfellt í kjölfar athugasemda umsjónarmanns 787 Þ.a. staðfestir nauða- samningar af dómstólum 57 Þ.a. nauðasamningi synjað af dómstólum 22 Þ.a. lokið án samninga 87 Niðurfelld mál 951 Alls 6.976 Heimild: Umboðsmaður skuldara Guðni Einarsson gudni@mbl.is Enn sem komið er hefur sumarið reynst kríunni fremur hagstætt. Fari svo fram sem horfir má reikna með að talsvert komist upp af ungum. Mikið hefur sést af ungri kríu. „Kríunni hefur reitt vel af í sumar. Nú er stöðugur sílaburður í ungana og talsvert komið af ungum,“ sagði Sæmundur Kristjánsson í Rifi. Krían varp þar óvenjusnemma eða í byrjun júní. Sæmundi þykir það hvað varpið var snemma benda til þess að krían hafi haft nóg æti í vor. Fyrst í vor var sáralítið af fugli. Svo helltist krían yfir upp úr mán- aðamótum maí og júní. Sæmundur sagði að kríuvarpið væri mun þéttara nú en það var áður. Hann sagði að nú bærust fregnir af makríl fyrir vestan, en þrátt fyrir það væri enn nóg af síli. Sæmundur vill meina að snurvoðarveiðar hafi mikil áhrif á sandsílið. Síðasta sumar hafi verið lítil snurvoðarveiði í Breiðafirði og nú sé talsvert af síli. Kannski sé samhengi á milli gengis sandsílisins og snurvoðarveiða. Líklega komast upp ungar „Krían er með unga og þeir fyrstu eru alveg komnir að flugi,“ sagði Guðmundur Örn Benediktsson á Kópaskeri. Hann sagðist sjá daga- mun á því hvað krían hefði mikið æti. „Það er síli hér í flóanum. Það var stór torfa við Kópasker fyrir fáeinum dögum. Þá öfluðu allir og var land- burður af fiski allan daginn. Svo er eitthvað minna nú. Krían er að tína einhver smákrabbadýr í fjörunni. Ég held að það hljóti að komast upp ein- hverjir ungar núna,“ sagði Guð- mundur. Hann sagði að kríurnar væru ekki allar starfandi við egg eða unga. Ein- hverjir fuglar væru í biðstöðu, en sá hópur væri ekki stór. Guðmundur sagði að ársgamlar kríur kæmu síðar en fullorðnu kríurnar. Fyrstu ung- fuglarnir koma oftast um 20. júní. „Það kom dálítil ganga af þeim 30. júní. Maður sá af þeirri göngu að það komust upp fleiri ungar í fyrra en mörg árin á undan. Þetta hefur verið í lægð alveg síðan 2005,“ sagði Guð- mundur. „Það er enn hægt að gera sér vonir um að þetta sleppi til og verði þokkalegt, en það er ekki útséð um það. Sum ár hafa ungarnir drep- ist eftir að þeir urðu fleygir. Þeir þurfa áfram þjónustu, þó að þeir séu aðeins farnir að fleyta sér.“ Kríuvarpið lítur vel út „Kríuvarpið lítur vel út á Hala í Suðursveit og er fínt á Höfn en við Jökulsárlón er það bara um þriðjung- urinn af því sem var í fyrra. Í heild virðist vera þokkalegt ástand á krí- unni enn sem komið er,“ sagði Brynj- úlfur Brynjólfsson á Höfn í Horna- firði. Krían virðist hafa orpið allt að hálfum mánuði seinna í vor í A- Skaftafellssýslu en undanfarin ár. Í gær lágu kríur víða á eggjum eða voru með litla unga. Um vika er síðan fyrstu kríuungarnir fóru á flug og í öllum vörpum eru ungar að taka flug- ið. Þá er tímabært að hefja merking- ar. Brynjúlfur og fleiri merktu 120- 130 kríuunga í gær. Krían var að bera einhver síli, sem gætu verið loðna, í unga sína í gær. Á Höfn hafa þær gefið ungum sínum smásíld í bland við sílin. Ekki hefur borið á miklum unga- dauða, enn sem komið er. Brynjúlfur kvaðst aldrei hafa séð jafn margar ársgamlar kríur á Höfn og í sumar. Það bendi til góðrar afkomu í fyrra. Kríuvarp víða gengið vel það sem af er  Sílaburður á Snæfellsnesi  Minna varp við Jökulsárlón Morgunblaðið/Ómar Kría Ungi nýskriðinn úr eggi og egg sem bíður þess að unginn brjótist út. Þannig er ástandið víða í kríuvörpum landsins. Myndin var tekin á Álftanesi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.