Morgunblaðið - 11.07.2017, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
Opið virka daga
10-18
laugardaga
11-15
Klassísk gæða
hönnun á
góðu verði
8 Vöruflokkar · 200 PLU númer
· Sjálfvirk dagsetning og tími
· Hitaprentun · Rafrænn innri strimill
· Mjög auðveld í notkun
Verð kr. 49.900,-
ORMSSON.IS LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800
99 vöruflokkar · Allt að 2000 PLU númer · Rafrænn innri
strimill 9000 línur · Stór LCD skjár · SD kortarauf – hægt að
flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími
· Hitaprentun · íslenskur strimill· Mjög auðveld í notkun
Verð kr. 74.900,-
99 vöruflokkar · Allt að 2000 PLU númer ·
Rafrænn innri strimill 9000 línur · Stór LCD
skjár · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á
PC · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun ·
íslenskur strimill· Mjög auðveld í notkun
Verð kr. 79.900,-
XE-A217BXE-A207BXE-A147B
ÖRUGGAR OG
ENDINGARGÓÐAR
40 ár á Íslandi
BAKSVIÐ
Gísli Rúnar Gíslason
gislirunar@mbl.is
„Það er alveg óhætt að segja að síð-
ustu tvær vikurnar hafi verið mjög
blómlegar í sölu á pakkaferðum hjá
okkur. Salan í ár hefur verið mjög góð
og vinsælustu staðirnir bókuðust
hratt upp í forsölu,“ segir Tómas J.
Gestsson, framkvæmdastjóri Heims-
ferða, í samtali við Morgunblaðið.
„Við höfum sjaldan selt eins mikið.
Fólk vill bara komast út strax og
næstu tvær vikurnar eru mjög þétt
bókaðar.“
Metfjöldi í ferðalögum
Fyrstu sex mánuði ársins flugu
tæplega 290 þúsund Íslendingar út í
heim frá Keflavíkurflugvelli sem er
tæplega 15% aukning á milli ára. Apr-
íl, maí og júní voru allir metmánuðir í
fjölda íslenskra farþega sem flugu frá
Keflavíkurflugvelli, en flestir ferðuð-
ust til útlanda í júní eða rúmlega 62
þúsund. Þetta kemur fram í tölum frá
Ferðamálastofu. Aðeins einu sinni áð-
ur hafa fleiri Íslendingar flogið frá
Keflavíkurflugvelli en það var í júní í
fyrra þegar Íslendingar fylgdu lands-
liðinu í fótbolta til Frakklands.
„Það hefur verið mikil aukning hjá
okkur í nær allar ferðir sem við bjóð-
um upp á og sala frá áramótum hefur
verið mjög góð. Ég hugsa að þetta sé
með betri árum í langan tíma,“ segir
Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Ferða-
skrifstofu Íslands, sem á og rekur Úr-
val-Útsýn, Sumarferðir og Plús ferðir.
Fleiri ferðir á ári
„Það hefur verið mjög mikil ferða-
gleði hjá Íslendingum undanfarið.
Fólk virðist líka fara út oftar en einu
sinni á ári. Þá er farið í stutt sumarfrí
og síðan jafnvel borgarferð eða sér-
ferð. Fjölbreytnin í ferðum hefur auk-
ist hjá fólki og það fer utan oftar á ári,
enda hefur orðið gífurleg fjölbreytni í
framboði á ferðum undanfarin ár,“
segir Þórunn.
Aðspurð hvort heimatilbúnar ferðir
og deilihagkerfið hafi bitnað á sölu
pakkaferða undanfarin ár segir Þór-
unn svo ekki vera. „Sala á pakkaferð-
um hefur bara aukist. Það var spenn-
andi nýjung að bóka allt sjálfur en ég
held að margir hafi brennt sig á mis-
tökum, sem ekki hefur verið sagt frá,
en það segja allir frá mistökum hjá
ferðaskrifstofum. Núna eru margir
Íslendingar bara búnir að prófa þetta.
Það hefur verið vöxtur hjá ferðaskrif-
stofum og að mínu mati mun hann
halda áfram.“
Ekki bara sólarferðir
„Júnímánuður hjá okkur er sá
stærsti í sögu fyrirtækisins. Það eru
mjög margir að leita í sólina en tón-
leikaferðir hafa líka verið mjög vin-
sælar hjá okkur. Undanfarið höfum
við verið með 100-200 manns í tón-
leikaferðum um hverja helgi. Auk
þess er stór hópur að fara til Hollands
að fylgjast með EM í knattspyrnu,“
segir Þór Bæring Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Gaman ferða í samtali
við Morgunblaðið. „Það hefur verið
mikið um bókanir hjá stærri hópum
sem eiga kannski erfitt með að bóka
sjálfir sökum stærðar. Þá erum við í
mörgum tilfellum að tala um stórar
fjölskyldur, 20-30 manns. Við höfum
tekið eftir því að það er uppsöfnuð
ferðaþörf hjá slíkum hópum.“
Pakkaferðir seljast vel
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ferðaþörf Aldrei hafa jafn margir haldið utan fyrri hluta árs.
290 þúsund Íslendingar flugu frá Keflavíkurflugvelli fyrstu sex mánuði ársins
Algengt að farið sé út tvisvar á ári Uppsöfnuð ferðaþörf hjá stórfjölskyldum
Sprenging í sólarferðum
» Undanfarnar tvær vikur hef-
ur orðið sprenging í sölu
pakkaferða til sólarlanda.
» Næstu vikur eru þéttbók-
aðar hjá mörgum ferðaskrif-
stofum.
» Fjölbreytni ferða hefur auk-
ist mikið og undanfarnar helg-
ar hefur fjöldi Íslendinga farið
utan á tónleika.
Auglýsingastofan Kontor Reykjavík
hlaut nýverið tilnefningu til Brand
Impact-verðlaunanna í flokki lyfja-
og snyrtivöruauglýsinga fyrir Alvo-
gen-auglýsingar sínar.
Auglýsingarnar hafa vakið mikla
athygli fyrir snjalla og einfalda út-
fræslu en listamaðurinn Noma Bar
sá um myndskreytingar.
„Í auglýsingalínunni fyrir Alvo-
gen er myndmálið sterkt og fær að
njóta sín. Það getur verið mjög snú-
ið að gera auglýsingar fyrir lyfja-
geirann þar sem strangar reglur
gilda um hvað má og hvað má ekki
segja,“ segir Sigrún Gylfadóttir,
Creative Director hjá Kontor
Reykjavík. „Það er mikill heiður að
fá þessa tilnefningu og við bíðum
spennt eftir verðlaunaafhending-
unni sem fer fram í London í sept-
ember.“
Auglýsingalínan byrjaði í lok
2015 og hefur nú þegar hlotið tvær
tilnefningar til FÍT og fimm tilnefn-
ingar til Íslensku auglýsingaverð-
launanna, Lúðursins, og unnið ein
fyrir magalyfið Eradizol.
Brand Impact-verðlaunin eru al-
þjóðleg verðlaun sem veitt verða í
fjórða skipti í ár. Aðstandendur
keppninnar eru tímaritið Computer
Arts og vefsíðan Creative Bloq.
Kontor Reykjavík var stofnuð ár-
ið 2015 af hjónunum Sigrúnu Gylfa-
dóttir og Alex Jónssyni sem áður
voru hluthafar í og störfuðu hjá
auglýsingastofunni Hvíta húsinu.
„Heiður að fá þessa tilnefningu“
Lyfjaauglýsingar Kontor Reykjavík tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna.
● Friðrik Rafn Lar-
sen, sérfræðingur í
vörumerkja-
stjórnun, segir að
ef takist að byggja
Ísland upp sem
sterkt gæða-
vörumerki geti það
virkað sem vörn
gegn gengis-
sveiflum. „Ef tekst
að byggja vöru-
merkið Ísland upp þannig að fólk tengi
það við mikil gæði þá verðum við ekki
eins háð ferðamönnum í leit að ódýrri
upplifun, svokölluðum sparnaðar-
túristum. Með þessu gætum við fengið
jafnari straum fólks sem leitar eftir
einstakri upplifun sem það er til í að
borga fyrir,“ segir Friðrik í samtali við
Morgunblaðið. Friðrik hefur mikla
reynslu af því að auka verðmæti orku
með notkun vörumerkjastjórnunar og
heldur ráðstefnu um málið í haust.
„Vörumerki sem bjóða upp á takmörk-
uð gæði, eins og íslensk náttúra er,
þau kosta meira,“ bætir Friðrik við.
„Við getum tekið Rolex-úr sem dæmi.
Þar er búið að hlaða inn svo miklu
vörumerkjavirði að fólk er tilbúið að
borga hátt verð fyrir það. Það sama
þurfum við að gera fyrir Ísland. Sterk
vörumerki gera vörur aðlaðandi og þá
skiptir verð neytendur mun minna
máli – við samþykkjum hærra verð.
Þannig hefur Ísland sterkara aðdrátt-
arafl og gengi krónunnar skiptir minna
máli. Við tryggjum okkur eftirspurn
óháð gengi.“ tobj@mbl.is
Vörumerkið Ísland vörn
gegn gengissveiflum
Friðrik Rafn
Larsen
STUTT