Morgunblaðið - 25.07.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.07.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2017 Heildarlausnir Fyrir hótel, gistiheimili, dvalarheimili, veitingahús, veisluþjónustur, heilsugæslustofnanir o.fl. Sími 788-2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is HOTELREKSTUR ALLT Á EINUM STAÐ Ný bryggja er í smíðum við Fá- skrúðsfjarðarhöfn og er ráðgert að byggingu hennar ljúki í september nk. Bryggjan er 90 metra löng og um tíu metra dýpi er við hana. Bryggjan er við nýbyggingu Loðnuvinnslunnar sem hýsir nýja frystiklefa fyrirtækisins. „Þetta er dálítið sérstök bryggja að því leyti að hún er úr steyptum einingum. Þetta er staurabryggja, en þó ekki úr timbri. Það eru stálstaurar og svo er steypt í þá,“ segir Steinþór Pétursson, framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafnar. Er þessi leið farin vegna dýptar hafnarinnar. Áætlaður kostnaður við fram- kvæmdirnar er á bilinu 230 til 250 milljónir króna. Steinþór segir að bryggja af þessari gerð þurfi ekki að vera dýrari en bryggja með stál- þili. „Það er talað um að þetta sé heldur dýrara, en ég er ekki viss um að það verði. Það er orðinn um- talsverður kostnaður við að taka efni í fyllingu sem þarf á bak við stálþil, þannig ég er ekki viss um að þetta sé dýrari kostur,“ segir hann. Byggja nýja bryggju við Fáskrúðsfjarðarhöfn  Áætlaður kostn- aður 230 til 250 milljónir króna Morgunblaðið/Albert Kemp Bryggjan Það er sérstakt við bryggjuna að hún er saman sett úr steyptum einingum. Dýpt hafnarinnar gerir að verkum að ákveðið var að fara þá leið. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Íbúðahótelið Reykjavík Residence hef- ur tekið tvö uppgerð íbúðarhús í notk- un í sumar í miðborg Reykjavíkur. Fé- lagið er nú alls með 47 hótelíbúðir. Félagið tók 11 nýjar hótelíbúðir í notkun á Lindargötu 11 í júní. Þær eru í friðuðu húsi sem var lyft upp um hæð með steyptum kjallara. Þá var byggð- ur stigagangur við nyrðri enda húss- ins. Um miðjan júlí tók félagið svo í notkun 9 hótelíbúðir í bakhúsi á Veg- húsastíg 9a. Fyrir var félagið með út- leigu á Veghúsastíg 7 og 9. Við gististaðina á Veghúsastíg er vínbar, Port 9, sem var opnaður í nóv- ember sl. Vínbarinn er í bakhúsi sem hýsti áður svið Söngskólans í Reykja- vík. Ragnar Jónsson, jafnan kenndur við Smára, rak þar smjörlíkisgerð og bókaútgáfuna Helgafell. Félagið Sút- arinn ehf. rekur vínbarinn. Það heitir eftir sútaraverkstæði Bergs sem var í portinu á fyrri hluta síðustu aldar. Með íbúðir í sex húsum Þá er Reykjavík Residence með 20 hótelíbúðir í tveimur húsum á Hverfis- götu 21 og 45, samtals 47 íbúðir í sex húsum. Félagið hefur gert upp öll þessi hús. Ein móttaka er fyrir allar íbúðir RR á Hverfisgötu 45. Því er um að ræða eitt íbúðahótel í mörgum húsum. Þórður Birgir Bogason, fram- kvæmdastjóri Reykjavík Residence, segir félagið áforma að innrétta 20 hótelíbúðir á Hverfisgötu 78. Það verð- ur í framhúsi og í nýju bakhúsi sem verður sambyggt bakhlið Laugavegar 59, sem er verslunarhúsið Kjörgarður. Austan við Hverfisgötu 78, eða í portinu á bak við Kjörgarð, áformar fé- lagið Vesturgarður, sem er að endur- byggja Kjörgarð, að innrétta hótel- íbúðir. Þá hyggst hótelkeðjan ION Hotels byggja hótel vestan við fyrir- hugað bakhús á Hverfisgötu 78. Þórður Birgir segir aðspurður að styrking krónu hafi haft þau áhrif að gestir hótelsins dvelji skemur í borg- inni og fari í ódýrari ferðir út á land. Opnuðu tvo nýja gististaði í sumar  Íbúðahótelið Reykjavík Residence færir út kvíarnar í miðborg Reykjavíkur  Er nú með 47 íbúðir  Félagið áformar nýtt hótel á Hverfisgötu 78  Þar er fyrirhugað að hafa 20 íbúðir í tveimur húsum Morgunblaðið/Árni Sæberg Þaksvalir Gestir nýs íbúðahótels við Veghúsastíg geta notið útsýnis. Morgunblaðið/Árni Sæberg Í miðborginni Vínbarinn Port 9 er í uppgerðu bakhúsi við Veghúsastíg. Morgunblaðið/Árni Sæberg Á Veghúsastíg Bakhúsin hafa verið endurbyggð. Morgunblaðið/RAX Númer 9a Svona leit bakhúsið út í jan. 2016. Morgunblaðið/Árni Sæberg Lindargata 11 Nýr gististaður á Lindargötu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Uppgert Veghúsastígur 7 er hvíta húsið en gula húsið er númer 9. Bakhús númer 9a var endurgert. Morgunblaðið/Golli Áform Hverfisgata 78 er í vinstra horninu. Ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um frekari leit að jarðneskum leifum Nika Begadas, sem talinn er af eftir að hafa farið í Gullfoss sl. miðvikudag. Björgunarsveitarmenn frá Björgunarfélaginu Eyvindi á Flúðum munu þó hafa eftirlit með nokkrum stöðum í Hvítá, samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Suðurlandi. Leitað var á stóru svæði á laugardag, allt frá Laugarási og vel upp fyrir Brattholt. Fengu leitarmenn á jörðu niðri meðal annars aðstoð frá þyrlu- sveit Landhelgisgæslu Íslands sem sendi tvær þyrlur til leitar er fyrst var tilkynnt um atvikið. Þá notuðu björgunarmenn einnig dróna, bifreiðar og báta við leitina auk þess sem gönguhópar gengu meðfram ánni. Engin ákvörðun tekin um frekari leit

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.