Morgunblaðið - 25.07.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.07.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2017 Sendu okkur fimm toppa af Merrild umbúðum og þú gætir unnið gjafabréf fyrir utanlandsferð að upphæð 100.000 kr. Að auki verða dregnar út 10 kaffikörfur á tímabilinu. Dregið verður í júní, júlí og ágúst. Gildir fyrir alla Merrild pakka. Toppar af öllum Merrild umbúðum gilda. Þátttökuumslög er að finna í öllum verslunum. Úrslit verða birt á Facebook-síðu Merrild á Íslandi, og þar er einnig að finna nánari upplýsingar um leikinn. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samtök iðnaðarins hafa komið á framfæri formlegum kvörtunum yfir framgöngu byggingarfulltrúa í Reykjavík. Fundið er að fjölda at- riða varðandi málsmeðferð og fram- komu starfsfólks byggingarfulltrúa. Verktakar og veitingamenn sem Morgunblaðið ræddi við sögðu sömu sögu. Framganga embættismanna hefði kostað fyrirtæki mikið fé. Fjöldi verkefna hefði tafist. Samtök iðnaðarins sendu form- lega kvörtun vegna þessa með tölvubréfi til Péturs Ólafssonar, aðstoðarmanns Dags B. Eggerts- sonar, borgarstjóra Reykjavíkur, 22. maí sl. Niðurstaðan er að fulltrúum samtakanna verður boðið til fundar um málið í síðari hluta ágústmánaðar, eða um einum árs- fjórðungi síðar. Samtökin finna að ýmsu í störfum byggingarfulltrúa. „Samskipti við embætti byggingarfulltrúans í Reykjavík skipta félagsmenn Sam- taka iðnaðarins í byggingariðnaði miklu máli. Fyrirtækin spanna allt svið byggingargreinarinnar frá hönnun til framkvæmdar. Að und- anförnu hefur borið æ meir á óánægju með samskipti við embætti byggingarfulltrúa,“ sagði í bréfinu til borgarstjóra. Þverrandi þjónustulund Síðan eru talin upp dæmi: Erf- iðara sé að ná sambandi við starfs- menn, afgreiðsla mála taki lengri tíma, þjónustulund fari þverrandi, framkoma starfsmanna í garð þeirra sem þjónustu þurfa sé nei- kvæð, flækjustig hafi verið aukið, málum sé frestað vegna óviðeigandi athugasemda, viðvarandi óljós og margræð skilaboð séu gefin þegar málum sé frestað; þar sé jafnvel á ferð breytileg afstaða sem byggist á persónulegri afstöðu viðkomandi starfsmanns. Máli sínu til stuðnings benda Samtök iðnaðarins á tölfræði um af- greiðslu mála hjá byggingarfulltrúa árið 2015. Vísað er til skýrslu bygg- ingarfulltrúa um afdrif mála á 48 af- greiðslufundum árið 2015. Samkvæmt henni voru samtals 3.352 dagskrárliðir teknir fyrir árið 2015. Þar af var 1.759 dagskrárlið- um frestað, eða um 52% dagskrár- liða. Samtökunum reiknast til að beinn kostnaður vegna þessara frestana hafi verið allt að 165 milljónir króna árið 2015. Við þá útreikninga er horft til beins kostnaðar. Við það bætist kostnaður við tafir. Þær er erfiðara að meta til fjár. Til dæmis var fjöldi hótelherbergja tekinn síð- ar í notkun en ætlað var. Með þetta í huga óskuðu sam- tökin eftir greiningu borgarinnar á „þessari óásættanlega lélegu skil- virkni“. Í öðru lagi þurfi að leggja mat á að „hve miklu leyti megi rekja þetta ástand til slakra vinnu- bragða viðskiptavina embættisins“. Í þriðja lagi þurfi að „krefjast end- urskilgreiningar á hlutverki emb- ættisins frá því að vera í regluvörslu í það að vera þjónustu- og ráðgjafa- stofnanir í þágu borgaranna“. Í fjórða lagi þurfi að „stórbæta ráð- gjöfina og samskiptin, ekki aðeins með útgáfu leiðbeininga heldur og með námskeiðum og kynningar- fundum um það sem betur má fara“. Taki jafnvel margar vikur Meðal þess sem Samtökin gagn- rýna er hversu langan tíma það taki að fá afgreidd leyfi vegna afnota af borgarlandi. Tekið er dæmi af því að ef verk taki tvo daga, þá þurfi „framkvæmdaaðilar að bíða í allt að 30 daga eftir leyfi; leyfi sem áður voru afgreidd nánast yfir borðið meðan beðið var“. „Við höfum skiln- ing á því að það þurfa að vera regl- ur, t.d. varðandi lokanir þar sem al- menningsfarartæki fara um, en ef þetta á að taka svona langan tíma þá veigra menn sér við að fá leyfi og reyna heldur að gera þetta í leyf- isleysi. Leyfi getur svo verið veitt ákveðinn dag en þann dag viðrar ef til vill ekki til verksins, t.d. að skipta um rúðu, og þá þurfa menn að fara aftur í biðröðina. Það hlýtur að vera hægt að stytta og einfalda þetta ferli,“ segir í bréfinu. Verktakar sem Morgunblaðið ræddi við í trausti nafnleyndar til- tóku ýmis dæmi um það sem þeir álíta slæm vinnubrögð byggingar- fulltrúa. Tekið var dæmi af verki sem skipulagsyfirvöld óskuðu eftir. Að beiðni þeirra hefði verið lagt í hönnun og annan undirbúning fram- kvæmda. Þegar á hólminn var kom- ið hefði framkvæmdin ekki verið leyfð. Fyrir vikið hefði verktakinn tapað tugmilljónum króna. „Þetta eru geðþóttaákvarðanir oftast nær. Stór hluti af starfsfólkinu ræður ekki við sína vinnu. Þetta er sér- trúarflokkur. Það eru dæmi um að menn neiti að taka út byggingar,“ sagði verktaki um starfsmenn bygg- ingarfulltrúa. Hefur hann því ákveðið að leita í önnur sveitarfélög varðandi næstu verkefni. „Menn nenna ekki orðið að eiga við borg- ina. Oft á tíðum eru menn að mis- fara með vald sitt. “ Leiddi til mikilla tafa Annar verktaki tók annað dæmi. Sótt hafi verið um byggingarleyfi í miðborginni. Við afgreiðslu um- sóknarinnar hafi starfsmaður byggingarfulltrúa sett út á fyrir- komulag sorphirðu. Það fyrirkomu- lag hafi hins vegar verið í samræmi við reglur. Þrátt fyrir það hafi málið verið látið bíða í borgarkerfinu í hálft ár. „Starfsmenn borgarinnar finna til valds síns. Þeir vita að tíminn er dýrmætur. Þess vegna geta þeir lát- ið verktaka bíða þar til þeir gefa eftir,“ sagði verktaki sem hefur mikla reynslu af framkvæmdum í borginni. Nokkrir viðmælendur blaðsins tóku dæmi af fyrirhugaðri „Mat- höll“ við Hlemmtorg í Reykjavík. Það verk borgarinnar hefði dregist úr hömlu vegna hægagangs. Sagt var frá því 1. mars í fyrra að Sjávarklasinn og Reykjavíkurborg hefðu skrifað undir samninga varð- andi Mathöllina. Fram kom í fjöl- miðlum að stefnt væri að opnun haustið 2016. Verkefnið hefði verið í undirbúningi um nokkurt skeið. Mathöllin hefur ekki verið opnuð og er nú rætt um að opna í ágúst. Segja starfsmenn misnota valdið  Samtök iðnaðarins gagnrýna framgöngu skipulagsyfirvalda í Reykjavík  Miklu fé sé sóað til einskis  Persónuleg afstaða starfsmanna ráði jafnvel för  Verktaki gafst upp á framkvæmdum í miðborginni Afgreiðslur byggingarfulltrúans í Reykjavík 2015 Afdrif mála á 48 afgreiðslufundum Kostnaður við 1.759 frestanir 2015 Samkvæmt áætlun Samtaka iðnaðarins Fjöldi Hlutfall Samþykktar umsóknir um byggingarleyfi 981 29,3% Ýmis mál 187 5,6% Frestaðar umsóknir milli funda 1.759 52,5% Synjaðar umsóknir 48 1,4% Fyrirspurnir 377 11,2% Samtals 3.352 x Kostnaður á einingu/tíma x = Kostn. í m. kr. Aðgerð Fjöldi frestana Eining /tími að lág- marki að há- marki Endurprentun teikninga 1,759 1–2.000 kr. 3,5 3,5 Ráðgjöf vegna frestunar 1,759 12.000 kr. 3–5 klst. 63,3 105 Fundir embættismanna vegna frestunar 1,759 6.000 kr. 3–5 klst. 31,7 53 Akstur vegna afhendingar gagna 1,759 130 kr./km 15 km 3,5 3,5 Samtals milljónir króna 102 165 Morgunblaðið/Árni Sæberg Á Hlemmi Svona leit áformuð „Mathöll“ út í gær. Hana átti að opna í fyrra. Veitingamaður sem ræddi við Morgunblaðið í trausti nafn- leyndar sagðist mundu vera orðinn gjaldþrota ef hann væri einn um rekstur tiltekins veit- ingastaðar í Reykjavík. Hann hefði enda ekki ráðið einn við kostnaðinn sem fylgdi töfum við að fá tilskilin leyfi. Til að tryggja nafnleynd verður hér ekki farið út í smá- atriði málsins. Verður það því rakið í grófum dráttum. Þegar undirbúningur að opnun veitingastaðar var langt kominn kom í ljós að gleymst hefði að skila teikningum af einu herbergi til byggingar- fulltrúa. Þegar úr því var bætt tók við margra vikna bið. Taf- irnar voru ófyrirséðar og var starfsfólk á fullum launum á meðan beðið var. Við eftir- grennslan kom í ljós að gerð var athugasemd við atriði sem viðmælandinn taldi engu máli skipta. Rökstuddi viðmæl- andinn það með því að vísa til áratuga reynslu sinnar sem kokkur. Þegar allt kapp var lagt á að greiða úr meintu vandamáli kom á daginn að umræddur embættismaður var farinn í frí. Það væri enginn til að taka við keflinu í milli- tíðinni. Hefði orðið gjaldþrota REYNSLUSAGA Miklar tafir » Fyrirhugðari opnun Iceland Parliament Hotel við Austur- völl seinkar um a.m.k. ár. » Bygging Icelandair-hótels í Hafnarstræti hefur líka tafist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.