Morgunblaðið - 25.07.2017, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 25.07.2017, Blaðsíða 27
Hrönn vann síðan stuttar heim- ildamyndir, vann m.a. Silicon- þættina og Íslenska kjötsúpu, með Erpi Eyvindarsyni. Hún gerði heim- ildarmyndina, Í skóm drekans, sem var gerð um fegurðarsamkeppnina Ungfrú Ísland sem var tekin upp ár- ið 2000, gerð af Hrönn og Árna, en móðir þeirra var tökumaðurinn. Myndina átti að frumsýna árið 2002 en fékk þá á sig lögbann. Á endanum var samið um sýningarrétt á mynd- inni. Myndin fékk mikla aðsókn og umtal, fékk Edduverðlaun sem besta heimildarmyndin og hefur farið á fjölda erlendra kvikmyndahátíða. Hrönn flutti til New York 2003, lærði stjórnmálafræði og kvik- myndafræði við Brooklin College í New York. Hún lauk BA-prófi í greinunum 2006. Með náminu var hún aðstoðarmaður við lögmanns- stofu í New York. Um þær mundir kynntist hún eiginmanninum sínum en þau fluttu til Íslands 2007. Hrönn var siðameistari við banda- ríska sendiráðið í Reykjavík 2008- 2011, en þar tók hún m.a. á móti Condoleezzu Rice og skipulagði við- burði í tilefni af 70 ára stjórnmála- sambandi Íslands og Bandaríkjanna. Hrönn hefur frá ársbyrjun 2012 verið framkvæmdastjóri Bíós Para- dísar við Hverfisgötu, þar sem áður var Regnboginn. Bíó Pardís er sjálf- eignastofnun í eigu Fagfélaga kvik- myndagerðarmanna: „Bíó Paradís er ekki rekin af Reykjavíkurborg eins og margir halda. Við fáum stuðning frá borg og ríki en höldum sýningar og kennum grunnskóla- börnum kvikmyndalæsi og tökum þá á móti um 8.000 börnum á ári. Um 80% af okkar rekstrarfé er sjálfs- aflafé. Okkar styrkjahlutfall er því óvenjulágt miðað við önnur menn- ingarhús en reksturinn gengur ætíð betur og sýningarhópurinn okkar stækkar stöðugt.“ Fjölskyldan Eiginmaður Hrannar er Steven Reid Meyers, f. 9.10. 1965, handrits- ráðgjafi hjá Kvikmyndamiðstöðinni, prófarkalesari og kennari við Kvik- myndaskólann. Dætur Hrannar og Steven eru Nína Þyri, f. 16.11. 2007; Úrsúla Sig- rún, f. 9.3. 2010, og Mía Margrét, f. 4.9. 2014. Systir Hrannar, sammæðra, er Ragna Björg Sigrúnardóttir, f. 3.7. 1964, myndlistarkona í Seattle í Bandaríkjunum. Alsystkini Hrannar eru Árni Sveinsson, f. 9.5. 1976, kvikmynda- gerðarmaður í Reykjavík, og Marta María Sveinsdóttir, f. 11.4. 1980, sér- hæfður starfsmaður á Landspít- alanum í Fossvogi. Foreldrar Hrannar eru Sveinn Aðalsteinsson, f. 5.7. 1946, viðskipta- fræðingur og leiðsögumaður, og k.h., Sigrún Hermannsdóttir, f. 28.12. 1944, fyrrv. bóksali. Þau búa í Reykjavík. Úr frændgarði Hrannar Sveinsdóttur Hrönn Sveinsdóttir Guðbjörg Gunnlaugsdóttir ljósm. og húsfr. í Hafnarfirði Bjarni Hermann Guðmundur Pálmason skipstj. í Rvík Ragna Bjarnadóttir prentsmiðju- og bíóstarfsmaður Rvík Hermann Sigurðsson sjóm. í. Rvík Sigrún Hermannsdóttir bóksali í Rvík Guðrún Gísladóttir húsfr. í Holti í Norðfirði, og í Mjóafirði, í S-Múl. Sigurður Jónsson verkam. á. Norðfirði Hallgrímur Níelsson b. á Grímsstöðum Haraldur Níels- son guðfræðipró- fessor og forseti Sálarrannsóknar- félas Íslands María Níelsdóttir húsfr. í Rvík Þuríður Níelsdóttir húsfr. í Rvík Jónas Haralz bankastj. Sveinn Valfells forstjóri Hallgrímur Helgason tónskáld í Rvík Leifur Sveinsson lögfræðingur Ólafur Guðmundsson kristniboði Sesselja Níelsdóttir húsfr. í Rvik Sturla Friðriksson erfðafræðingur Helgi Hallgríms- son kennari í Rvík Sveinn Sveinsson forstj. Völundar Guðrún Guðmundsdóttir húsfr. á Glæsistöðum Sigurður Sveinsson fyrrv. handboltakempa Soffía Har- aldsdóttir húsfr. í Rvík Níels H.P. Dungal forstöðulæknir, prófessor og rektor HÍ í Rvík Sigurður Helgason fyrrv. stjórnarform. Loftleiða Haraldur Sveinsson fyrrv. framkv.stj. Árvakurs Sigurður Antonsson b. á Glæsistöðum Júlíus Guðmundsson skólastj., prestur og forstöðum. aðventista á Íslandi Sigríður Bjarnadóttir húsfr. á Glæsistöðum Guðmundur Gíslason b. á Glæsistöðum í Vestur-Landeyjum Guðný Guðmundsdóttir húsfr. í Rvík Jón Aðalsteinn Sveinsson vélstj. í Rvík Sveinn Aðalsteinsson viðskiptafr. og leiðsögum. í Rvík Sigurlín Þorbjörg Sigurðardóttir húsfr. á Lambastöðum Sveinn Níelsson b. á Lambastöðum áMýrum, systursonur Hallgríms Sveinssonar biskups, og Elísabetar Sveinsdóttur,móður Sveins Björnssonar forseta ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2017 Matthías Ólafsson alþing-ismaður fæddist í Hauka-dal í Dýrafirði 25.7. 1857. Foreldrar hans voru Ólafur Jónsson, bóndi þar og kona hans, Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja. Langfeðgar Ólafs höfðu búið tvær aldir eða leng- ur í Haukadal, mann fram af manni, en Ingibjörg var afkomandi Jóns Arnórssonar, sýslumanns í Arnardal við Ísafjarðardjúp, og er því af Arn- ardalsætt. Kona Matthíasar var Marsibil Ólafsdóttir húsfreyja. Foreldrar hennar voru Ólafur Pétursson, skip- stjóri á Þingeyri, og kona hans, Þór- dís Ólafsdóttir húsfreyja. Matthías tók gagnfræðapróf á Möðruvöllum 1882, vann versl- unarstörf í Haukadal 1882-1889 og á Flateyri 1889-1890 og stundaði jafn- framt kennslu. Hann stofnaði með öðrum í Haukadal, fyrsta barnaskól- ann í Vestur-Ísafjarðarsýslu árið 1885 og kenndi sjálfur við skólann til 1889. Matthías var kaupmaður í Hauka- dal 1892-1897, verslunarstjóri þar 1897-1908 og kaupmaður að nýju 1908-1914. Matthías flutti til Reykjavíkur 1914 og gerðist erindreki Fiskifélags Íslands. Hann var alþingismaður Vestur-Ísafjarðarsýslu 1911-1919. Matthías ferðaðist í markaðsleit á vegum Fiskifélagsins og ríkisstjórn- arinnar um Bandaríkin 1917-1918 og 1918-1919, um Ítalíu og Spán 1919- 1920. til að kynna sér markaðshorfur og verkunaraðferðir. Árið 1921 lagð- ist þetta starf niður og hafði Matt- hías þá um tíma forstöðu fyrir matvælaskömmtunarstofu rík- isstjórnarinnar 1920-1921 og varð síðan gjaldkeri Landsverslunar 1920-1928. Þegar hún hætti varð hann starfsmaður hjá Olíuverslun Íslands 1928-1936. Hann var jafnframt yfirskoðunarmaður landsreikninganna 1914-1921. Þegar Matthías hætti störfum flutti hann ásamt konu sinni til dótt- ur þeirra, Hlífar, í Borgarnes. Matthías Ólafsson lést 8.2. 1942. Merkir Íslendingar Matthías Ólafsson 95 ára Helgi Jóhannesson 85 ára Guðmundur Kristjánsson 80 ára Bára Rebekka Sigurjónsdóttir Eggert N. Bjarnason Hólmfríður Jónsdóttir Hulda Reykjalín Víkingsdóttir Karl Sigurður Jakobsson 75 ára Hulda Björk Kolbeinsdóttir Margrét Njálsdóttir Petter Amandus Tafjord Sigrún Jónasdóttir Sveinbjörn Guðmundsson Sveinn Scheving Þorsteinn Hallgrímsson 70 ára Baldur H. Baldursson Ísleifur Haraldsson Leifur Magnússon 60 ára Erla Ingólfsdóttir Flosi Gunnarsson Hermann Kristjánsson Jóhanna Björg Guðmundsdóttir Kolbrún Bergþórsdóttir Margrét Pálsdóttir Rafn Haraldsson Teresa Halina Frydrysiak Viktoría Áskelsdóttir 50 ára Ástríður Emma Hjörleifsdóttir Björn Ævar Sigurbergsson Búi Bjarnason Erna Rós Magnúsdóttir Halldór Friðrik Þorsteinsson Hallgrímur Þráinsson Oddný Halldórsdóttir Ramir Castillo de Luna Rögnvaldur Bergþórsson Saulius Umbrasevicius Snorri Sigurfinnsson Sverrir Jónsson 40 ára Davíð Jakobsson Davor Lucic Elísabet Stefánsdóttir Erna Þorsteinsdóttir Gunnlaug Ruth Guðmundsdóttir Hrafnhildur Valdimarsdóttir Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir Hrönn Sveinsdóttir Iwona Luiza Matyszczyk Páll Ragnar Pálsson Shuchi Mandloi Sigurjón Magnús Ólafsson Vilhjálmur Ómar Sverrisson 30 ára Anton Bjarnason Arnór Ingason Harpa Sif Arnarsdóttir Hjalti Gylfason Kristín Sólnes Simona Simkeviciute Telma Halldórsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Thelma býr á Sel- fossi og er í fæðing- arorlofi. Maki: Ágúst Hjálm- arsson, f. 1985, bóndi og starfsmaður hjá Slát- urfélagi Suðurlands. Börn: Júlía Mjöll; f. 2012; Þórhildur María, f. 2013; Ágúst Helgi, f. 2016, d. s. ár, og óskírð, f. 2017. Foreldrar: Jenný Stein- dórsdóttir, f. 1947, og Halldór Guðmundsson, f. 1952. Telma Halldórsdóttir 40 ára Sigurjón ólst upp í Vestmannaeyjum, býr í Hafnarfirði og er sendibíl- stjóri hjá Icelandair Cargo. Maki: Guðrún Sunna Egonsdóttir, f. 1982, starf- ar við bókhald. Börn: Ólafur Darri, f. 2005; Anna Rakel, f. 2010, og Ísak Daði, f. 2015. Foreldrar: Ólafur Sigur- jónsson, f. 1953, og Rut Sigurðardóttir, f. 1954. Sigurjón M. Ólafsson 40 ára Páll ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk Ph.D.-prófi í tónsmíðum frá Tónlistarakademíunni í Tallinn í Eistlandi og vinn- ur að tónsmíðum og er aðjunkt við LHÍ. Maki: Tui Hirv, f. 1984, söngkona, tónlistarfræð- ingur og rithöfundur. Sonur: Eiríkur, f. 2009. Foreldrar: Páll Ólafur Bergsson, f. 1942, og Lilja Magnúsdóttir, f. 1943, bú- sett í Reykjavík. Páll Ragnar Pálsson Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R og og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.