Morgunblaðið - 25.07.2017, Blaðsíða 13
Góðgæti Veisluborðin lifna við með kökum Karenar, sem bakar og skreytir fyrir alls konar veislur sem fjölskyldan heldur. Eftirspurnin er sérstaklega mikil fyrir afmæli barnabarnanna.
að slagið á kökunum sínum. Og fær
að vonum bros að launum. „Stundum
prófa ég kökurnar á þeim, ef svo má
segja, baka kannski úr mismunandi
deigi, og kalla eftir umsögn.“ Karen
frábiður sér að vera kölluð kökugerð-
armeistari, eða konditor eins og það
heitir á fínu máli. Listamaður? Nei,
ekki heldur. Í rauninni leggur hún of-
uráherslu á að hún sé bara eft-
irherma. Föndrari. Kökurnar sem
hún baki og skreyti séu ekki hennar
hugarsmíð, heldur eigi þær sér allar
fyrirmyndir einhvers staðar á óra-
víddum netsins. „Eins og flestir vita
er hægt að læra allt mögulegt á net-
inu, þar eru heilu námskeiðin í boði.
Ekki þarf annað en að gúgla „de-
corated sugar cookies“ og þá er
maður kominn inn í heim snill-
inga í kökugerðarlist. Upp-
skriftir, aðferðir og hugmyndir
eru þar á hverju strái,“ segir
Karen. „Ég hef ekki tærnar þar
sem þessir listamenn hafa hæl-
ana,“ bætir hún við.
Að þessu sögðu er
ljóst að Karen er
lítið gefin fyrir
að hreykja sér
og jafnframt
mikið í mun að
eigna sér ekki
höfundarverk ann-
arra. Á tali hennar
mætti ætla að kök-
urnar baki og
skreyti sig sjálfar. Svo
er vitaskuld ei. Kveikj-
an að þessu viðtali var myndir
af girnilegum og listilega útfærðum
smáum og stórum kökum á Facebo-
ok-síðu hennar, Kökur Karenar. Á
Facebook leynist nefnilega margur
listamaðurinn þegar grannt er skoð-
að. Og svo er Karen líka á Instagram
og vistar myndir, uppskriftir og ann-
að kökutengt á Pinterest. Algjörlega
með tæknina á sínu valdi.
Stemningin skiptir máli
„Ein af stelpunum í vinnunni tók
upp á því að birta myndir af kök-
unum mínum á lokaðri Facebook-
síðu fyrir eina deildina á spítalanum.
Í kjölfarið setti ég mína eigin síðu í
loftið. Einungis mér til gamans og
skemmtunar, til að læra af mistök-
unum og sjá hvort mér fari eitthvað
fram. Kökurnar eru hvorki til sölu né
baka ég eftir pöntun, enda fyndist
mér eyðileggja ánægjuna að baka
undir pressu.“
Henni finnst mest gaman að
baka fyrir jólin og afmæli barna-
barnanna, sem yfirleitt óski sér að fá
eftirlætis ævintýrahetjur sínar, t.d.
köngulóarmanninn og einhverja
stjörnustríðshetju, greyptar í smá-
kökur sem og mótaðar í stórar þrí-
víðar kökur. Svo hefur hún verið beð-
in um hvolpakökur og alls konar
fígúrur. „Krakkarnir eru himinlif-
andi þegar amma mætir í afmælið
með allar þessar kökur. Stundum
finnst mér ég vera svolítið eins og
Amma klikk,“ segir Karen brosandi.
Henni finnst mikilvægt að búa til
góða stemningu við undirbúninginn
og baksturinn sjálfan, hafa góða tón-
list í tækinu og helst barnabörnin allt
um kring. „Ég baka ekki á hverjum
degi í frívikunni minni. Þær vikur
skipulegg ég með góðum fyrirvara,
annaðhvort sauma ég eða baka,
nema hvort tveggja sé,“ segir Karen.
Þolinmæði og þrautseigja
Hún gefur lítið út á hversu flink
hún er orðin í þessari ævintýralegu
kökugerð. Þolinmæði og þrautseigja,
áréttar hún. Viðurkennir þó að tölu-
verð kúnst sé að búa til glassúrinn og
kökugerðin í heild sé á stundum
býsna tímafrek. „Fyrst geri ég þykk-
an glassúr úr gerilsneyddri eggja-
hvítu, flórsykri og yfirleitt nokkrum
sítrónudropum til bragðbætis. Gæta
verður þess að þynna glassúrinn ekki
of mikið svo hann renni ekki út af
kökunum,“ segir Karen og bætir við
að því litríkari sem kökurnar séu
þeim mun tímafrekari sé undirbún-
ingsvinnan. Í hvolpakökurnar fyrr-
nefndu, óskaafmæliskökur eins
barnabarnsins, hafi hún til dæmis
notað fimmtán liti.
Spurð um kökudeigið segist hún
nota ósaltað smjör, sykur, egg,
hveiti, lyftiduft, vanilludropa og salt.
Vegna höfundarréttarlaga vill hún
ekki gefa upp nákvæma uppskrift, en
bendir á bókina Ultimate cookies eft-
ir Juliu M. Usher og ógrynni upp-
skrifta sem hægt sé að fara eftir á
Youtube og víðar.
Prófílmyndin á Facebook-
síðunni hennar er lógó með flúruðum
stöfum, Kökur Karenar – kökur sem
gleðja. Það er einmitt tilgangur Kar-
enar með öllum þessum bakstri og
skreytingum fyrir öll möguleg tilefni
– eða engin.
Tuskudýr Barnabörn Karenar, f.v. Páll Haukur, Sölvi Már og Lísa
Vilborg, með tuskudýr sem amma þeirra saumaði handa þeim.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2017
TE & KAFFI NOTAR EINGÖNGU ÚRVALS KAFFIBAUNIR
FRÁ BESTU RÆKTUNARSVÆÐUNUM, SÉRVALDAR OG
BRENNDAR AF BRENNSLUMEISTARA.
ILMANDI
HLUTI AF DEGINUM
Íslenskt fjölskyldufyrirtæki
og framleiðsla síðan 1984
Ferðafélag barnanna fer í fjögura
daga leiðangur á slóðir víkinga á Val-
geirsstöðum í Norðurfirði dagana
27.-30. júlí. Börn og fullorðnir munu
m.a. stíga í stafn, stýra reistum
knerri, upplifa sjóorustu, nema land
og byggja landnámshús. Hugsanlega
lenda þau í bardaga við aðra höfð-
ingja með heimasmíðuðum vopnum.
Einnig rækta þau tún og og engi, fara
á hestbak, veiða, föndra og skella
upp frjálsíþróttamóti þar sem þau
keppa m.a. í drumbakasti, bauju-
hlaupi, sandstökki, limbói, halda hér-
aðsmót í höfuðstöðu, fara í léttar
gönguferðir og sund í Krossneslaug.
Fastur liður í þessari árlegu ferð er
varðeldur í fjörunni. Ein aðalreglan er
sú að farsímar og tölvur eru óæski-
leg. Börn og foreldrar ná þannig að
kynnast með nýjum hætti á slóðum
sem eru flestum nýstárlegar.
Fararstjórar eru Auður Kjartans-
dóttir og Páll Guðmundsson, þaul-
reyndir fararstjórar sem þekkja um-
hverfi og mannlíf á Ströndum vel.
Hópurinn kemur sér fyrir fyrsta dag-
inn í húsi Ferðafélagsins á Valgeirs-
stöðum. Svo hefst gamanið þar sem
hvergi er að finna dauða stund.
Nánari upplýsingar: www.ferda-
felagbarnanna.is.
Ferðafélag barnanna – fjölskylduferð með víkingaþema
Stíga í stafn, stýra reistum
knerri og upplifa sjóorustu
Morgunblaðið/RAX
Selir Krossneslaug rétt hjá Norðurfirði stendur við fjöru og þykir gestum laug-
arinnar mögnuð upplifun að horfa þaðan á selina svamla í fjöruborðinu.