Morgunblaðið - 25.07.2017, Qupperneq 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2017
✝ GuðmundurHelgi Helga-
son fæddist á Ak-
ureyri 17. janúar
1984. Hann lést
10. júlí 2017.
Foreldrar Guð-
mundar eru Helgi
Guðmundsson, f.
1952, og Ingveldur
Jónsdóttir, f. 1951.
Bræður hans eru
Jón, f. 1975, Karl,
f. 1979, og Davíð, f. 1991.
Guðmundur flutti til Reykja-
víkur 1984 ásamt fjölskyldunni
og bjó þar æ síðan. Hann gekk
í Seljaskóla og
lauk stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti.
Hann hóf nám í
sálfræði í Háskóla
Íslands. Guðmund-
ur tók sér ým-
islegt fyrir hend-
ur; spilaði á
hljóðfæri, stundaði
jóga og kenndi á
tímabili.
Útför Guðmundar fer fram
frá Fossvogskirkju í dag, 25.
júlí 2017, og hefst athöfnin kl.
15.
Elsku Muggur minn.
Ég kveð þig með miklum sökn-
uði nú þegar komið er að ótíma-
bærri kveðjustund. Þú varst hlýr
og yndislegur drengur en um leið
viðkvæmur. Sem barn varstu blíð-
ur og ég geymi ýmsar góðar
minningar, til dæmis úr sumarbú-
staðaferðunum.
Ég ætla ekki að skrifa langa
grein en langar til að minnast á
síðustu vikuna í lífi þínu sem við
eyddum saman á Meistaravöllun-
um. Mér þótti afar vænt um þær
samverustundir. Þú varst mjög
hjálplegur þegar þú dvaldir hjá
mér og léttir mjög undir með
ömmu þinni.
Guð veri með þér, elsku vinur.
Ég veit að vel var tekið á móti þér
þegar þú komst í sumarlandið.
Þín er sárt saknað.
Erla Karlsdóttir.
Í dag kveðjum við úr jarðvist-
inni gull af manni og góðan vin,
hann Guðmund Helga Helgason.
Hjartans vinur, litríki persónu-
leiki, góða sál.
Í okkar tengingu upplifði ég þig
alltaf sem birtingarmynd hins
sanna lærdómsmanns. Fyrir utan
að vera afburðagreindur, gekkstu
af fullum ákafa og hugrekki inn í
hlutina oft til þess eins að skilja þá
betur, allan þann tíma sem ég hef
þekkt þig varstu knúinn áfram af
endalausum spurningum um til-
veruna og þess vegna áttir þú líka
víðtæk svör og útskýringar á svo
mörgu í þínum fórum. Þú varst
andans maður og að sama skapi
leitaðir þú alltaf eftir nútímalegri
og vísindalegri fótfestu fyrir hlut-
unum. Skortur á praktískum og
mannúðarlausum nálgunum fór
alltaf í taugarnar á þér, enda átt-
irðu ekki í neinum vandræðum
með að sjá hvernig hlutirnir
tengjast saman.
Þú varst ekki einungis vel sett-
ur á sviði hugans, heldur varstu
líka djúpur, einlægur, næmur og
ríkur í alla staði á tilfinningasvið-
inu. Hvernig þú gerðir þér leik að
því að skilja hið mannlega eðli og
kynnast flaumi mannlegs tilfinn-
ingalífs til hlítar. Þú deildir upp-
götvunum, áskorunum, sigrum og
já ósigrum, sem þú sást alltaf
fyrst og fremst sem lærdóm.
Þú slóst oft á létta strengi, en
aldrei á kostnað annarra, það
varst ekki þú. Þú gast samt verið
ákveðinn og beitt þér sem rétt-
sýnn hugsjónamaður af ástríðu og
látið í þér heyra ef svo bar undir,
en það var einungis vegna þess að
þú trúðir á fallegri og betri heim
og sást alltaf fyrir þér heim þar
sem menn gátu lifað í sátt og sam-
lyndi, með bæði kostum og göllum
og með tilliti til þess hvað við er-
um öll ólík og einstök þegar öllu er
á botninn hvolft.
Þú tjáðir mér oft hvað vináttan
skipti þig miklu máli. Það er afar
erfitt að sjá á eftir þér, en vinátta
okkar varir. Þú barðist hetjulega
á þinni leið. Ég vildi segja þér
hvað ég er stoltur af þér. Þú
kenndir mér margt sem á eftir að
fylgja mér alla tíð. Nú mæðir
meira á okkur hinum að halda
gildum meðvitaðri og lausnamið-
aðri heims á lofti, sem er eitthvað
sem þú stóðst einhvern veginn
alltaf fyrir. Takk fyrir allt, elsku
vinur. Að lokum langaði mig að til-
einka þér þessi fáeinu orð til við-
bótar:
Stríðsmaður hefur nú háð
sína helstu hildi,
hann leggur frammi
fyrir hofi hjartans
niður brynju sína
ásamt sverði og skildi
og opnar sig heill
fyrir ljósi og mildi.
Dýpstu samúðarkveðjur til
allra hans samferðamanna og ást-
kæru fjölskyldu.
Þinn vinur,
Ólafur Aron og fjölskylda.
Guðmundur Helgi
Helgason
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GÍSLI TORFASON,
lögg. endurskoðandi,
Svöluási 11, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
19. júlí. Útför hans fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 27. júlí klukkan 13.
Fjölskyldan vill koma á framfæri sérstökum þökkum til
starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir
einstaklega góða umönnun og hlýhug.
Sólveig Birna Gísladóttir Einar Jóhannes Lárusson
Loftur Bjarni Gíslason Guðbjörg Sigríður Jónsdóttir
og barnabörn
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður og afa,
MAGNÚSAR JÓNASSONAR,
Hafnarfirði.
Starfsfólki Landspítalans þökkum við
kærlega fyrir góða umönnun.
Sérstakar þakkir færum við hinu frábæra starfsfólki hjá Karitas
fyrir ómetanlega hjálp og hlýja nærveru.
Sigurbjörg Kristjánsdóttir
Trausti Magnússon Hafdís Þórðardóttir
Anton Magnússon Svanhildur Karlsdóttir
Jónas Magnússon Chingmei Yang
Kristján Magnússon Alexandra Björk Elfar
Rut Magnúsdóttir
Styrmir Magnússon Ólöf Birna Björnsdóttir
Ingvar Magnússon Kolbrún Björk Óladóttir
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ESTER BERGMANN
HALLDÓRSDÓTTIR
sérkennari,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum
Selfossi mánudaginn 10. júlí.
Útförin fór fram í kyrrþey frá Selfosskirkju miðvikudaginn
19. júlí. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Kumbaravogi á
Stokkseyri, Lundi á Hellu og Fossheimum fyrir góða umönnun
og hlýju.
Ásthildur B. Sigþórsdóttir Jón Helgi Ingvarsson
Halldór Gísli Sigþórsson Margrét Kristjánsdóttir
Sigþór Örn Sigþórsson Ester Ýr Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til allra ættingja, vina og
vandamanna fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og minningarathöfn elsku
föður okkar, afa og langafa, bróður,
tengdaföður og mágs,
INGVARS EMILSSONAR
haffræðings,
frá Eskifirði,
sem andaðist í Mexíkó í lok síðasta árs. Sérstakar þakkir til
þeirra sem komu að minningarathöfn og erfidrykkju.
Blessi ykkur öll,
Kristján Ingvarsson
Tryggvi Ingvarsson Emilsson
Elín Margrét Emilsson Ingvarsdóttir
Hulda EmilsdóttirÁstkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi
og bróðir,
HEIMIR MORTHENS,
Vættaborgum 26, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi fimmtudaginn 20. júlí.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 28. júlí
klukkan 13. Blóm afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er
bent á Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Þóra Kristín Sigursveinsdóttir
Hlynur Morthens Bryndís Björg Jónsdóttir
Bergþór Morthens Elín Aðalsteinsdóttir
Heimir Þór Morthens Tania Lind Fodilsdóttir
barnabörn og bræður hins látna
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HELGI STEFÁN VETURLIÐASON
málarameistari,
lést 18. júlí á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
31. júlí klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Alzheimer-samtökin.
Anna Kristjánsdóttir
Hafdís Helgadóttir Ingi Gunnar Ingason
Kristján Helgason Ragnhildur Filippusdóttir
Anna Oddný Helgadóttir Ricardo M. Villalobos
Viðar Helgason Hulda Gísladóttir
Úlfar Helgason Sæunn Marinósdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, systir, amma og langamma,
HELGA SIGFÚSDÓTTIR,
Furulundi 31, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 28. júlí klukkan 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Heimahlynningu Akureyrar.
Rúnar Heiðar Sigmundsson
Gunnar Örn Rúnarsson Bryndís Valgarðsdóttir
Sigrún Rúnarsdóttir Magnús Magnússon
Sigmundur Ernir Rúnarsson Elín Sveinsdóttir
Guðrún Sigfríð Rúnarsdóttir Sigfús Arnar Karlsson
Jón Gísli Sigfússon
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÞRÁINN SIGURÐSSON,
sjómaður og útgerðarmaður frá
Vestmannaeyjum,
lést á sjúkrahúsi Vestmannaeyja
fimmtudaginn 20. júlí.
Jarðað verður frá Landakirkju Vestmannaeyjum miðvikudaginn
26. júlí klukkan 13. Blóm og kransar afþakkað.
Aðstandendur hafa stofnað reikning til kaupa á nýrnavél til
Sjúkarhússins í Vestmannaeyjum.
Reikningur 0370-22-002562, kt. 260269-4029.
Sigurður Frans Þráinsson
Hallgrímur Þráinsson
Jóhann Helgi Þráinsson Jónína Unnur Gunnarsdóttir
Jóhanna Svanborg Jónsdóttir
Axel Franz, Elín Helena, Sigurþór, Ingunn Silja, Þráinn Jón,
Þorsteinn og Elísabet Aría
Þriðjudagskvöld-
ið 11. júlí 2017 verð-
ur okkur öllum
minnisstætt. Pabbi
hringdi, hann vildi fá að tala við
okkur bæði, það var óvenjulegt.
Það hafði orðið slys, Bjarki hans
Guðna lenti í alvarlegu slysi og
var fluttur í bæinn með þyrl-
unni. Þetta var það eina sem sat
eftir þegar símtalinu lauk, þó
svo það hafi staðið yfir í þónokk-
urn tíma. Hugurinn reikaði,
hvað gerðist? Hvers vegna
hann? Hvað er í gangi? Við trúð-
um því og lifðum í þeirri von að
hann myndi ná sér, hann hristir
þetta af sér. Næstu dagar á eftir
liðu afar hægt, alltaf biðum við
með símann á lofti eftir fregnum
af spítalanum, mamma var dug-
leg að halda okkur upplýstum.
Fjölskyldan öll stóð saman með
jákvæðnina og bjartsýnina að
leiðarljósi, logandi kerti og von.
Föstudagskvöldið réð úrslitum,
þá bárust fregnir þess efnis að
slagurinn hefði verið of harður í
þetta sinn. Elsku hjartans
Bjarkinn okkar hafði kvatt
þennan heim, langt fyrir aldur
fram.
Bjarki var mikill gleðigjafi,
einstaklega brosmildur og
skemmtilegur. Það má segja að
það hafi einkennt hann Bjarka
okkar ásamt þeim brennandi
bílaáhuga sem hann deildi með
Guðjóni Má. Maður átti stund-
um erfitt með að fylgja samræð-
um þeirra, þar sem þær fóru
fram á eins konar bílatungumáli.
Lífsstíll sem þessi gat verið
ofsalega skemmtilegur, krefj-
andi en jafnframt torveldur. Sú
minning, ein af mörgum tengd-
um bílum, sem við minnumst
hvað sterkast þegar við hugsum
til baka er þegar Bjarki var að
gera upp Avensis-tvíburana. Það
var einstaklega skemmtilegt
verkefni sem við stórfjölskyldan
fengum að fylgjast grannt með,
enda áhuginn óstjórnlegur hjá
drengnum og við höfðum mjög
Bjarki Már
Guðnason
✝ Bjarki MárGuðnason
fæddist 14. ágúst
1998. Hann lést 14.
júlí 2017.
Útför Bjarka
Más fór fram 24.
júlí 2017.
gaman af. Það var
ekki nóg að hann
gerði upp og lagaði
bíla, heldur var
hann meira en til í
að taka að sér þrif á
skítugasta bíl stór-
fjölskyldunnar,
þegar hann átti
tíma aflögu. Þetta
verk hefðu fáir tek-
ið að sér en þeim
feðgum fór það af-
bragðs vel úr hendi. Það gefur
augaleið að bílar voru hans lífs-
stíll. Bjarki var þar að auki af-
skaplega góðhjartaður, alltaf gaf
hann sér tíma fyrir þau yngstu,
enda í miklu uppáhaldi þar. Þar
var ýmist leikið, knúsast eða
haft gaman. Greiðvikni var einn-
ig hans einkenni, það var ekkert
mál að aðstoða, sama hvert
verkið var. Ef það tengdist bíl-
um var það þó oft látið ganga
fyrir.
Með tár á hvarmi og trega
sjáum við á eftir frænda okkar,
Bjarka Má. Minningarnar eru
fjársjóður sem við munum ylja
okkur við alla ævi. Sofðu rótt
elsku engillinn okkar.
Lífsins leið nú lokið er
elsku ljúfi drengur.
Erfið er sú hugsun hver
að þú sért hér ekki lengur.
Tárin fylla titrandi vanga
tregafull sorgin er svo þung
Hvernig eigum við veginn að ganga,
þegar vinir og börn eru tekin svo ung?
Glöð við viljum þakka þér,
fyrir þær minningarnar.
Sem þú skildir eftir hér,
þær sorginni verða til varnar.
Vertu nú sæll vinurinn,
við föðmum sálu þína.
Elskulegi engillinn,
ávallt mun ljós þitt skína.
(GMJ og REJ)
Elsku Guðni, Anna, Lilja,
Jónsi og börn, við viljum votta
ykkur og aðstandendum öllum
okkar dýpstu samúð, megið þið
öðlast styrk á þessum erfiðu
tímum.
F.h. frændsystkinanna í
Kjarrmóanum,
Ragnhildur Eva og
Guðjón Már Jónsbörn.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum.
Minningargreinar