Morgunblaðið - 25.07.2017, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2017
Raðauglýsingar
Veiði
Geirlandsá - útboð
Óskað er eftir tilboðum í veiðirétt í Geirlandsá
og Breiðbalakvísl 2018-2022. Geirlandsá er ein
af bestu sjóbirtingsám landsins en jafnframt
með nokkurri laxveiði.
Tilboðsfrestur er til kl. 21 þriðjudaginn 15.
ágúst og skal skila tilboðum til Bergs Guðna-
sonar, Keldunúpi, 880 Kirkjubæjarklaustri
merktum ,,Geirlandsá –Tilboð”.Tilboðin verða
opnuð fimmtudaginn 17. ágúst í viðurvist
þeirra sem þess óska.
Veiðifélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.
Nánari útboðsgögn má nálgast á netfanginu
geirlandsa@gmail.com eða hjá Sigurlaug 844-
4465, Bergi 894-9786 eða Guðmundi 692-6131.
Veiðifélag Geirlandsár og Breiðbalakvíslar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðar/útskurður með leiðb. kl. 9-16. Bónusbíllinn fer
frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leiðb. kl. 12.30-16.
Félagsstarfið er með opið í sumar frá kl. 8.30-15.45. Hádegismatur,
hakkabuff, kl. 11.40-12.45. Kaffiveitingar á vægu verði kl. 15 -15.45.
Heitt á könnunni, blöðin liggja frammi. Allir velkomnir nær og fjær.
Boðinn Kl. 13 Bridge og Kanasta.
Garðabæ Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara í síma 617-
1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14-15.45. Gönguhópur
fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 10-14. Heitt á könnunni, allir
velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 Handavinna, kl.13 Handavinna.
Gullsmári Myndlist kl. 9, boccia kl. 9.30, ganga kl. 10, kanasta kl. 13.
Fótaaðgerðastofa á staðnum, allir velkomnir!
Hæðargarður 31 Sumaropnun Félagsmiðstöðin er opin frá 10-14 í
júlímánuði nánar í síma 411-2790.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Aldarminning
Garðar Jóhanns-
son fæddist á Hóli í
Þorgeirsfirði í
Fjörðum, Grýtu-
bakkahreppi í Þing-
eyjarsýslu 25. júlí
1917. Hann lést á
Hrafnistu í Reykja-
vík 16. júlí 2010.
Foreldrar hans
voru Jóhann Bald-
vin Sigurðsson,
bóndi á Hóli og síð-
ar Þönglabakka í sömu sveit, f.
21. nóvember 1877 á Skógum í
Glæsibæjarhreppi, Eyjafirði, d.
17. apríl 1958, og Sigríður Jóns-
dóttir, f. 28. desember 1877 á
Helgustöðum í Fljótum í Skaga-
firði, d. 18. september 1976.
Garðar var einn af tíu systkinum
sem eru öll látin: Jónína Hólm-
fríður, f. 1900, Sigurður, f. 1903,
Margrét, f. 1905, Sigurlaug, f.
Garðar Jóhannsson
1907, Ingólfur, f.
1909, Magnús, f.
1911, Ingibjörg, f.
1913, Hjörleifur, f.
1915, og Baldvin
Vilhelm, f. 1919.
Garðar kvæntist
árið 1943 Sigrúnu
Jónsdóttur, f. 8.
september 1918, d.
24. apríl 1988, hún
var dóttir Jóns
Indriðasonar og
Jónínu Guðrúnar Jónsdóttur.
Garðar og Sigrún stofnuðu heim-
ili á Patreksfirði. Þau eignuðust
sjö börn, eina dóttur og sex syni:
1) Hjörvar, húsgagnasmiður í
Reykjavík, kvæntur Ágústu Þór-
isdóttur. 2) Jón Sverrir, mjólk-
urfræðingur í Reykjavík, kvænt-
ur Ernu M. Sveinbjarnardóttur.
3) Reynir, blikksmiður í Reykja-
vík, kvæntur Helgu Eygló Guð-
laugsdóttur. 4) Svanhildur Fann-
ey, sem þau misstu fárra mánaða.
5) Jóhann Baldvin, bankamaður í
Reykjavík, kvæntur Guðfinnu
Óskarsdóttur. 6) Guðjón Steinar,
lögregluvarðstjóri í lögreglunni á
Suðurnesjum, kvæntur Guðlaugu
S. Kjartansdóttur. 7) Vignir Ingi,
húsgagnasmiður, í sambúð með
Sigríði I. Gunnarsdóttur. Barna-
börnin eru orðin 20 og barna-
barnabörn eru 28.
Garðar flytur frá Patreksfirði
til Reykjavíkur 1960 með Sig-
rúnu og börnin og bjuggu þau
lengst á Hjallavegi 10. Sigrún
lést 24. apríl 1988. 1989 flytur
Garðar í Austurbrún 2 og þaðan í
Norðurbrún 1 en lokadval-
arstaður var Hrafnista í Reykja-
vík, deild H-2, þar sem hann
flutti inn í nýbyggt húsnæði.
Garðar sagði alltaf eftir að hann
flutti á Hrafnistu að nú væri
hann fluttur inn á fimm stjörnu
hótel og var hann alla tíð glaður
og sæll að hafa fengið að búa þar
og kynnast mörgu góðu fólki,
bæði vistmönnum og starfsfólki.
Garðar bjó í Kleppsholtinu frá
1960 til 2010 eða í hálfa öld.
Garðar starfaði lengt af sem
verkstjóri hjá Garðyrkjudeild
Reykjavíkurborgar, til 1987 eða
til 70 ára aldurs. Hann var fé-
lagsmaður í Verkstjórafélagi Ís-
lands. Áhugamál hans var gróð-
urrækt og stundaði hann
sjóstangaveiði í mörg ár meðan
heilsan leyfði. Þær voru ófáar
ferðirnar sem hann fór til veiða
bæði með bróður sínum Baldvini
og Rikka vini sínum sem bjó á
Hjallavegi 8 en dvelur nú á
Hrafnistu í Reykjavík. Sem
aukastarf með garðyrkjunni
vann hann alla tíð við að hirða og
standsetja lóðir fyrir ýmsa aðila
og voru þessi verk flest unnin í
Kleppsholtinu á árunum 1960-
1980.
Útför Garðars fór fram frá Ás-
kirkju 23. júlí 2010. Garðar er
jarðsettur í Fossvogskirkjugarði
ásamt eiginkonu sinni.
Guðjón St. Garðarsson.
✝ LofthildurKristín Lofts-
dóttir (Hidda)
fæddist 23. ágúst
1928. Hún lést á
Landakotsspítala 2.
júlí 2017 eftir
stutta legu þar.
Hún var næst-
elsta dóttir hjón-
anna Lofts Georgs
Jónsonar, f. 20.9.
1902 í Arney á
Breiðafirði, d. 20.2. 1969 í
Reykjavík og Laufeyjar Tóm-
asínu Einarsdóttur, f. 4.7. 1909
að Bjargi í Grindavík, d. 9.10.
1991 í Reykjavík.
Alsystkini Lofthildar eru Ey-
rún Lára Þórey, f. 13.10. 1926,
d. 30.1. 1993, maki Gunnar
Björgvin Gíslason; Guðmunda,
f. 17.11. 1930, maki Eyjólfur
Júlíus Kristjánsson, d. 1991;
Helga, f. 4.5. 1939, maki Gunn-
ar Kristjánsson, d. 2014; Eirík-
ur Jón, f. 7.9. 1944, d. 28.12
1945; Hrefna Björk, f. 11.2.
1947, maki Hjörtur Hafsteinn
Karlsson. Hálfbróðir samfeðra
Skarphéðinn Kristinn, f. 27.7.
1922, d. 28.6. 2001, maki Erla
Kristín Þorvaldsdóttir, d. 2010.
f. 29.3. 1985. 3) Eiríkur, f. 20.3.
1956, maki Jakobína H. Grön-
dal. Börn þeirra eru: Ragnar
Halldór, f. 27.8. 1969, d. 27.5.
1976; Ingibjörg Kristín, f. 16.12.
1973, maki Ágúst Geir Ágústs-
son; Ragnar Halldór, f. 31.8.
1976 og Eiríkur Hafsteinn, f.
9.2. 1979. 4) Ragnar, f. 19.2.
1960, d. 23.1. 1993. Var giftur
Maríu Vargas, börn þeirra eru:
Fabian Daniel, f. 11.5. 1981 og
Ragnar Estefan, f. 14.8. 1992. 5)
Rannveig Sigríður, f. 12.1.
1965, maki Aðalsteinn Sigurvin
Sverrisson. Sonur þeirra er
Loftur Georg, f. 9.12. 1991. 6)
Helga Magnea, f. 12.1. 1965,
sonur hennar Hannes Ragnar
Ólafsson, f. 18.11. 1983. Loft-
hildur átti einnig 25 langömmu-
börn og fjögur langalang-
ömmubörn. Svo hún skildi eftir
sig stóran hóp afkomenda.
Hidda kynntist Ragnari
Franzsyni 1946. Þau hófu fljót-
lega sambúð og giftust 1948.
Ragnar var lengst af sjómaður
og skipstjóri á togurum. Var
þar af leiðandi mikið fjarri fjöl-
skyldu sinni vegna vinnu sinn-
ar. Hidda var þá ein með fjöl-
skylduna í landi, gat þá oft
reynt mikið á hana þegar hóp-
urinn var orðinn sex börn. En
hún stóð alltaf sína plikt með
sóma.
Meira: mbl.is/minningar
Útför Lofthildar fór fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Lofthildur giftist
Ragnari Franzsyni
30. júlí 1948. For-
eldrar hans: Franz
Ágúst Arason, f.
13.8. 1897, d. 23.11.
1983, og Þórunn
Sigríður Stef-
ánsdóttir, f. 5.1.
1897, d. 9.8. 1928.
Uppeldisfaðir
Ragnars var Hann-
es Stefánsson, f.
2.7. 1892, d. 2.1 1974. Lofthild-
ur og Ragnar stofnuðu heimili
að Bólstaðarhlíð 13. Börn
þeirra sex að tölu eru: 1) Hann-
es Þór, f. 3.8. 1947, maki Ólöf
Stefánsdóttir. Börn þeirra: Lilja
Hildur, f. 26.2. 1968 og Stefán
Þór, f. 2.8. 1980, maki Að-
alheiður Dröfn Bjarnadóttir. 2)
Bergþór, f. 30.12. 1948, maki
Þórdís Friðfinnsdóttir. Börn
þeirra: Tómas Friðfinnur, f.
29.7. 1967, maki Vigdís Hlín
Friðþjófsdóttir; Lofthildur
Kristín, f. 19.7. 1968, maki Arn-
finnur Þór Jónsson; María Sif, f.
15.11. 1979, maki Ólafur Hall-
dór Hafsteinsson; Arnar Þór, f.
29.3. 1985, sambýliskona Krist-
jana Símonardóttir; Aron Már,
Okkur langar að minnast
elskulegrar móður okkar, sem
nú er farin á þann stað sem við
öll förum á að lokum. Við sjáum
þann stað misjafnlega fyrir okk-
ur í huganum en við vitum að
mamma sá hann fyrir sér sem
fallegan og bjartan stað, sumar-
landið fagra. Hún hafði líka þá
trú að þegar hún færi í sumar-
landið þá myndi hún hitta það
fólk sem farið var á undan henni.
Við trúum að hún hafi rétt fyrir
sér og að á móti henni hafi tekið
ásamt öðrum Lára elsta systir
hennar, Eiríkur litli bróðir henn-
ar sem tekinn var frá henni á
öðru aldursári, hún syrgði hann
alltaf mikið, og Ragnar yngsti
sonur hennar sem var tekinn frá
henni allt of snemma. Við trúum
að hann hafi umvafið hana sínum
traustu örmum þegar hún kom
yfir í sumarlandið fagra.
Mamma fékk það hlutskipti
hér á jörðinni að verða húsmóðir,
gift sjómanni, föður okkar Ragn-
ari Franzsyni skipstjóra. Saman
eiga þau sex börn, fjóra syni og
tvær dætur, tvíburasysturnar
Rannveigu og Helgu. Eins og að
framan er sagt missti hún
yngsta soninn aðeins 32 ára
gamlan. Ragnar var þá skip-
stjóri suður í Chile, var það mikil
harmur fyrir mömmu og alla
fjölskylduna.
Eins oft er á kveðjustund leit-
ar hugurinn aftur í tímann, þeg-
ar við vorum litlir strákar og
mamma stjórnaði heimilinu,
meðan pabbi stjórnaði skipinu
úti á sjó og var oft lengi að heim-
an, jafnvel svo mánuðum skipti.
Þá reyndi oft mikið á mömmu,
enda sagði hún okkur að við
bræðurnir hefðum verið uppá-
tektarsamir og misjafnlega þæg-
ir. En mamma stóð alltaf fyrir
sínu með uppeldið, hún var ástrík
og góð móðir. Okkur er minnis-
stætt þegar óveðrin geisuðu og
pabbi var á sjónum, þá var beðið
fyrir honum að hann kæmist heill
í höfn, og það var alltaf mikil
veisla hjá okkur þegar pabbi kom
heim af sjónum, sem hann gerði
alltaf sem betur fer.
Mamma var falleg og ákaflega
góð kona, það leituðu margir til
hennar sem áttu um sárt að
binda og var þeim aldrei vísað
frá. Okkur er minnisstætt að hún
færði fjölskyldum sem áttu bágt
og hún þekkti til aðstoð fyrir jól-
in í formi matargjafa, enda taldi
hún sig aflögufæra. Mamma var
mjög stolt kona og fjölskyldan
var henni allt, hún stóð alltaf eins
og klettur með sinni fjölskyldu.
Við vitum að pabbi á erfitt
núna enda búinn að vera giftur
mömmu í rúm 70 ár. Hugur okk-
ar er og verður líka hjá honum á
þessari kveðjustund.
Við kveðjum elskulega móður
okkar með þakklæti og kærleika
í huga.
Ef sérð þú gamla konu, þá minnstu
móður þinnar,
sem mildast átti hjartað og þyngstu
störfin vann
og fórnaði þér kröftum og fegurð æsku
sinnar
og fræddi þig um lífið og gerði úr þér
mann.
(Davíð Stefánsson.)
Hannes, Bergþór, Eiríkur.
Elsku mamma, hve sárt það er
að þurfa að kveðja þig. Það var
svo gaman að hlusta á sögurnar
þínar um æskustöðvarnar í
Grindavík, lífsbaráttan var hörð
og mennirnir sóttu sjóinn á opn-
um bátnum og sumir áttu ekki
afturkvæmt. Þú varst víðlesinn
og miðlaðir óspart af fróðleik til
barna og barnabarna, þú hafðir
sterka réttlætiskennd og þoldir
ekki mismunun og óréttlæti, þú
fagnaðir fjölbreytileikanum og
allir voru velkomnir inn á þitt
heimili.
Þú kenndir okkur að vera heið-
arleg og koma eins fram við alla
jafnt menn sem dýr. Þú varst
fyrirmyndarhúsmóðir og matur-
inn þinn var engu líkur. Þú bjóst
til heilu sögurnar og ævintýrin
sem þú sagðir okkur á kvöldin,
þau lifa í minningunni. Þú sagðir
okkur frá Guðrúnu ömmu þinni
og hversu vænt þér þótti um
hana, þið fóruð á hverjum sunnu-
degi saman til kirkju þegar þið
bjugguð í Grindavík. Ung að ár-
um kynntist þú sorginni þegar þú
misstir bróður þinn Eirík en
hann var á öðru ári. Aftur barði
sorgin að dyrum þegar þú misstir
drenginn þinn hann Ragnar og
Láru systur þína með viku milli-
bili. Styrkur þinn var mikill og þú
hafðir alltaf eitthvað að gefa
þrátt fyrir mótlæti í lífinu. Þú
varst glæsileg kona og eftir þér
var tekið hvar sem þú komst. Þú
varst trúuð og við gleymum aldr-
ei orðum þínum þegar þú sagðir
við okkur að einn dagur hjá guði
væri heil eilíf á jarðríki. Nú ertu
komin til þeirra sem þú saknaðir
og unnir svo mikið og þú tekur á
móti okkur, elsku mamma, þegar
kallið kemur. Þitt uppáhaldsljóð-
skáld var Einar Benediktsson,
því viljum við kveðja þig með
ljóði eftir hann og bæn sem þú
kenndir okkur í æsku.
Hvíl í friði, elsku mamma.
Móðir. Ég sigli minn sjó fram á haust.
Til suðurs hver fold er í kafi. –
En Sóley rís úti, sveipuð laust
í svellgljá og kvöldroða-trafi.
Hér á að draga nökkvann í naust.
Nú er ég kominn af hafi.
Í borga og stranda streymandi sveim
mín stjarna leit til þín í vestur; –
því hvar er svo fátt sem í hópsins geim,
eða hljótt sem þar glaumur er mestur?
Og venur það ekki viljann heim
að vera hjá sjálfum sér gestur?
Í förum, við öldu og áttar kast,
margt orð þitt mér leið í minni.
– Draumarnir komu. Ég lék og þú last
í lítilli stofu inni.
Hvort logn var á sæ eða bára brast,
þú bjóst mér í hug og sinni.
Við spor hvert um Bifröst, að Heljar
hyl,
til himins vor tunga hjó vörðu.
Þú last – þetta mál með unað og yl
yngdan af stofnunum hörðu.
– Ég skildi að orð er á Íslandi til
um allt sem er hugsað á jörðu.
Þú elskaðir stökunnar máttuga mál,
myndsmíð vors þjóðaranda,
þar ættirnar fága eldgamalt stál
í einvistum fjalla og stranda,
– við öræfamorgunsins brúnabál,
við brimþunga mannauðra sanda.
Frá árbjarma fyrstu æsku ég man
óm þinna glötuðu stefja.
Enn finnst mér ég heyra fjallasvan
í fjarska sín vegaljóð hefja.
– Svo finn ég, hjá ísunum, móðurman
í mjúku fangi mig vefja.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Meira: mbl.is/minningar
Rannveig og Helga.
Lofthildur Kristín
Loftsdóttir