Morgunblaðið - 25.07.2017, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 206. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Gleðiljómanum kippt undan …
2. Tíminn rann út fyrir Charlie Gard
3. „Ég vil bara fara heim,“ segir …
4. Myndaði kvenkyns gesti …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Halldóra Geirharðsdóttir sest aftur
í leikstjórastólinn á næsta leikári og
stýrir breska gamanleiknum The play
that goes wrong eftir Henry Lewis,
Jonathan Sayer og Henry Shields í
þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar, sem
frumsýndur verður á Nýja sviðinu í
mars 2018. Leikritið hlaut Olivier-
verðlaunin sem besti gamanleikurinn
í Bretlandi árið 2015 og var nýverið
frumsýnt á Broadway. Verkið fjallar
um leikhóp sem gefst færi á að setja
upp morðgátu og lítur á það sem
stórt tækifæri. Allt fer þó á annan
veg en ætlað var þegar ýmsir hlutar
sýningarinnar klikka, hvort heldur
leikarar, leikmynd eða leikmunir. Með
hlutverk fara Bergur Þór Ingólfsson,
Björn Stefánsson, Hilmar Guð-
jónsson, Hjörtur Jóhann Jónsson,
Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Krist-
ín Þóra Haraldsdóttir og Þuríður Blær
Jóhannsdóttir.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Allt klikkar á sýningu
í Borgarleikhúsinu
Bassaleikarinn Örn Ingi Unnsteins-
son kemur ásamt kvartetti sínum
fram á Kex hosteli í
kvöld kl. 20.30. Með
honum leika Stefan
Karl Schmid á saxófón,
Yannis Anft á hljóm-
borð og Jan Philipp á
trommur. Megnið af
tónlistinni sem kvart-
ettinn flytur er eftir
Örn Inga en lög eftir
aðra hljómsveitar-
meðlimi fljóta einnig
með. Aðgangur er
ókeypis.
Kvartett Arnar Inga
Unnsteinssonar á Kex
Á miðvikudag Austlæg átt, 5-13 en 10-18 með suðurströndinni.
Víða léttskýjað, en þokuloft við austurströndina. Hiti 8 til 24 stig,
hlýjast vestanlands, en svalast í þokuloftinu.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi vindur við suður- og suðvestur-
ströndina, 10-18 seint í kvöld, hvassast undir Eyjafjöllum. Skýjað
að mestu suðaustanlands. Hiti 10 til 24 stig, hlýjast í innsveitum.
VEÐUR
Aron Pálmarsson, lands-
liðsmaður í handknattleik,
neitaði að mæta á fyrstu
æfingu ungversku meist-
aranna Veszprém á und-
irbúningstímabilinu og er
kominn heim til Íslands.
Frá þessu er greint á vef
Veszprém. Þar er haft eftir
Ljubomir Vranjes, nýráðn-
um þjálfara liðsins, að
hann muni ekki nota Aron
á komandi keppnis-
tímabili. »1
Aron neitar að æfa
með Veszprém
„Við ætlum að vinna, við erum alveg
á því getustigi en það þarf margt að
ganga upp. Við erum að fínpússa okk-
ar leik og núna þurfum við að skrúfa
upp einbeitinguna og halda henni í
þessa viku sem er eftir,“ segir Ómar
Ingi Magnússon, leikmaður 21-árs
landsliðsins í handknattleik sem
mætir Túnis í 16-liða úrslitum á
heimsmeistaramótinu í Alsír. »2
Stefnir á sigur á heims-
meistaramótinu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
„Ég er bara búinn að vera að dunda
mér við þetta í eldhúsinu heima,“
segir Pétur Pétursson, en hann hef-
ur verið að þróa íslenskan mjólkur-
líkjör sem unninn er úr rjómablandi
og alkóhóli úr mysu.
Pétur er mjólkurtæknifræðingur
að mennt og hefur unnið ýmis störf
innan mjólkuriðnaðarins, meðal ann-
ars sinnt ostagerð, ísgerð og smjör-
gerð.
„Hugmyndin kviknaði fyrir ellefu
árum, en síðustu sjö árin hef ég ver-
ið að þróa líkjörinn með hléum. Mér
fannst þetta vera sniðugt og öðru-
vísi, en frumgerðin var unnin heima í
eldhúsi þar sem fjölskyldan, vinir og
vinnufélagar voru fengin til að
smakka. Síðustu ár hefur hvert
tækifæri verið nýtt til að kynna vör-
una, fá viðbrögð og endurbæta
bragð og áferð. Þegar það varð ljóst
hve mikill áhugi var á vörunni var
farið í að útfæra uppskriftina enn
frekar,“ segir Pétur, en frumgerð
vörunnar er nú tilbúin.
Líkjörinn hefur nú hlotið styrk frá
Auðhumlu og Matís til framhalds-
vinnu vegna prófana og vinnsluferla
og segist Pétur vera mjög þakklátur
fyrir styrkinn.
Töluvert mikið nýnæmi
„Það sem kom mér mest á óvart
er hversu flókið ferli það er að búa til
þennan drykk,“ segir Pétur og bætir
við að mikil tækni felist í framleiðsl-
unni. „Vinnsluferlið er ekki
eitthvað sem þú
leitar bara að
á netinu, það
eru mikil
fræði á bak
við þetta og
flókin vinnslu-
tæki.“
Pétur segir
verkefnið vera
töluvert mikið nýnæmi þar sem aldr-
ei áður hafi verið framleiddur áfeng-
ur drykkur úr íslenskri mjólk, né
mysa verið nýtt við gerð líkjörs.
„Það sem var mér mikilvægast
þegar ég byrjaði var að einbeitingin
væri á mjólkina og að nýta það sem
fer oft til spillis, s.s. mysu. Það er því
verið að sporna við sóun matvæla og
minnka umhverfismengun til að ná
fram aukinni verðmætasköpun,“
segir hann og bætir við að líkjörinn
sé mjög bragðgóður og alíslenskur
drykkur.
„Þetta er búið að vera ótrúlega
skemmtilegt og ég er mjög þakk-
látur öllum sem hafa stutt við bakið
á mér öll þessi ár. Ef þú ert með eitt-
hvað svona í hausnum þá þýðir ekk-
ert að gefast upp.“
Líkjör úr íslenskri mjólk
Hugmyndin
kviknaði fyrir
ellefu árum
Morgunblaðið/Golli
Mjólkurlíkjör Pétur hefur verið að þróa íslenskan mjólkurlíkjör sem unninn er úr rjómablandi og alkóhóli úr mysu í
sjö ár og er frumgerð vörunnar nú tilbúin. Líkjörinn hefur hlotið þriggja milljóna króna styrk til framhaldsvinnu.
Í vor gerðu Auðhumla og Matís
samning um verkefnið Mjólk í
mörgum myndum þar sem veittir
eru styrkir til frumkvöðlastarfs
þar sem mjólk kemur
við sögu sem hrá-
efni.
Á fundi stjórnar
Auðhumlu 29. júní
sl. var ákveðið að
veita að þessu
sinni þrjá styrki.
Biobú og fleiri með verkefnið
Heillandi máttur lífrænnar mysu
og Pétur Pétursson með verkefnið
íslenskur mjólkurlíkjör fengu þrjár
milljónir hvor aðili í styrk. Þriðja
verkefnið er Broddur byggir upp
sem Birna G. Ásbjörnsdóttir og
Guðmundur Ármann Pétursson
standa fyrir en þau hlutu 500 þús-
und krónur í styrk.
Matís mun síðan annast utan-
umhald verkefnanna.
Þriggja milljóna króna styrkur
MJÓLK Í MÖRGUM MYNDUM
„Við erum alltaf að glíma við það að
hafa ekki sama úrval og aðrar þjóðir.
Okkur vantar tæknilega góðan miðju-
mann sem er með meira hugmynda-
flug fram á við. Spurningin er hvort
við séum að einblína of mikið á lík-
amlega þáttinn og eigum hreinlega
ekki þessa leikmenn sem eru ofboðs-
lega góðir tæknilega séð,“
segir Þorlákur Árnason
um stöðu mála hjá
kvennalandsliðinu í
knattspyrnu. »3
Er of mikið einblínt á
líkamlega þáttinn?