Morgunblaðið - 31.07.2017, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 31.07.2017, Blaðsíða 13
Nepal Fátækt er mikil í Nepal og og samtökin styrkja margar af fátækustu stúlkum Nepals til náms. þessi kona heitir Sara Safari. Hún hafði verið á Everest, á leið á tindinn, þegar jarðskjálftinn varð. Hún lifði af, fyrir ótrúlegt kraftaverk má segja, en hún hafði ætlað sér að vekja at- hygli á þessum samtökum. Þegar ég skoðaði prófílinn hennar leiddi það mig inn á vef samtakanna og ég fór að lesa mér til um þau.“ Mjög persónuleg samtök Áhugi Guðrúnar var vakinn og hún ákvað að kynna sér samtökin enn frekar. „Ég keypti bók sem Sara og stofnandi Empower Nepali Girls gáfu út í sameiningu, sem fjallaði bæði um ævintýraferð Söru og samtökin. Var ekki lengi með þessa bók því hún var svo spennandi, og varð heilluð af þessu starfi þeirra. Þetta eru lítil samtök sem voru stofnuð af banda- rískum sálfræðingi og styrkja nep- alskar stelpur úr lægstu stigum þjóð- félagsins til náms. Þannig reyna þau að minnka hættuna á því að þær verði seldar í kynlífsþrælkun eða giftar barnungar.“ Guðrún segir samtökin hafa náð góðum árangri þessi 15 ár sem þau hafi verið starfrækt. „Empower Nepali Girls eru núna að styrkja um 300 stúlkur. Það sem er svo dásamlegt við þessi sam- tök er að þau eru persónuleg, bæði stelpunum og fjölskyldum þeirra er var Guðrún ákveðin í að leggja sitt af mörkum. Hún kannaði hvaða teng- ingu samtökin hefðu við Ísland, en komst að því að engin slík var til. Hún ákvað því að grípa til sinna ráða. „Ég skrifaði Söru tölvupóst og spurði hana hvað við gætum gert hér heima. Í kjölfarið stofnuðum við Íslandsdeild samtakanna. Eftir að við höfðum rætt mikið saman kom Sara til Ís- lands í byrjun mars og hélt hérna fyr- irlestur um ferðina sína á Everest. Við héldum svo stofnfund Íslands- deildarinnar. Við fylltum stóra stofu í Háskóla Reykjavíkur, fólk var alveg ótrúlega heillað af Söru og hennar frásögn.“ Í framhaldi af stofnfund- inum héldu þær Sara og Guðrún við- burðinn Mitt eigið Everest sem hald- inn var á Úlfarsfelli í maí síðastliðnum. „Ég sagði við Söru þegar ég skrifaði henni fyrst að ég væri aldrei að fara að klífa Everest en ég hlyti að geta fundið mitt eigið Everest til að klífa. Þannig kom það til að halda þennan viðburð á Úlfarsfelli. Mér fannst vanta fjölskylduviðburð sem tengist fjallgöngum. Þarna vorum við með fjallgönguviðburð sem öll fjöl- skyldan gat komið og tekið þátt í. Við vorum nokkur sem gengum í fjórtán tíma upp og niður Úlfarsfell. Þeir sem fóru oftast fóru allt upp í tólf ferðir, nokkrir fóru níu ferðir og svo voru margir sem fóru bara eina ferð. Fyrir þá jafnaðist það á við að klífa Everest-fjall, að komast einu sinni upp á Úlfarsfellið. Allir tóku sína áskorun og fóru út fyrir þæg- indarammann. Þetta var ótrúlega vel heppnað og skemmtilegt.“ Þessi mikla athafnakona hefur síður en svo lagt árar í bát þrátt fyrir að vera kannski ekki að fara að klífa Everest- fjall. Margt smátt gerir eitt stórt „Ég er að fara að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu núna í ágúst og er að safna áheitum fyrir Empo- wer Nepali Girls. Við erum komin með yfir 20 hlaupara sem hafa valið samtökin sem sitt áheitafélag sem er frábært.“ Guðrún skorar á fólk að styrkja samtökin, því margt smátt geri eitt stórt og það geti skipt sköp- um. „Það er hægt að gera svo ótrú- lega mikið fyrir svo lítið. Fyrir litlar 20 þúsund krónur er hægt að styrkja eina stelpu í Nepal til náms í heilt ár. Okkar peningar hér á Íslandi marg- faldast í virði þegar þeir eru komnir til Nepals. Það er svo lítið sem þarf, það sem við getum lagt af mörkum getur orðið að svo ótrúlega miklum verðmætum í lífi þessara stúlkna,“ segir Guðrún. Vinkonur Guðrún Harpa og Sara Safari uppi á Úlfarsfelli í maí. fylgt mjög vel eftir. Það fara sjálf- boðaliðar nokkrum sinnum á ári út til Nepals til að heimsækja þær og sjá til þess að þær séu örugglega að sækja skólann. Skólagjöldin og allur kostn- aður er greiddur beint þannig að fjöl- skyldan getur ekki ráðstafað pening- unum sjálf. Það er bara verið að greiða fyrir skólagönguna, þannig að það er góð eftirfylgni. Fyrstu stúlk- urnar sem voru styrktar fyrir 15 ár- um eru núna komnar í gegnum há- skóla.“ Fann sitt eigið Everest Eftir að hafa kynnt sér samtökin Samtökin Empower Nepali Girls voru stofnuð fyrir 15 árum. Á þeim árum hefur mikið og gott starf unnist en samtökin vinna eftir þeirri hugsjón að breytingar náist í gegnum menntun kvenna í verkfræði og læknisfræði meðal annars. Um góðgerðarsamtök er að ræða sem treysta á framlag velviljaðra einstaklinga og fyr- irtækja. Samtökin fagna því nú að fyrstu stúlkurnar sem styrktar voru hafa lokið háskóla og því sannarlega hægt að tala um að góður árangur hafi náðst. Á heimasíðu samtakanna www.empowernepaligirls.org má finna allar helstu upplýsingar Um Empower Nepali Girls GÓÐUR ÁRANGUR HEFUR NÁÐST NÚ ÞEGAR DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2017 HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum g auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu g fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R o o Galdrastrákurinn góðkunni, Harry Potter, er 37 ára í dag. Af því tilefni verður svokallaður Harry Potter- dagur haldinn hátíðlegur á bóka- safni Kópavogs. Harry Potter- kvikmyndamaraþon hefst klukkan 09:00. Klukkan 14:00 verður svo töfrandi sögustund þar sem að fyrsti kaflinn í Harry Potter og viskusteininum verður lesinn. Bókasafn Kópavogs hvetur alla til þess að mæta uppá- klæddir sem uppáhaldspersónan sín og njóta dagsins. Þá verður einnig Harry Potter- þema á bókasafninu í Garðabæ, og þar verður boðið upp á afmæl- iskaffi, ásamt því að Harry Potter- þraut verður lögð fyrir gesti. Þeir sem geta leyst þrautina verða verð- launaðir með veglegum Harry Pot- ter-gjöfum. Sögurnar um galdrastrákinn eftir J.K. Rowling hafa notið fádæma vin- sælda síðan fyrsta bókin kom út fyrir 20 árum og virðist ekkert lát vera á þeim vinsældum. Ungir sem aldnir njóta sagnanna ennþá í dag. Galdrastrákurinn sem allir þekkja fagnar tímamótum Reuters Vinsæll Harry Potter á afmæli í dag. Sögurnar um hann lifa enn góðu lífi. Afmæli Harry Potter fagnað í Kópavogi og í Garðabæ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.