Morgunblaðið - 31.07.2017, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 31.07.2017, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2017 VEISLUÞJÓNUSTA MARENTZU www.marentza.is - 553 8872 - info@marentza.is Allar gerðir af veislum sérsniðnar að þínum þörfum • Fermingarveislur • Brúðkaup • Erfidrykkjur • Veitingar fyrir fundi • Móttökur • Útskriftir Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Allt í heyskapinn Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Blendnar tilfinningar ríkja meðal kaupenda og verslunareigenda í Mósúl eftir að hersveitir Íraka endurheimtu völdin í borginni eftir þriggja ára blóðuga baráttu við liðsmenn vígasamtaka Ríkis íslams. Sumir kaupendur og verslunar- eigendur í Gugjali, einu fyrstu svæðanna sem hersveitir Íraka endurheimtu, í austurhluta Mósúl, segja stjórnvöld ekki hafa gert nóg til þess að endurbyggja svæðið en aðrir vonast til þess að utanaðkom- andi aðstoð berist. Yunes Abdullah, fyrrverandi hermaður, rekur viðgerðabás fyrir rafmagnstæki á markaði í Gugjali. Hann segir stjórnvöld ekki hafa gert nóg til þess að endurbyggja borgina. „Mósúl verður aldrei söm. Stjórnvöld hafa ekki gert neitt, hvorki vegir né byggingar hafa verið endurreist og svo er það fólk- ið í borginni sem sér um að þrífa strætin,“ segir Abdullah og bætir við að hann telji yfirvöld í landinu óheiðarleg þar sem þau dragi sér fé borgaranna. Hann viðurkennir þó að stjórnvöld haldi landinu öruggu, en í dag eru þrjár vikur liðnar síðan hersveitir Íraka lýstu yfir sigri í borginni. Aðrir versl- unareigendur á svæðinu taka í svipaðan streng og telja stjórnvöld ekki hafa gert neitt fyrir íbúa landsins sem misst hafa allar eigur sínar í stríðsátökunum. Skiptar skoðanir eru meðal fólks á mark- aðinum í Gugjali um stöðu og framtíð Mósúl; einhverjir telja borgina þurfa á aðstoð Bandaríkj- anna að halda, aðrir segja ríkis- stjórnina þurfa meiri tíma og enn aðrir segja ástandið hafa batnað töluvert. Þeir sem eru á mark- aðnum, neytendur og verslunareig- endur, nota þó allir sama frasann; „Inshallah“, sem merkir „vilji guðs“ á arabísku. Þeir vonast til þess að öryggi og uppbygging borgarinnar verði til þess að það fólk sem flúði borgina snúi aftur. Meðal neytenda sem staddir voru á markaðnum er fréttamaður AFP kom þar við er Mohammed Jassen. Hann segir fólk í borginni þurfa að sýna þolinmæði, Mósúl verði ekki endurreist á einni nóttu. „Stjórnvöld hafa mikið á sinni könnu, þau þurfa tíma til þess að fá hlutina til þess að ganga sinn vanagang á nýjan leik,“ segir hann og bætir við að endurreist innviða landsins eigi að vera í algjörum forgangi. „Uppbygging innviða borgarinnar ætti að vera forgangs- mál yfirvalda, það þarf að endur- byggja vegi, spítala og byggingar borgarinnar,“ segir hann. „Mósúl verður aldrei söm“  Hluti verslunareigenda og kaupenda í Mósúl óánægður með aðgerðarleysi yfir- valda á meðan aðrir telja þau þurfa tíma  Vonast er til að íbúar snúi aftur heim AFP Verslun Á markaði í austurhluta Mósúl má nú finna fisksala á ný, en vígamenn Ríkis íslams hafa misst tök sín á borginni. Íbúar eru þó margir hverjir uggandi yfir ástandinu og ekki eru allir á eitt sáttir við aðgerðir stjórnvalda. Herdómstóll í Ísrael hefur staðfest dóm yfir þarlendum her- manni, Elor Az- aria, sem dæmd- ur var í 18 mán- aða fangelsi fyrir manndráp. Var hann sak- felldur fyrir að hafa í byrjun árs skotið til bana palestínskan árásarmann, en málið vakti mikla athygli í Ísrael og klauf þjóðina í tvær andstæðar fylkingar. Azaria, sem er 20 ára, skaut ungan pilt í höfuðið eftir að sá hafði verið afvopnaður skömmu áður. Pilturinn, sem var 21 árs gamall, hafði þá veist að ísr- aelskum hermanni á Vesturbakk- anum með eggvopni. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísr- aels, hefur þegar krafist þess að Azaria verði náðaður. ÍSRAEL Herdómstóll stað- festi fangelsisdóm Elor Azaria Rússneskir sjóliðar gengu í gær taktföstum skrefum í borginni Sevastopol á Krímskaga, en verið var að halda upp á afmæli rússneska flotans. Hátíðahöld fóru víðar fram, meðal annars í Pétursborg, fæðingarstað sjóhersins rússneska, og tóku um 50 herskip og kafbát- ar þátt í ýmsum hersýningum. Rússneskir hermenn sýndu mátt sinn í Sevastopol á Krímskaga AFP Hersýningar í tilefni afmælis flotans Vladimir Pútín, forseti Rússlands, staðfesti í gærkvöldi að 755 starfsmenn bandarísku utanríkisþjónustunnar myndi yfirgefa landið 1. september næstkomandi. Með þessu eru rússnesk yfirvöld að svara nýjum lög- um um hertar viðskiptaþvinganir gegn Rússum sem samþykkt voru í bandaríska þinginu á föstudaginn sl. Do- nald Trump, bandaríkjaforseti hefur gefið í skyn að hann muni undirrita lögin á næstu dögum. Lagasetningin mikil vonbrigði Vladimir Pútín segir lögin mikil vonbrigði þar sem hann hafi vonast til þess að samband landanna myndi batna. „Ég hef ákveðið að 755 bandarískir erindrekar af svona um það bil 1000 sem núna eru í Rússlandi muni hætta að starfa í landinu. Ég hafði vonast til þess að sam- band landanna myndi batna en miðað við núverandi að- stæður er talsverður tími þangað til af því verður,“ sagði Pútín í samtali við rússneska ríkisútvarpið. Utanríkisráðuneyti Rússa hefur áður krafist þess að dregið yrði úr viðveru Bandaríkjanna í Rússlandi. Ráðu- neytið hefur sagt að það telji að Bandaríkjamenn eigi að hafa jafnmarga diplómata í Rússlandi og Rússar eru með í sinni þjónustu í Bandaríkjunum eða 455 talsins. aronthordur@mbl.is Rússar senda bandaríska erindreka til síns heima  Svar við hertum viðskiptaþvingunum Bandaríkjamanna Bandaríkjaher prófaði í gær með góðum árangri THAAD-eld- flaugavarnakerfið sem sett hefur verið upp á Kóreuskaga og vest- anhafs vegna tíðra tilrauna stjórn- valda í Pjongjang með kjarnavopn og skotflaugar. Í prófinu var eldflaug skotið úr flugvél bandaríska flughersins yfir Kyrrahafinu. Eining THAAD- kerfisins í Alaska varð vör við, elti uppi og stöðvaði skotmarkið. BANDARÍKIN Eldflaugavarnir prófaðar á skotmörk

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.