Morgunblaðið - 31.07.2017, Síða 20

Morgunblaðið - 31.07.2017, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2017 ✝ Gísli Arasonfæddist 16. september 1917. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Skjólgarði 21. júlí 2017. Foreldrar hans voru Sigríður Gísladóttir og Ari Sigurðsson, Borg á Mýrum, A-Skaft. Gísli var þriðji elstur af ellefu systkinum, þau voru Vigfús, Sigurður, Fjóla, Guðjón, Lilja, Ástvaldur, Stein- unn, Ragnar, Jón og Hólm- fríður. Á lífi eru Lilja, Ragnar, Jón og Hólmfríður. Gísli kvæntist Álfheiði Magn- Björn Björnsson og eiga þau tvær dætur. Andvana fæddur sonur, f. í janúar 1958. Erna, f. 28.9. 1959, maki Haukur Reyn- isson og eiga þau þrjú börn. Barnabarnabörnin eru 22 og barnabarnabarnabörnin tvö. Gísli vann ýmis verka- mannastörf til sjós og lands en lengst af vann hann við Mjólk- ursamlag KASK. Seinni hluta starfsævinnar var hann heil- brigðisfulltrúi og safnvörður við Byggðasafn A-Skaft. Hann vann ötullega að stofnun þess. Gísli hafði mikinn áhuga á fé- lagsmálum, starfaði m.a. í Leik- félagi Hornafjarðar og Félagi aldraðra og söng með ýmsum kórum. Hann var mikill nátt- úruunnandi og átti mikið steina- safn. Útförin fer fram frá Hafnar- kirkju í dag, 31. júlí 2017, kl. 14. úsdóttur, f. 29.7. 1919, d. 1.2. 2015, 19.5. 1940. Gísli og Álfheiður hófu bú- skap í Holtum á Mýrum en fluttu á Höfn 1946 og bjuggu þar til ævi- loka. Þau eign- uðust sex börn. Guðrún Sigríður, f. 8.4. 1941, maki Eymar Ingvarsson og eiga þau tvö börn. Sig- urborg, f. 25.6. 1943, maki Ing- ólfur Arnarson og eiga þau þrjár dætur. Magnhildur, f. 7.7. 1946, d. 25.2. 2016, maki Þór- ólfur Árnason og átti hún einn son. Ingibjörg, f. 6.9. 1951, maki Elsku besti afi minn, Gísli Ara- son, er látinn. Afi Gísli hafði einstaklega góða nærveru. Fas hans einkenndist af rólyndi og hann var blíður og ljúfur með eindæmum. Þess vegna var alltaf gott að vera nálægt afa. Minningarnar hafa hrannast upp í huga mínum undanfarna daga. Meðal annars eru það mosa- ferðirnar sem hann fór með okkur barnabörnin í rétt fyrir jólin þegar við vorum lítil. Þá keyrði hann með okkur í bílnum sínum inn í sveit og þar náðum við í mosa svo að amma og mæður okkar gætu nú útbúið jólaskreytingar. Þetta þótti mér skemmtilegt og trúi því að afa hafi þótt það líka. Önnur minning er síðan sumar- ið 1982, en þá fluttum við fjölskyld- an búferlum frá Höfn til Egils- staða. Ég var svo lánsöm að fá að vera eftir á Höfn hjá ömmu og afa í Björk þegar mamma og pabbi fóru austur. Það var góður tími. Á þess- um tíma var afi safnvörður á Byggðasafni Austur-Skaftafells- sýslu sem staðsett var í Gömlubúð. Þáverandi forseti Íslands, frú Vig- dís Finnbogadóttir, var væntanleg í heimsókn austur, m.a. á byggða- safnið og tók afi ekki annað í mál en að ég fengi frí úr minni vinnu til að geta verið með honum þegar hann tæki á móti forsetanum okk- ar. Þetta þótti mér afar merkilegt og dagurinn er mér ljóslifandi í minningunni. Afi safnaði steinum og var mikill áhugamaður um þá. Þegar þau amma bjuggu í Björk var ævintýri líkast að fara í steinaherbergið og skoða steinana sem hann geymdi þar. Fáeinir þeirra prýða nú heim- ili mitt, en afi gaf dóttur minni þá vegna áhuga hennar á steinum. Það er notalegt að hafa þá hér því þeir minna okkur á afa. Afi var hafsjór af fróðleik og sögum og mér fannst alltaf gaman að hlusta á hann segja frá. Ósjald- an sátum við afi saman inni í her- bergi í Litlu-Björk, skoðuðum myndir, bækur, bréf og fleira í þeim dúr og afi þreyttist ekki á að segja mér frá fyrri tíð. Þetta eru ógleymanlegar stundir. Afi tók alltaf vel á móti okkur þegar við fjölskyldan litum inn, bæði í Litlu-Björk og síðar á hjúkr- unarheimilinu þar sem hann dvaldi síðustu æviárin sín. Börnunum mínum þótti langafi mjög merki- legur maður og nutu þess að vera samvistum við hann. Hann fylgdist vel með þeim og spurði alltaf um þau öll. Þegar langalangafastelpan bættist svo í hópinn fyrir tæpum þremur árum sýndi hann henni líka mikinn áhuga og vildi fylgjast með. Ég veit að þannig var því líka háttað með öll hin barnabörnin og barnabarnabörnin. Afi hafði áhuga á fólkinu sínu. Elsku afi minn, takk fyrir allar góðu stundirnar okkar, takk fyrir allan tímann sem þú gafst mér, takk fyrir allt sem þú kenndir mér. Ég mun aldrei gleyma þér. Nú ertu farinn til fundar við ömmu og ég veit að þið njótið þess að vera saman eins og áður. Hvíldu í friði, elsku afi. Álfheiður Ingólfsdóttir. Elsku „afi á Hornafirði“ er dá- inn. Frá því ég var barn hefur afi verið sá einstaklingur sem ég hef litið mest upp til. Það jafnaðist á við andlega hreinsun að heim- sækja ömmu og afa til Hornafjarð- ar, hvort sem ég var barn eða full- orðinn. Dýrmætar eru mér stundirnar í æsku sem ég eyddi með afa í Byggðasafninu. Hann var að dytta að hlutum og gera upp húsgögn, báta, verkfæri og margt fleira. Ég fékk að smíða mér einfalda hluti og afi gaf sér alltaf tíma til að aðstoða mig. Í kaffitímanum drakk afi kaffi en ég fékk te og við mauluðum matarkex með. Kjallaraherbergið í Gömlubúð var alveg jafn mikill ævintýraheimur og aðrir staðir hússins. Eitt sumarið þegar ég skrapp einn í nokkurra daga ferð til Hornafjarðar, þá réð afi mig í vinnu sem aðstoðarsafnvörð. Ég var varla eldri en 11 ára þegar ég gekk um safnið og reyndi að bjarga mér á ensku við að leiðsegja ferðamönnum. Orðaforðinn var bágborinn og vafalaust einhverjir gestir sem ekki hafa fengið rétta mynd af safnmunum. Afi var áhugasamur um margt sem ég hef verið að gera í gegnum tíðina, þó sumt af því hafi ekki ver- ið jafn gáfulegt og annað. Tónlist- ariðkun mína spurði hann oft um, hvort sem það var þungarokk eða kórsöngur, og sagði það oft hvað honum þætti vænt um að við fjöl- skyldan værum mikið í tónlist. Hann hvatti mig til dáða í náminu sem ég stundaði á síðustu árum. Afi var yfirleitt mjög þolinmóð- ur gagnvart mér, hann var ekki langrækinn ef eitthvað kom upp á og það var oft stutt í léttan húmor hjá honum og húmornum fylgdi oft dulítil orðsnilld. Afi kunni að setja saman hnyttnar vísur en hann kunni líka að yrkja fallegar vísur. Eitt sinn var afi með foreldrum mínum „inni í bústað“ og setti hann saman litla vísu sem mamma samdi lag við. Síðar orti ég annað erindi. Lagið kallast Kvöld í Tungufelli og var það meðal annars sungið við jarð- arför móður minnar í mars 2016. Nú glóir jökull og glampar á Lambasund, golan sér leikur blítt við Miðfellstind. Fljótið ræðir við sand á sína lund. Svona er kvöldsins fagra, fagra ljúfa mynd. (Gísli Arason.) Er dimmir yfir og dulúðin sækir að, dalalæðan birkið gælir við. Sofa þar fuglar og fljóð á góðum stað. Friðsælir lækirnir heilsa að gömlum sið. (Hallur Guðmundsson.) Síðasta skiptið sem ég hitti afa var fallegan morgun í mars síðast- liðnum. Ég hafði spilað með vini mínum á tónlistarhátíð á Höfn kvöldið áður. Þetta var í fyrsta sinn í nokkur ár sem við afi vorum einir saman. Við ræddum eitt og annað en stjórnmálum líðandi stundar nennti hann ekki að fylgjast með, hann nennti ekki að svekkja sig á þeim lengur og vildi njóta „rest- arinnar“ eins og hann orðaði það. Ég kvaddi hann með orðunum: „Sjáumst í haust, afi minn, í afmæl- inu þínu“ en hann svaraði að bragði: „Ef ég tóri“ og við glottum báðir. Elsku ættingjar og vinir. Ég óska þess að æðri máttur umvefji okkur í sorginni. Nú situr afi með ömmu og mömmu á rauðu skýi og spilar manna við þær. Ætli hann segi grand næst? Elsku afi minn, takk fyrir sam- veruna, takk fyrir allt! Hallur. Elsku afi er farinn. Hann lá nokkrar banalegurnar en reis allt- af upp frá dauðum. En þetta var sú síðasta. Afi kenndi mér á munnhörpu en amma kenndi mér að blóta. Ég man fjaðrafokið þegar Þjóðviljinn hætti að koma út. Það kom ekki til greina að kaupa neitt kapítalistaá- róðursrit. Afi var alltaf að brasa eitthvað. Við fórum að ná í hreindýramosa. Við máluðum Gömlu búð og dytt- uðum að gömlum munum. Svo opnuðum við Byggðasafnið okkar. Við fórum út á Stokksnes og upp í Lón og söfnuðum steinum. Bestu steinana fundum við í Hoffelli. Ég eyddi ómældum tíma í að skoða steinasafnið hans afa. Við spiluðum á orgel, munnhörpu og greiðu. Við fórum í mjólkurstöðina hans afa. Við skoðuðum fugla. Settum niður kartöflur. Tókum upp kartöflur. Borðuðum kartöflur. Við tálguðum birkigreinar. Afi var listamaður. Ég man þegar afi lék Bastían bæj- arfógeta í Kardemommubænum í Sindrabæ. Ég var svo montin af honum. Hann var í aðalhlutverki en mamma fékk bara að leika eld- húsborð. Enn man ég margt af því sem afi kenndi mér um steinana, fjöllin og jökulinn. Óteljandi voru ferðirn- ar inn í Hoffell, inn í bústað. Hof- fellsjökull, aurarnir, Geitafellið og gilin. Að laga heimagerðu vatns- veituna. Að laga vegarslóðann. Þessir töfrar við frumstæða bú- staðinn hans afa. Ekkert fólk. Kyrrðin, birkið, grjótið og jökull- inn. Einfalt. Og síðdegisböllin inni í Holtum við harmonikkuspil. Við skoðuðum bækur saman. Í seinni tíð batt afi inn bækur og gerði það af mikilli list. Við spiluðum norska vist og manna. Amma var meira fyrir spilamennskuna en afi og þá blótaði hún einna mest. Norska vistin var ómissandi eftir hádegis- matinn. Oft voru gestir hjá ömmu og afa í Björk. Þau voru vinmörg og Borgarættin er stór. Það var gam- an á ættarmótum. Ég tala nú ekki um þegar Jón, bróðir afa, tók upp nikkuna og allir fóru að dansa. Síð- ast sá ég þá bræður spila saman í fyrrahaust þegar afi varð 99 ára. Jón spilaði á nikkuna og afi á munnhörpu. Og systur þeirra sungu. Það er eftirminnilegt þegar við Elín Arna urðum strandaglópar á Klaustri eftir útilegu í Skaftafelli. Við vorum á unglingsaldri og báð- ar gráhærðar. Okkur hafði mistek- ist að lita ljósa hárið okkar svart. Afi og amma voru á heimleið úr ferð með eldri borgurum og við fengum að fljóta með heim á Höfn. Amma hnussaði yfir útganginum á okkur. Hún hnussaði svo vel. En afi bara brosti og hló. Afa fannst lífið svo fínt. Ég hélt alltaf að afi myndi kveðja okkur uppi á fjalli eða ein- hvers staðar í urð og grjóti. Hvergi kunni hann betur við sig en úti við. „Einhversstaðar í öllu þessu grjóti á ég heima.“ (Pétur Gunnarsson.) Elsku Bjarkarsystur og allt okkar fólk. Elsku mamma mín. Við vorum heppin að hafa elsku afa svona lengi. Hann lifði í hartnær 100 ár. Hann sagðist koma aftur sem túnfífill úr moldu. Afi trúði ekki á Gísli Arason Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, EYGLÓAR FRIÐMEYJAR GÍSLADÓTTUR, Lindargötu 57, Reykjavík, áður Hvanneyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Vitatorgi fyrir góða umönnun. Brynjar Haraldsson Unnur G. Jónsdóttir Þórir Haraldsson María S. Þorbjörnsdóttir Guðrún Sigríður Haraldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn GUÐMUNDUR HELGASON, Knarrarstíg 1, Sauðárkróki, lést þriðjudaginn 25. júlí á Heilbrigðis- stofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 4. ágúst klukkan 14. Alfreð Guðmundsson Helga Kristín Sigurðardóttir Ágúst Guðmundsson Anna Jóhanna Hjartardóttir Ingólfur Örn Guðmundsson Sigrún Jónsdóttir Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, KARL EINARSSON, Vallargötu 21, Sandgerði, andaðist þann 27. júlí á Nesvöllum í Reykjanesbæ. Jarðarförin auglýst síðar. Gréta Frederiksen Ólína Fríða Margrét Reynir Kalli Grétar Alda Elskulegi sambýlismaður minn, faðir okkar, afi, sonur og bróðir, BIRGIR BREIÐFJÖRÐ AGNARSSON, Háaleitisbraut 111, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 20. júlí. Útförin verður gerð frá Guðríðarkirkju miðvikudaginn 2. ágúst klukkan 13. Kærar þakkir til Óttars Bergmanns, lækna og starfsfólks á 12E. Guðný Birgitta Harðardóttir Alexandra Óskarsson Eðvarð Geir Birta Líf Guðmundur Helgi Arnar Breki Gunnarsson Ingirós Filippusdóttir Filippus Einarsson Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ÞORBJARGAR GUÐRÚNAR GUÐJÓNSDÓTTUR, áður til heimilis að Gróðrarstöðinni í Grænuhlíð við Bústaðaveg, sem lést á Hrafnistu mánudaginn 12. júní og var jarðsungin miðvikudaginn 19. júní. Jóna Gunnarsdóttir Guðjón Reynir Gunnarsson Vernharður Gunnarsson Björg Árnadóttir Ósk Gunnarsdóttir Snorri Arnfinnsson Gunnar Þór Gunnarsson Katrín Rós Gunnarsdóttir barnabörn og langömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, ANNA GUÐLAUG MAGNÚSDÓTTIR, Anna Lauga, lést á dvalarheimili Hrafnistu í Reykjavík 25. júlí. Jarðarförin fer fram í kapellu Fossvogskirkju miðvikudaginn 2. ágúst klukkan 11. Ingvar Guðfinnsson Magnús Guðfinnsson Árný Guðfinnsdóttir tengdabörn, barnabörn, barnabarnabarn og systkini Ástkær eiginmaður minn, faðir minn, tengdafaðir og afi, JÓN GRÉTAR VIGFÚSSON sjómaður, Fjarðarbakka 3, Seyðisfirði, lést á Landspítalnum við Hringbraut aðfaranótt 28. júlí. Jóhanna Sigurjónsdóttir Sigríður Jónsdóttir Konráð Þór Ólafsson og barnabörn Ástkær unnusta mín, dóttir, systir, föðursystir og barnabarn, HELENA BJÖRK ÞRASTARDÓTTIR safnvörður, Urðarvegi 43, Ísafirði, er látin. Útför hennar verður gerð frá Ísafjarðarkirkju fimmtudaginn 3. ágúst klukkan 14. Augustine Bernard Quillia Þórlaug Þ. Ásgeirsdóttir Finnbogi Karlsson Þröstur Kristjánsson Aðalbjörg G. Hauksdóttir Ásgeir H. Þrastarson Blómey Ó. Karlsdóttir Óskírður Ásgeirsson Messíana Marzellíusdóttir Ásgeir S. Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.