Víkurfréttir - 23.01.2003, Page 11
VÍKURFRÉTTIR I 3. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 I 11
þorsks, ýsu, sandhverfu o.fl.
þúsundir tonna á ári. Vegna
hins heita jarðsjávar hér munu
Suðurnesin geta tekið drjúgan
þátt í þeirri þróun.
Fleira mætti nefna á sviði at-
vinnu og verðmætasköpunar.
Ég hef reynt að draga hér fram
þá sýn er blasir við í atvinnu-
málum og tel Suðurnesin geta
stefnt þangað ef rétt er á haldið.
Til þess þarf sterka samstöðu
því verðmætasköpunin leggur
grunn að ýtrýmingu fátæktar.
Andleg fátækt
Að lokum langar mig einnig til
að velta upp annars konar fá-
tækt en þeirri sem sprettur af
atvinnuleysi. Þar á ég við and-
lega fátækt. Hamingjan verður
aldrei keypt með fjármunum.
Mér finnst ástæða til að hafa á-
hyggjur af þeirri veraldar-
hyggju sem tröllríður samfé-
laginu í dag. Græðgin leikur
lausum hala og í vaxandi mæli
erum við sem þjóð farin að
beygja okkur undir ofurvald
hennar þar sem gildismat lífs-
gæðakapphlaupsins liggur til
grundvallar. Þetta er svartur
blettur á samfélaginu og rót
margra þeirra félagslegu
vandamála og erfiðleika sem
við glímum við. Þarna þarf
hugarfarsbreytingu – þarna
þurfum við öll að endurskoða
afstöðu okkar til hamingjunnar
og lífsins. Fjölskyldan og
manneskjan á að vera í fyrir-
rúmi. Við megum ekki gleyma
okkur í hinu miskunnarlausa
kapphlaupi í andlegri fátækt.
Þeir sem sáu viðtal við hand-
boltahetjuna Ólaf Stefánsson
hjá Gísla Marteini hrifust af
boðskap Ólafs þar sem hann
lagði einmitt ríka áherslu á að
rækta hin andlegu verðmæti og
rísa gegn lífsgæðakapphlaup-
inu. Þetta reyndum við með á-
takinu Reykjanesbær á réttu
róli og gafst vel. Það er hægt
með samstilltu átaki okkar
allra. Tökum höndum saman
um að vinna bug á jafnt verald-
legri sem andlegri fátækt. Það
er meginkjarni í stefnu Fram-
sóknarflokksins og þess vegna
vinn ég undir hans merkjum.
Hjálmar Árnason,
alþingismaður.
gangsmál
Auglýsingasíminn er 421 0000
Faxið er 421 0020
FRÉTTAVAKT
898 2222
899 2225
24 TÍMA VAKT
Víkurfréttir
og vf.is
4. tbl. 2003 - 24 LEIDRETT 22.1.2003 16:51 Page 11