Víkurfréttir - 23.01.2003, Side 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Hvaða tilgangi þjónar hinn
svokallaði byggðakvóti?
Hann er til að hjálpa hinum
minni byggðum út um landið
sem litla aðra möguleika hafa til
að bregðast við samdrætti í sjáv-
arútvegi.
Telurðu að byggðakvótinn
hjálpi sveitarfélögum eins og
Sandgerði?
Já, ég hugsa nú að það hjálpi
Sandgerði. Þar hefur orðið alveg
gríðarlegur samdráttur og sveitar-
félagið hefur verið í miklum fjár-
festingum vegna sjávarútvegsins
og reiðir sig mikið á sjávarútveg-
inn og það hafa ekki verið mikið
um aðra möguleika þar undan-
farið.
Hefur sjávarútvegsráðuneytið í
hyggju að aðstoða Sandgerði á
einhvern hátt umfram þann
byggðakvóta sem þegar hefur
verið úthlutað þar, í ljósi þess
að á síðustu 5 árum hafa 90%
kvótans farið úr byggðalaginu?
Það hefur ekkert verið talað um
það og við hér í ráðuneytinu höf-
um ekki nein frekari úrræði en
við höfum verið að beita.
Hvað finnst þér um sjávarút-
veg á Suðurnesjum almennt?
Ég tel að sjávarútvegur á Suður-
nesjum sé almennt talað í góðum
málum, þó hann sé náttúrulega
misjafn eftir byggðarlögum og
þau hafi komið misjafnt út úr
þeim breytingum sem hafa verið
í gangi síðustu ár. Grindavík er
einn af sterkustu sjávarútvegs-
bæjum landsins, en það er ekki
hægt að horfa fram hjá því að
aðrir bæjir standa ekki jafn vel.
Eftir sem áður eiga möguleikar í
sjávarútvegi á Suðurnesjum að
vera góðir, eins og þeir eru
reyndar víða annars staðar.
Hvar telurðu sóknarfærin í
sjávarútvegi á Suðurnesjum
liggja?
Ég held að sóknarfærin almennt
talað felist í því annars vegar að
við aukum verðmætið og reynum
að bæta reksturinn þannig að ver-
ið sé að fá meira út úr hverju
tonni sem veitt er. Þetta á ekki
síður við á Suðurnesjum þar sem
mjög gott hráefni er að koma á
land, þ.e. stóra vertíðarþorskinn.
Hins vegar horfum við til þess
inn í framtíðina að við náum að
bæta stöðu fiskistofnana og þá
sérstaklega þorskstofnsins. Það
eru jákvæðir hlutir að gerast í
sambandi við ýsustofninn og ég
geri ráð fyrir því að menn verði
varir við það á Suðurnesjunum.
Það vill þó þannig til þar að sam-
hliða því að við erum að auka
ýsukvótann hér þá hefur slíkt hið
sama verið að gerast í nágranna-
löndunum og með því hefur
framboðið aukist og verðmætið
hefur ekki skilað sér.
Nú hefur oft verið talað um
það að kvótakerfið bjóði ekki
ungum mönnum upp á þá
möguleika að hefja útgerð.
Hvað viltu segja um það?
Það er alveg sama hvaða kerfi
við erum að tala um sem að er að
reyna að minnka afkastagetuna,
slíkt kerfi verður alltaf erfitt fyrir
nýliðun. Það er þversögn í því að
reyna að minnka afkastagetuna, í
þessu tilfelli sóknargetuna og
ætla sér að gera einhverja sér-
staka hluti fyrir nýliðann. Ef að
við náum ekki nægilega nýliðun í
greinina til að halda henni lifandi
þegar við höfum náð jafnvægi
hvað varðar afkastagetuna þá
erum við aldrei í vandræðum
með að búa til einhverskonar
kerfi sem hjálpar til við nýliðun.
Það er bara ekki staðan í dag því
við erum ennþá að reyna að
minnka afkastagetuna.
Telurðu að það verði einhverj-
ar breytingar gerðar á kvóta-
kerfinu á næstu árum, t.a.m.
að fara hina svokölluðu fær-
eysku leið?
Það fer eftir því hvað menn
meina með færeysku leiðinni. Ég
á ekki von á því að við tökum
upp sóknardagakerfi, en það eru
hinsvegar ýmsir þættir sem eru
merkilegir við færeyska fisk-
veiðistjórnunarkerfið og þá sér-
staklega veiðarfæranotkunin og
hinar víðtæki svæðalokanir til að
verja hrygningarfiskinn sem að
mér finnast vera hlutir sem við
eigum að athuga. Í ljósi þess
hvernig hlutirnir eru á Suðurnesj-
unum þá er netaveiði mjög tak-
mörkuð við Færeyjar, en hins
vegar er verið að veiða okkar
verðmætasta fisk á vertíðinni.
Hvað finnst þér um fyrningar-
leið Samfylkingarinnar varð-
andi kvótakerfið?
Mér finnst hún alveg stórhættu-
leg og sérstaklega fyrir þær
byggðir sem eiga undir högg að
sækja í breytingunum sem eru að
verða í sjávarútvegnum af ýms-
um orsökum og ekki bara vegna
kvótakerfisins. Fyrningarleið
Samfylkingarinnar þýðir það að
byggðirnar sem eru sterkastar og
hafa mesta fjármagnið og bestu
veðin taka til sín aflaheimildirn-
ar. Ég myndi spá því að fyrning-
ar- og uppboðsleiðin, því það er
hægt að hnýta það saman væri sú
leið sem myndi leiða til mestrar
samþjöppunar í sjávarútvegi og
mestrar byggðaröskunar í sjávar-
útvegi.
Hvað finnst þér um stefnu
Frjálslynda flokksins í sjávar-
útvegi?
Hún er nú svo óljós að það er
varla hægt að tjá sig almennilega
um hana. Þeir hafa verið með til-
lögur allt frá því að opna veið-
arnar og gera þær allar frjálsar í
ákveðinn tíma og niður í það að
vera með miðstýrðar úthlutunar-
reglur og ég verð að segja að ég
hef ekki séð mikið nothæft í
þeim tillögum.
Hvernig leggjast komandi al-
þingiskosningar í þig?
Það er ennþá langt til kosninga
þannig að það er ekki hægt að
segja að maður sé kominn með
sérstaka tilfinningu fyrir kosn-
ingunum sjálfum, en staðan í
pólitíkinni í dag er auðvitað
þannig að eins og allir vita þá
hafa verið breytingar á atvinnu-
lífinu á undanförnum árum.
Þessar breytingar hafa komið
mjög vel út fyrir okkur og leitt til
batnandi lífskjara í landinu fyrir
alla. Af þessum sökum hefði
maður haldið að stjórnarflokk-
arnir hefðu góðar forsendur til að
fara inn í kosningar. Það eru
hinsvegar miklar hræringar á
vinstri vængnum sem hafa haft
tímabundin áhrif á fylgi Fram-
sóknarflokksins í skoðanakönn-
unum, en það má hins vegar telj-
ast merkilegt að það hefur af-
skaplega lítil áhrif á fylgi Sjálf-
stæðisflokksins samkvæmt könn-
unum. Almennt talað held ég að
staðan sé góð fyrir kosningar en
það er ennþá langt í 10. maí.
Telurðu það raunhæfan mögu-
leika að Samfylkingin verði
jafn stór flokkur og Sjálfstæð-
isflokkur eftir næstu kosning-
ar?
Það er alveg ómögulegt að segja
til um það. Það hefur oft gerst að
flokkar hafa rokið upp í skoðana-
könnunum jafnvel fjórum mán-
uðum fyrir kosningar og síðan
hefur niðurstaða kosninga verið
allt önnur. Það gætu verið ein-
hverjar aðrar aðstæður uppi núna
sem gerðu það að verkum að
Samfylkingin héldi sínu fylgi
fram yfir kosningar. Það er alltof
snemmt að spá einhverju um það
hvað gerist. Það er svo mikið
sem getur gerst fram að kosning-
um að það er enginn sérstakur
grunnur sem maður getur notað
til að spá fyrir um þetta.
Hvernig líst þér á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjör-
dæmi, þínu gamla kjördæmi?
Mér líst ágætlega á lista Sjálf-
stæðisflokksins þar, þó auðvitað
hafi gengið á ýmsu og niðurstað-
an verið óvænt þá er þetta allt
saman ágætis fólk sem á listan-
um er sem ég þekki og hef starf-
að með. Það á líka við um fleiri
sem ekki eru á listanum að þar er
fólk sem ég hef átt mjög gott
samstarf við og hefði sómt sér
vel á listanum. En það er oft
þannig að það þarf að velja úr og
þetta varð niðurstaðan.
Saknarðu þess að heyja kosn-
ingabaráttu á Suðurnesjum?
Já, ég mun sakna þess að vera
ekki með Suðurnesin sem hluta
af mínu kjördæmi því það er
mjög skemmtilegt svæði og hef-
ur gefið Reykjaneskjördæmi
meiri breidd og meiri vídd. Ég á
marga vini á Suðurnesjunum
sem ég mun auðvitað hafa sam-
band við áfram og maður er ekk-
ert að hverfa úr pólitíkinni
þannig að maður rífur ekki
tengslin á einni nóttu. Ég er sér-
staklega ánægður með það að
tvöföldun Reykjanesbrautar sé
hafin og mér líður mjög vel að
hafa komið því af stað áður en
kjördæmabreytingin á sér stað.
STÓRHÆTTULEG
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA Í VIÐTALI VIÐ VÍKURFRÉTTIR
Frá því kvótakerfið var sett á fót fyrir um 20 árum hefur mætt mikið á sjávarútvegsráðherrum Íslands og hafa þeir oft þurft að sæta hörðum ásökunum frá
ýmsum aðilum sem telja kvótakerfið ekki réttmætt. Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra hefur ekki farið varhluta af slíkum ásökunum og hefur frá
því hann tók við sem sjávarútvegsráðherra vorið 1999 sætt mikilli gagnrýni varðandi kvótamálin. Eftir að Frjálslyndi flokkurinn var stofnaður árið 1999 og
Samfylkingin setti kvótamál ofarlega á sína stefnuskrá hefur gagnrýni á kerfið aukist til muna. Í desember tilkynnti sjávarútvegsráðuneytið um úthlutun
byggðakvóta og fékk Sandgerðisbær úthlutað um 100 tonnum og Nesfiskur í Garði 30 tonnum. Í viðtali við Víkurfréttir ræðir sjávarútvegsráðherra m.a. um
byggðakvótann og þann vanda sem skapast hefur í Sandgerði.
Vi
ðt
al
o
g
m
yn
d:
J
óh
an
ne
s
K
r.
K
ris
tjá
ns
so
n
•
jo
ha
nn
es
@
vf
.is
Fyrningarleið Samfylkingar
4. tbl. 2003 - 24 LEIDRETT 22.1.2003 16:52 Page 12