Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2003, Qupperneq 15

Víkurfréttir - 23.01.2003, Qupperneq 15
VÍKURFRÉTTIR I 4. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 I 15 um bæinn til að vekja íbúa,“ seg- ir Brynja. Þau ætluðu sér að ná í ýmislegt dót í húsið en þau voru stöðvuð því Vikrinum rigndi nið- ur á svæðinu. Brynja fór ásamt foreldrum sín- um og börnum um borð í bát sem flutti þau til Þorlákshafnar. Guðrún vissi ekki af systur sinni fyrr en daginn eftir, en hún fór ásamt börnum sínum einnig til Þorlákshafnar. Guðrún fluttist í Garðinn þann 4. febrúar árið 1973 og hún var ánægð: „Mér fannst yndislegt að koma hingað og staðurinn falleg- ur. Fólk tók okkur svo vel. Það voru reist 10 viðlagasjóðshús sem svo voru kölluð og í þeim voru 15 íbúðir sem Vestmanna- eyjingar fluttu inn í,“ segir Guð- rún en hún hefur búið í Garðin- um síðan þá og hefur liðið mjög vel. Brynja kunni ekki alveg jafnvel við sig þegar hún heimsótti syst- ur sína í Garðinn: „Mér fannst hálf nöturlegt að koma í Garðinn og mér fannst að það væri alltaf norðangarri hér sem náttúrulega oft er. En þegar ég var búin að heimsækja systur mína nokkrum sinnum þá fór mér að lítast betur á staðinn. Ég bjó í Reykjavík í tvö ár eftir gosið og ef ég hefði verið þar áfram hefði dóttir mín þurft að taka strætó í skólann. Ég var búin að sjá að börnin hennar Guðrúnar höfðu það mjög gott í Garðinum og árið 1975 ákvað ég að flytja og sé ekki eftir því,“ segir Brynja og hlær. Þær systurnar vinna á pósthúsinu í Garðinum og börn þeirra búa flest á Suðurnesjum. Þeim systr- um finnst mjög gaman að heim- sækja Vestmannaeyjar og segja að Kirkjubæjarsvæðið sem fór undir hraun hafi verið fallegasti staður í heimi: „Við heimsækjum Vestmannaeyjar reglulega og finnst gaman að koma þangað. En við erum orðin partur af Suð- urnesjum og hér líður okkur vel,“ segja þessar hressu systur að lok- um. 30 ÁR ERU Í DAG FRÁ ELDGOSINU Í HEIMAEY Þessa mynd tók Sveinn Þormóðsson af Brynju þegar hún var á leið í bát sem átti að flytja þau til Þorlákshafnar. Myndin hefur birst víða, enda sést angistarsvipurinn á fólkinu vel og einnig sést að dóttir Brynju er ekki í skóm en ekki gafst tími til að klæða hana í þá. Frá vinstri: Rafnkell 8 ára sonur Brynju, Brynja með dóttur sína Lilju Berglindi 3 ára og Marta móðursystir Brynju. Sveinn Þormóðsson ljósmyndari tók einnig þessa mynd sem sýnir Kirkjubæjarsvæðið en það liggur nú undir 60 metra þykku hrauni. Fréttavaktin 898 2222 & 899 2225 4. tbl. 2003 - 24 LEIDRETT 22.1.2003 17:53 Page 15

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.