Víkurfréttir - 23.01.2003, Side 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
ANNO 2002 SÍÐARI HLUTI
svipmyndir ársins tvö eftir 2000
Stórveldin tvö, Rússland og Bandaríkin, áttust við í stórleik í knattspyrnu á Keflavíkurflugvelli á árinu.
Sannkölluð Rússainnrás átti sér stað, enda einkennisbúningar Rússa ekki samkvæmt nýjustu tísku og var
sem ljósmyndari Víkurfrétta væri kominn inn í sviðsmynd stórmyndar úr stríðinu.
Hreysti ársins:
Bæjarfulltrúinn tók slökkviliðið í bakaríið...
Ólafur Thordersen, bæjarfulltrúi
og stjórnarmaður Brunavarna
Suðurnesja, tók tilboði Sigmund-
ar Eyþórssonar, slökkviliðsstjóra
um að þreyta nýtt þrekpróf fyrir
slökkviliðsmenn B.S. Prófið er
uppbyggt með tilliti til slökkvi-
liðsstarfa og mælir bæði styrk og
þol þeirra. Sigríður Kristinsdóttir
eigandi líkamsræktarstöðvar
Perlunnar stjórnar þrekprófi
Slökkviliðs B.S. Sigmundur
slökkviliðsstjóri tók síðan áskor-
un Ólafs og þreyttu þeir kappar
prófið undir harðri stjórn og nákvæmri tímamælingu Sigríðar í
Perlunni. Styrktarprófið, sem byggir á upphífingum, armbeyjum, þrí-
höfðaarmbeyjum, magaæfingum, réttstöðulyftu fór fram í Perlunni
og stóðu þeir kappar sig með ágætum og uppfylltu lágmarksákvæði
prófsins. Að því loknu var haldið í Reykjaneshöllina en þar voru þeir
klæddir í Reykköfunarbúnað slökkviliðsins, eða samtals 20 kg. búnað,
sem endurspeglar búnað Reykkafara B.S. Í þrekprófinu, sem byggir á
að ljúka 4,8 km. göngu með 20 kg. á bakinu innan tiltekins hámarks-
tíma, náði Ólafur forskoti á Sigmund og kom hann í mark á undan
Sigmundi. Ólafur lauk því þrekprófinu á tæpum 26 mínútum en Sig-
mundur á rúmum 28 mínútum.
Að loknu prófinu sagði Sigmundur slökkviliðsstjóri “ég er mjög
ánægður með útkomuna þó að skemmtilegra hefði verið að vinna
Ólaf, en þessar niðurstöður endurspegla það að Ólafur er í mjög góðu
líkamlegu formi og vel hæfur líkamlega til slökkviliðsstarfa. Þessi frá-
bæri tími Ólafs slær tíma Ingvars Georgssonar út sem var besti tími
B.S. til þessa, eða 27 mínútur og 30 sek.
Símanúmer ársins:
846 6092 hringdu strax!
Rannsóknardeild lögreglunnar í Keflavík stóð ráðþrota gagnvart síma-
númerinu 846 6092 á árinu. Síminn hafði valdið miklu ónæði með
hringingum sínum en eigandinn fannst ekki þar sem hann hafði „fullt
frelsi“ frá Símanum. Þeir sem vissu hver ætti númerið var einnig bent
á að hafa samband við lögguna til að upplýsa málið.
Högg ársins:
Kvennabox í Höllinni
Fyrsti löglegi keppnishringurinn í boxi var keyptur til Reykjanesbæjar
á árinu. Hringurinn var settur upp í Reykjaneshöllinni og þegar fylltur
af bardagaglöðu kvenfólki sem keppti í kvennaboxi í sérstökum sýn-
ingarbardaga. Fyrstar til að sýna löglegt box voru þær Lilja Karen
Steinþórsdóttir og Tinna Guðrún Lúðvíksdóttir.
Hvalur ársins:
Hvalreki í Sandgerði
Strákarnir á Lukkuláka frá Ólafs-
vík veiddu hval fyrir utan Sand-
gerði, svona óvart. Kvikindinu
var komið á land og það skorið í
smábátarennunni í Sandgerði.
Þetta 10 metra flykki reyndist
vera hnúfubakur. Kjötið fór á
markað og hver veit nema það
verði borðað súrsað á þorrablóti
um helgina?
Innrás ársins:
RÚSSARNIR KOMA!
Skipsskaði ársins:
Strandaði og sökk
við Noregsstrendur
Glæsilegasta skip Keflavíkur
strandaði og sökk við Noregs-
strendur á árinu. Það var
skömmu eftir þjóðhátíð sem
skipið steitti á ómerktu skeri
við Lófóten í Noregi og eftir
að norkst ofurmenni reyndi
að draga skipið af skerinu
sökk það á örskammri stun-
du. Betra hefði verið að fara
að ráðum Íslendinga, en
norksir hafa frá fyrsta degi
reynt að koma eigin skömm
yfir á okkar menn. Nú hálfu
ári síðar eru Haukur Guð-
mundsson og hans menn í
Project GG KE 15 að reyna
að bjarga skipinu af hafs-
botni. Skömm ársins:
Tóku skófatnað af börnum sem greiðslu í tívolí
Lögreglan í Keflavík gerði athugasemdir við vafasamar innheimtuað-
gerðir starfsmanna á Sumarmóti Bylgjunnar í Reykjanesbæ á árinu.
Börn sem fóru í leiktæki án þess að greiða aðgang að þeim urðu að sjá
á eftir skófatnaði sínum, þ.e. starfsmenn Sumarmótsins tóku skófatn-
aðinn af börnunum. Málið var tilkynnt til lögreglunnar í Keflavík. Að
sögn Pálma Aðalbergssonar varðstjóra hafði lögreglan samband við
forráðamenn útvarpsstöðvarinnar Bylgjunnar og gerði þeim ljóst hvað
væri að eiga sér stað á Sumarmótinu í Reykjanesbæ. Að sögn Pálma
tóku Bylgjumenn á málinu með viðeigandi hætti. Það má ekki taka
skó sem gjald fyrir tívolíferðir í Reykjanesbæ - táfýlurnar ykkar!
Byssumaður ársins:
„Hann er að plaffa gæsir á Grundinni“
Neyðarlínunni var tilkynnt um mann á árinu sem var að skjóta gæsir á
Mánagrund við Keflavík. Neyðarlínan kom tilkynningunni áfram til
lögreglunnar í Keflavík sem þegar sendi vaska sveina til að hafa uppi á
skyttunni, sem virtist vera vel vopnuð. Skömmu eftir að tilkynningin
barst lögreglunni í Keflavík slysaðist ljósmyndari Víkurfrétta inn á lög-
reglustöðina í Keflavík til að sinna þar erindum. Eitthvað þótti bifreið
Víkurfrétta svipa til lýsingar á þeirri bifreið sem vegfarandinn sagði
byssumanninn á Mánagrund vera á og meira að segja númerið pass-
aði.
„Varst þú að skjóta gæs úti á Mánagrund“, spurði Halldór Jensson
varðstjóri þegar okkar maður kom á lögreglustöðina. Jú, okkar maður
kannaðist við að hafa „skotið“ gæsir en skotvopnið sem var notað
reyndist ljósmyndavél. Okkar maður hafði séð stóran gæsahóp á
Mánagrundinni og ákvað að „skjóta“ nokkrum myndum af fuglinum.
Vígalegt byssuhlaupið var ekkert annað en myndarleg aðdráttarlinsa
ljósmyndarans. Lögreglumennirnir voru kallaðir aftur til stöðvar og
ljósmyndari Víkurfrétta er frjáls maður!
Brú ársins:
Stutt að sækja Íslending!
Reykjanesbær stytti leiðina vestur um haf á árinu með
því að setja upp brú á milli heimsálfa. Evrópu- og Am-
eríkuflekarnir voru brúaðir í Stóru-Sandvík. Risastórar
þyrlur þjóðvarðliðs Pensilvaníu voru notaðar til að
koma brúnni fyrir. Hún var síðan opnuð við mikilli við-
höfn á árinu.
4. tbl. 2003 - 24 LEIDRETT 22.1.2003 17:02 Page 16