Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2003, Page 21

Víkurfréttir - 23.01.2003, Page 21
VÍKURFRÉTTIR I 4. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 I 21 Guðmundur Stefánsson verður 70 ára 25. janúar. Það verður heitt á könnunni sunnudaginn 26. janúar nk. Til hamingju með afmælið. Fjölskyldan. Elli varð 60 ára 21. janúar sl. Hann og eiginkona hans Sveindís Pálsdóttir taka á móti gestum af því tilefni laugar- daginn 25. janúar nk. frá kl. 19 í sal Hitaveitu Suðurnesja, Brekkustíg 36, Njarðvík. Elli elsku mágur. Innilega til hamingju með afmælið. Halltu svo áfram að vera alltaf svona hress. Þín besta mágkona!! Elsku Elfa, til hamingju með 5 ára afmælið. Mamma, Pabbi og Lovísa. Elsku Karen okkar, til hamingju með 8 ára afmælið mánudaginn 27. janúar. Mamma, Pabbi og Bragi. Telma og Ósk eiga 9 ára afmæli 26. janúar. Sólrún amma og Óskar afi óska elsku dúllunum innilega til hamingju með afmælið. Megi guð og gæfan fylgja ykkur um ókomna tíð. Afmæli Afmæli Afmæli Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir er 14 ára körfuboltamær úrGarðinum. Ingibjörg byrjaði að æfa körfubolta í septemberárið 2000. „Ég fékk áhuga á körfu því tvær vinkonur mínar æfðu körfu svo ég ákvað að prófa“, sagði Ingibjörg í sportviðtali Víkurfrétta. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún látið nokkuð til sín taka í körfunni og hefur verið fastamaður í liði Njarðvíkurstúlkna und- anfarið. Þá var hún valin í landslið Ís- lands sem lék á Spuerkeess-mótinu í Lúx- emburg milli jóla og nýárs. Þar skráði stúlkan sig í metabækurnar því hún er yngsti landsliðsmaður Íslands í hópíþrótt frá upphafi ásamt Helenu Sverrisdóttur. Í byrjun janúar lék hún svo með stúlknalandsliðinu í æfingamóti í Skotlandi og því er óhætt að segja að stúlkan sé heldur betur að standa sig. Afhverju valdir þú að æfa með Njarðvík? Ég hef alltaf haldið með Njarðvík í körfubolta og þar sem ekkert körfuboltalið er í Garðinum kom ekkert annað lið til greina. Hvað æfir þú oft í viku? Ég æfi 9 sinnum í viku þannig að það er alltaf mjög mikið að gera hjá mér. Ég reyni alltaf að læra í hádeginu og eftir skóla og gengur ágæt- lega að samræma körfuna og námið. Hvernig er venjulegur dagur í lífi þínu? Ég fer í skólann á morgnanna og læri svo þegar ég kem heim. Eftir það er mér skutlað á æfingu. Þegar hún er búin horfi ég aðeins á sjónvarp- ið og fer svo að sofa. Varstu ekki hissa á því að vera valin í landsliðið svona ung? Jú, ég get ekki sagt annað. Ég bjóst alls ekki við því. Það var mjög gaman fara þessa ferð og góð reynsla sem á eftir að nýtast mér vel. Hvernig gekk svo með stúlknalandsliðinu í janúar? Það gekk bara vel. Við spiluðum fjóra leiki á móti Skotlandi, unnum tvo og töpuðum tveimur. Hvert er framtíðartakmarkið? Mig langar að fara út í háskóla og spila körfu með. Markmiðið er auð- vitað að ná eins langt og ég get. Keflavík komst um helginaí úrslit bikarkeppni KKÍog Doritos, bæði í karla og kvennaflokki. Karlarnir lögðu ÍR-inga að velli, 95:81, í Keflavík en leikurinn var í járnum allan tíman. Staðan í hálfleik var 45:46 gestunum í hag en þegar síðasti leikhlutinn var hálfnaður tóku heima- menn öll völd á vellinum og sigruðu verðskuldað. Magnús Þór Gunnarsson átti skínandi leik hjá Keflavík í lokin og setti niður hverja þriggjastiga körf- una á fætur annari. „Við létum boltann ganga vel í sókninni og þar að leiðandi opnaðist fyrir mig í skotunum. Ég tók fríu skotin sem ég fékk og þau duttu vel í kvöld“, sagði Magn- ús Þór ánægður í leikslok. Damon Johnson var stigahæstur með 27 stig en Magnús Þór Gunnarsson kom næstur með 16 stig. Þá sigruðu stúlkurnar í Keflavík lið Grindavíkur, 64:83, sl. föstudag en leikurinn fór fram í röstinni. Jafnræði var með liðunum til að byrja með en þegar líða tók á 4. leikhluta fór reynslan að segja til sín og þá sigu Keflavíkurstúlkur framúr. Sonja Ortega skoraði 23 stig fyrir Keflavík og Erla Þorsteinsdóttir 16 en Denise Shelton skoraði 30 stig fyrir Grindavík og Sólveig Gunn- laugsdóttir 11. Úrslitaleikurinn fer fram 8. febrúar og mun karlalið Keflavíkur leika gegn Snæfell en kvennaliðið gegn ÍS. 14 ára í A-landslið! :: sportari vikunnar TVÖFALT! - bæði karla- og kvennalið Keflavíkur tryggðu sér í úrslit bikarkeppni KKÍ og Doritos Meira sport á vf.is 4. tbl. 2003 - BLS 20-21 22.1.2003 17:43 Page 21

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.