Víkurfréttir - 09.10.2003, Qupperneq 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
®
M iðstöð símenntunar áSuðurnesjum áætlarað fara af stað með
staðbundið leiðsögunám á
Reykjanesi.Af því tilefni
ræddu Víkurfréttir við Guð-
jónínu Sæmundsdóttur for-
stöðumanns MSS.
Hvaða nám er þetta og hversu langt
er það?
Staðbundið leiðsögunám er nám
þar sem nemendur læra allt um
viðkomandi svæði og fá starfs-
réttindi sem svæðaleiðsögumenn.
Staðbundið leiðsögunám nær
yfir 192 kennslustundir og verð-
ur kennt hér á næstu tveimur
önnum. Þau fög sem verða
kennd eru ferðaþjónusta, tungu-
málanotkun, leiðsögutækni,
raungreinar, samfélagsgreinar,
skyndihjálp, svæðalýsingar og
vettvangsnám. Farnar verða ferð-
ir um svæðið þar sem nemendur
munu læra allt um Reykjanesið.
Fyrir hverja er þetta nám?
Það má segja að þetta nám sé
fyrir alla þ.e.a.s. alla þá sem hafa
áhuga á að þekkja svæðið vel.
Þeir sem vinna í ferðaþjónustu
eiga sérstaklega mikið erindi í
námið. Þetta getur hentað þeim
einstaklingum sem vilja starfa
sem leiðsögumenn. Þeir sem
ljúka þessu námi fá réttindi sem
svæðaleiðsögumenn á Reykja-
nesi. Í því felast ákveðin starfs-
réttindi. Kennslu fyrirkomulagið
verður þannig að kennt verður á
kvöldin og um helgar þegar við
á.
Er ekki mikill kostnaður við svona
nám?
Jú, mikill kostnaður felst í svona
námi en við búum svo vel að
ýmis fyrirtæki hafa styrkt verk-
efnið s.s. SSS, SBK, Sparisjóður-
inn og Íslandsbanki. Einnig
munu nokkrir aðilar styðja verk-
efnið með kennslu s.s. Ferða-
málafulltrúi Grindavíkur, Fræða-
setrið í Sandgerði, Menningar-
fulltrúi Reykjanesbæjar og At-
vinnumálafulltrúi Suðurnesja.
Með þessum styrkjum hefur tek-
ist að koma námskostnaði niður í
85.000 kr á einstakling. Þá má
benda á að starfsmenntunarsjóðir
aðstoða einstaklinga með að
greiða niður kostnað af náms-
gjöldum. Þannig að í flestum til-
fellum ættu námsgjöld ekki að
vera hindrun.
Er mikil þörf fyrir svona nám hér á
Suðurnesjum?
Já, þörfin er fyrir hendi, erlend-
um ferðamönnum hefur fjölgað
verulega á undanförnum árum og
bendir margt til þess að búast
megi við frekari aukningu, sbr.
t.d. áform Reykjanesbæjar um
víkingaþorp. Almennt leiðsögu-
nám er kennt í Kópavogi og er þá
verið að útskrifa leiðsögumenn
fyrir allt landið. Svo eru haldin
staðbundin leiðsögunámskeið
víðsvegar um landið þar sem fólk
sérhæfir sig í tilteknu lands-
svæði. Hér hefur ekki verið hald-
ið slíkt námskeið síðan 1985 en
þá útskrifuðust 7 manns. Helga
Ingimundardóttir var ein af þeim
sem tók leiðsöguprófið. Að
hennar mati var námið nauðsyn-
legur grunnur að stofnun Ferða-
þjónustu Suðurnesja og síðan
hvalaskoðunar fyrirtækinu sem
rekur bátinn Moby Dick.
Hvert eiga þeir sem hafa áhuga á
þessu námi að snúa sér?
Á heimasíðu okkar, www.mss.is
eru frekari upplýsingar sem
áhugasamir geta kynnt sér.
Einnig er hægt að hafa samband
við okkur í síma 421 7500 eða
koma til okkar á Skólaveg 1 sem
fyrst.
Félagasamtök
velja sér Kirkjudag
KEFLAVÍKURKIRKJA
Vetrarstarfsemi Keflavíkurkirkju er hafiðog útbreiðslunefnd kirkjunnar og prestarsafnaðarins vilja minna á kirkjudaga fé-
lagssamtaka. Á síðasta starfsári völdu 9 félags-
samtök sér sérstakan kirkjudag og mættu til
kirkju á þeim degi.
Í kynningu á fyrirkomulagi kirkjudaga segir:
„Í hinu nýja safnaðarheimili okkar hefur skapast
ágæt aðstaða til félagsstarfs og hugmynd okkar er
sú að félagssamtök velji sér sérstakan kirkjudag og
mæti þá sem flestir til kirkju.
Kirkjan býður upp á kaffi eftir messu, og félags-
samtök geta haldið fundi um leið ef þeim sýnist
svo. Félögin geta einnig valið sálmana í messuna
og séð um ritningalestur.
Kirkjan mun auglýsa messuna og hvaða félags-
samtök velja daginn sem kirkjudag og hvetja fé-
laga til þátttöku.”
Við munum hafa samband við félagssamtök um
þátttöku og hvetjum félög einnig til að hafa sam-
band við einhvern undirritaðra sem veita allar
nánari upplýsingar.
Sunnudeginum er vel varið með því að mæta til
kirkju.
Útbreiðslunefnd Keflavíkurkirkju
Þórunn Þórisdóttir 421 5681
Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir 864 6794
Gunnar Sveinsson 421 5410
Séra Ólafur Oddur Jónsson 420 4302
Séra Helga Helena Sturlaugsdóttir 420 4301.
➤ M I Ð S T Ö Ð S Í M E N N T U N A R Á S U Ð U R N E S J U M
Staðbundið leiðsögu-
nám á Reykjanesi
SPURT&SVARAÐ
Guðjónína
Sæmundsdóttir
forstöðumaður MSS
Auglýsingasíminn
421 0000
VF 41. tbl. 2003 8.10.2003 11:19 Page 6