Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.10.2003, Síða 18

Víkurfréttir - 09.10.2003, Síða 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Brynja Magnúsdóttirvaraþingmaður Sam-fylkingar í Suðurkjör- dæmi mun taka sæti í fyrsta sinn á alþingi þann 12. október nk. þegar Jón Gunnarsson heldur til New York þar sem hann mun sitja allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna fyrir hönd Samfylkingarinnar. Brynja segist vera mjög spennt fyrir því að setjast á Alþingi. „Þetta er meira spennandi en ógnvekjandi. Ég náttúrulega stefndi að því að komast á þing þannig að ég er sátt við að taka sæti þar öðru hverju.” Brynja segir að það sé mikið af ungu fólki sem eru svokallaðir sófa- pólitíkusar. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á pólitík og var einmitt einn af þessum sófa- pólitíkusum. Ég vildi hætta að verða þannig og láta rödd mína heyrast og það er best að láta hana heyrast á alþingi,” segir Brynja en hún býst við því að fyrstu dagarnir fari í að kynna sér reglur þingsins. „Reglur al- þingis eru fjölmargar, bæði skrifaðar og óskrifaðar. Ég á örugglega eftir að njóta leið- sagnar mér reynslumeira fólks um það hvaða reglur eru í gangi.” Brynja starfar sem sjúkraliði og hún segir að þau málefni séu henni ofarlega í huga. „Ég hef mikinn áhuga á málefnum fatl- aðra og ungs fólks. Það eru ein- mitt hóparnir sem hafa ekki svo marga málssvara og ég vil tala fyrir þetta fólk. Síðari vikan í þinginu er reyndar kjördæmavika þar sem þingmenn fara út í kjör- dæmin og tala við fólkið. Ég hlakka mikið til þess að heyra álit íbúanna á hinum ýmsu mál- efnum er snerta kjördæmið. Þarna er maður náttúrulega að fara til að heyra skoðanir fólks- ins, en ekki til að veiða atkvæði,” segir Brynja brosandi. Brynja er varaþingmaður fyrir fjóra þingmenn Samfylkingar- innar í Suðurkjördæmi og án efa á hún eftir að taka sæti á alþingi nokkuð oft á kjörtímabilinu. Dýralífið á Suðurnesjumeða réttara sagt örlögmargra dýra lentu á borði lögreglunnar í Keflavík alla síðustu viku. Þannig komu hundar, kettir, gæsir og minkur við sögu lögreglunnar í síðustu viku, eins og sjá má í dagbók lögreglunnar. Skömmu fyrir hádegi á mánudag í síðustu viku hringdi íbúi við Smáratún og tilkynnti að uppi á þaki bifreiðar þar fyrir utan lægi dauður minkur. Fóru lögreglu- menn á staðinn og fjarlægðu hræið. Skömmu eftir miðnætti á þriðju- dag í síðustu viku hringdi íbúi við Dalbraut í Grindavík og til- kynnti um lausan hund í götunni. Sagði hann hundinn vera Scheffer, brúnan og svartan. Til- kynnandi sagði einnig aðra hunda eiga það til að ganga lausir í bænum. Hundaeftirlitsmanni var kunngert málið. Á hádegi á þriðjudag í síðustu viku var tilkynnt að fundist hafi þrír ruslapokar með dauðum gæsum við hitaveiturör á Voga- stapa. Hefur einhver skilið þær þarna eftir og var þeim komið í lóg. Um miðjan dag á föstudag var ekið á gulbröndóttan kött á Vest- urgötu í Keflavík. Lögregla fór á staðinn en þá var kötturinn dauð- ur. Hann var ómerktur. Síðdegis sama dag var komið með dauðan kött á lögreglustöð- ina sem hafði verið ekið á Vatns- nesvegi í Keflavík við Hrannar- götu. Kötturinn, sem var svartur með hvíta flekki á maganum, var ómerktur. ➤ A L Þ I N G I Í S L E N D I N G A ➤ L Ö G R E G L U D A G B Ó K I N Hundur, kettir, gæsir og minkur á borð lögreglunnar Tekur í fyrsta sinn sæti á Alþingi í næstu viku Aðalfundur foreldrafélags Njarðvíkurskólaverður haldinn þriðjudaginn 14. októberkl. 19 í sal skólans. Venjulega aðalfund- arstörf og önnur mál á dagskrá m.a. lagabreyt- ingar. Hugo Þórisson sálfræðingur flytur fyrir- lestur um samskipti foreldra og barna. Hvetjum foreldra til að sýna samstöðu og fjölmenna á fundinn. Stjórn foreldrafélags Njarðvíkurskóla. Aðalfundur foreldrafélags Njarðvíkurskóla VF 41. tbl. 2003 8.10.2003 11:21 Page 18

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.