Víkurfréttir - 09.10.2003, Qupperneq 19
VÍKURFRÉTTIR I 41. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 9. OKTÓBER 2003 I 19
Vátryggingafélag Íslands og Hita-veita Suðurnesja hafa tekið hönd-um saman um að bæta forvarnir
á heimilum á Suðurnesjum, að því er
kemur fram í frétt frá félögunum.
VÍS býður nú viðskiptavinum sínum á
Suðurnesjum hagstæð lán til kaupa á for-
hitara í hús sín, en forhitari dregur úr tjón-
um vegna tæringar á vatnslögnum. Eftir að
forhitari hefur verið settur upp mun starfs-
maður frá Hitaveitu Suðurnesja hf. koma,
yfirfara hitaveitugreind og inntök fyrir
heitt og kalt vatn.
Gunnar Guðlaugsson, umboðsmaður VÍS
á Suðurnesjum segir að forvarnarlán sé
nýjung hjá félaginu og ákveðið hefði verið
að byrja á Suðurnesjum. Eftir að hafa átt
samráð við Hitaveitu Suðurnesja var
ákveðið að taka á þessu vandamáli sem
margir húseigendur á Suðurnesjum hafa
þurft að glíma við en það er ofnaleki.
Gunnar sagði að margir hafi seti uppi með
skaða því tryggingar greiði einungis fyrir
tjón sem vatnsleki veldur, ekki fyrir nýja
ofna og uppsetningu þeirra.
Þegar fólk lætur setja upp forhitara en inni-
falið í verkinu uppsetning, allt efni, skoðun
og skolun núverandi lagna, stilling kerfis
og eftirlit í mánuð að verki loknu.
Áætlaður kostnaður við svona verk í 250
ferm. Húsi er áætlaður um 165 þús. kr. og
lánar VÍS til allt að 36 mánaða með 9,8%
breytilegum vöxtum. Meðalgreiðslur mið-
að við þessa upphæð eru innan við sex
þúsund. Þá lækka iðgjöld húseigenda-
trygginga um 33% hjá þeim sem setja upp
forhitara.
Hagstæð forvarnarlán
vegna forhitara á heimili
Nýjung hjá Vátryggingafélagi Íslands:
VF 41. tbl. 2003 8.10.2003 14:23 Page 19