Víkurfréttir - 09.10.2003, Qupperneq 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Ágúst Hilmar sem er 21árs gamall fékk fyrstaflogaveikiskastið fyrir 5
árum síðan þegar hann var 16
ára. Að sögn Hafdísar móður
hans fór hann strax í rann-
sóknir og í meðferð vegna
flogaveikinnar og hefur verið á
sérstökum lyfjum síðan. Ágúst
er með svokallaða flogaveiki
hina meiri sem er flogaveiki á
mjög háu stigi. Frá því Ágúst
fékk bílpróf hefur hann fjórum
sinnum lent í umferðaróhöpp-
um sem rekja má til flogaveik-
innar. Í september árið 2001
keyrði hann út af á Stranda-
heiði og í janúar árið 2002 lenti
hann í umferðaróhappi við
Seylubraut og í kjölfarið missti
hann bílprófið í 9 mánuði.
Ágúst fékk bílpróf aftur í sept-
ember árið 2002 og var aukinn
við hann lyfjaskammturinn til
að halda flogaveikinni niðri, en
flogaveikir einstaklingar þurfa
að gangast undir læknisskoðun
áður en þeir fá bílpróf. Í apríl á
þessu ári lenti Ágúst í umferð-
aróhappi á Flugvallarvegi og
þann 3. september lenti Ágúst í
umræddu umferðaróhappi þar
sem bifreið sem hann ók lenti á
járngirðingu við Njarðarbraut
í Njarðvík, en í kjölfar árekst-
ursins missti Ágúst bílprófið í
óákveðinn tíma. Í kjölfar þess
óhapps var Ágúst handtekinn
þar sem móðir hans og hann
sjálfur segja lögregluna hafa
beitt sig harðræði.
Man lítið
Þegar Ágúst rifjar slysið upp man
hann eftir sér þegar hann keyrði
fram hjá verslun Samkaupa í
Njarðvík. Hann segir að hann
hafi fundið fyrir því að hann væri
hugsanlega að fá flogaveikiskast,
en hann var á leiðinni heim. „Ég
fæ alltaf sérstaka tilfinningu í lík-
amann þegar kast nálgast,” segir
Ágúst og man ekki meira eftir sér
fyrr en á lögreglustöðinni þegar
hann hafði verið handtekinn. Í
lögregluskýrslu um málið kemur
fram að Ágúst hafi legið í göt-
unni þegar lögreglan kom á vett-
vang. Þar segir að nokkrir vegfar-
endur hafi verið að huga þar að
manni. Í skýrslunni segir að
Ágúst hafi verið með meðvitund
þegar lögregla kom á staðinn, en
hafi verið mjög ringlaður og
engu svarað.
Átti erfitt með öndun
Tveir aðilar voru á vettvangi þeg-
ar lögreglan kom og starfar annar
þeirra sem hjúkrunarfræðingur
og eru þeir vitni á vettvangi.
Samkvæmt lögregluskýrslunni
sagði annað vitnið að Ágúst hafi
verið meðvitundarlaus þegar þeir
komu á staðinn en hann haf i
fljótlega rankað við sér. Vitnið
sagði að hann hafi athugað hvort
Ágúst væri með einhverja áverka
á hálsi en að hann haf i ekki
greint nein merki þess, en þegar
Ágúst hefði verið að komast til
meðvitundar hafi hann greinilega
átt erfitt með öndun. Í skýrslunni
kemur fram að þá hafi vitnið tek-
ið Ágúst út úr bifreiðinni og lagt
hann á jörðina svo hann ætti auð-
veldara með öndun. Í skýrslunni
segir að vitnið hafi snemma tekið
eftir sterkum einkennum um að
Ágúst væri að ranka við sér eftir
mikið krampakast. Vitnið tjáði
lögreglunni að Ágúst hafi verið
„fjarrænn og illa áttaður” og að
hann hafi “svitnað mikið og ver-
ið frekar kaldur viðkomu.” Í
skýrslunni kemur fram að Ágúst
hafi ekki verið í öryggisbelti.
Fluttur í handjárnum
Í lögregluskýrslunni segir að
þegar sjúkraflutningamenn voru
að ræða við Ágúst hafi hann virst
kominn með fulla meðvitund, en
hafi virkað illa áttaður og ekki
skilið af hverju lögreglan væri á
staðnum, auk þess sem hann hafi
ekki kannast við að hafa lent í
árekstri. Samkvæmt lögreglu-
skýrslunni settist Ágúst aftur inn
í bifreiðina og sagði við lögregl-
una að hann ætlaði sér að fara og
þegar lögreglumenn útskýrðu
fyrir honum að bifreiðin væri
óökufær hafi hann ekki skilið
það.
„Ágúst vildi ekki koma með
sjúkrabifreiðinni í fyrstu en síðan
var hann leiddur mótþróalaust af
lögreglumönnum og sjúkraflutn-
ingamönnum að sjúkrabifreið-
inni. Ágúst virtist frekar óstöðug-
ur þegar hann var leiddur að
sjúkrabifreiðinni. Þegar síðan var
verið að aðstoða Ágúst upp í
sjúkrabifreiðina harðneitaði hann
skyndilega að fara inn í bifreið-
ina og reiddist mjög,” segir orð-
rétt í skýrslunni, en þar kemur
einnig fram að reynt hafi verið
að ræða við Ágúst og róa hann
niður, en hann hafi engu svarað,
verið ógnandi í framkomu og ýtt
lögreglumönnum frá sér. “Ágúst
hlýddi ekki tilmælum um að róa
sig niður og kreppti hann hnef-
ana og sló frá sér,” segir orðrétt í
skýrslunni. Í kjölfar þess var tek-
in ákvörðun af lögreglumanni að
handjárna Ágúst þar sem lög-
reglan taldi ástand hans óstöðugt
og var hann fluttur í handjárnum
á Lögreglustöðina í Keflavík
„sökum ástands hans” eins og
fram kemur í skýrslunni.
Í lögregluskýrslunni segir að
Ágúst hafi verið “frekar æstur” í
lögreglubifreiðinni og að lög-
reglumaður hafi þurft að halda
honum til að hann myndi ekki
skaða sjálfan sig. Ágúst var færð-
ur í fangaklefa þegar komið var
með hann á lögreglustöðina “til
að reyna að róa hann niður en
hann slóst við lögreglumennina
Yfirlýsing frá fjölskyldunni
Við viljum taka það skýrt fram að fram að þessu tiltekna atviki
höfum við ekki haft nema gott eitt að segja um lögregluna í
Keflavík. Í gegnum tíðina höfum við alltaf getað leitað til lög-
reglunnar og hún hefur sinnt okkar beiðnum af alúð og sam-
viskusemi.
Eina ástæðan fyrir því að við erum að vekja athygli á því sem
að kom fyrir Ágúst er sú að við viljum að það verði víti til varn-
aðar - að svona lagað gerist ekki aftur.Veikt fólk verður að geta
treyst því að það sé farið með það á sjúkrahús þegar við á, en
lendi ekki í fangageymslum lögreglunnar. Að okkar mati þá er
þetta það sem málið snýst um - það er mannlegt að gera mistök,
okkur verður öllum á annað slagið og enginn verður minni fyr-
ir að viðurkenna það, hvorki lögreglan né aðrir, heldur þvert á
móti.
Við vonum bara innilega að einhver lærdómur verði dreginn af
þessum mistökum svo að svona lagað komi ekki fyrir aftur.
Ágúst Hilmar Dearborn
Kristjana Hafdís Hreiðarsdóttir
Ingólfur Jónsson
Óska rannsóknar ríkissaksóknara vegna vinnu-
bragða Lögreglunnar í Keflavík við handtöku
Kristjana Hafdís Hreiðarsdóttir og sonur hennar Ágúst Hilmar Dearborn hafa sent ríkissaksóknara bréf þar sem óskað er rannsóknar á hand-
töku sem lögreglan í Keflavík stóð að þegar Ágúst Hilmar lenti í bílslysi í Reykjanesbæ vegna flogaveikiskasts sem hann fékk undir stýri. Þau
telja að lögreglan hafi beitt harðræði við handtökuna og gagnrýna mjög vinnubrögð lögreglunnar í málinu í heild sinni.
VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson
➤ V Í K U R F R É T TA V I Ð TA L I Ð
Ingólfur Jónsson, Ágúst Hilmar Dearborn og Kristjana Hafdís Hreiðarsdóttir.
Áverkar eftir handjárn.
Áverkar á baki.
VF 41. tbl. 2003 8.10.2003 12:30 Page 24