Víkurfréttir - 12.02.2004, Qupperneq 9
VÍKURFRÉTTIR I 7. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 12. FEBRÚAR 2004 I 9
S íðasti hreppsnefndar-fundurinn í Garði varhaldin í Samkomuhúsinu
í Gerðum fyrir réttri viku. Þar
mættu því í síðasta skipti
hreppsnefndarmenn, oddviti
og sveitarstjóri. Þegar fólkið
fór heim að loknum fundi var
það orðið að bæjarfulltrúum,
forseta bæjarstjórnar og bæj-
arstjóra.
Á hreppsnefndarfundinum í gær
var gerð staðfesting á breyttu
stjórnsýsluheiti Gerðahrepps,
sem verður: Sveitarfélagið
Garður.
Við breytingu á stjórnsýsluheiti
fyrir sveitarfélagið úr Gerða-
hreppur í Sveitarfélagið Garður
og nýja samþykkt um stjórn og
fundarsköp breytist eftirfarandi:
Hreppsnefnd verður Bæjarstjórn.
Hreppsnefndarmaður verður
bæjarfulltrúi. Oddviti verður for-
seti bæjarstjórnar. Starfsheiti
sveitarstjóra breytist í bæjar-
stjóra.
Kosning sem fram fór í upphafi
kjörtímabils í nefndir, ráð og
stjórnir gildir áfram nema kjósa
þarf í bæjarráð og jafnréttis-
nefnd.
Bæjarráð
Aðalmenn: Ingimundur
Þ.Guðnason, Einar Jón Pálsson
og Arnar Sigurjónsson
Varamenn: Guðrún S.Alfreðs-
dóttir, Gísli Heiðarsson og Agnes
Ásta Woodhead.
Jafnréttisnefnd
Aðalmenn: Einar Jón Pálsson,
Guðrún S.Alfreðsdóttir og Agnes
Ásta Woodhead.
Varamenn: Gísli Heiðarsson,
Ingimundur Þ.Guðnason og
Hrönn Edvinsdóttir.
Tilllaga frá H-listanum var borin
upp á hreppsnefndarfundinum í
gær: Hún er svohljóðandi:
„H-listinn óskar eftir að fá
áheyrnarfulltrúa í bæjarráð.“
Tillagan felld með fjórum at-
kvæðum, tveir sátu hjá og einn
greiddi tillöguninni atkvæði.
Síðasti hreppsnefndarfundurinn
➤ G A R Ð U R I N N
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
H
ilm
ar
B
ra
gi
B
ár
ða
rs
on
Auglýsingasíminn er 421 0000
auglysingar@vf.is
7. tbl. 2004 umbrot HEIMA 11.2.2004 12:42 Page 9