Víkurfréttir - 26.02.2004, Qupperneq 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
A lls eru 19 aðilar íReykjanesbæ sem tengj-ast forvarnarstefnu bæj-
arins, en samstarfið var form-
lega kynnt á fundi sem haldinn
var í Kirkjulundi í síðustu
viku. Forvarnarstefnan var
samþykkt í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar í nóvember sl.
Markmið forvarnarstefnunnar
er að stuðla að auknu heil-
brigði og hamingju barna,
ungmenna og fjölskyldna þeir-
ra. Í forvarnarstefnunni segir
að til þess að slíkum árangri
megi ná þurfi markvissa og
góða samvinnu meðal þeirra
sem vinni að forvörnum.
Á kynningarfundinum var full-
trúum allra þeirra aðila sem taka
þátt í forvarnarstefnunni afhent
eintak af stefnunni. Í vinnuhópn-
um sem vann að gerð forvarnar-
stefnunnar eru Ragnar Örn Pét-
ursson forvarnar- og æskulýðs-
fulltrúi, Rannveig Einarsdóttir yf-
irfélagsfræðingur og Gylfi Jón
Gylfason yfirsálfræðingur.
Í máli Ragnars Arnar kom fram
að bæjarstjórn hafi skipað 6 aðila
í svokallað forvarnateymi frá
stofnunum Reykjanesbæjar. Gert
er ráð fyrir að forvarnarteymið
komi saman 2 til 3 sinnum á ári
og fari yfir markmið og fram-
kvæmd forvarnarstefnunnar og
að einu sinni á ári verði samráðs-
fundur allra aðila.
Ragnar Örn sagði að mjög marg-
ir aðilar ynnu gott forvarnarstarf
í bænum og benti hann sérstak-
lega á að slíkir aðilar gætu sótt
um styrki til forvarnasjóðs
Reykjanesbæjar, en í sjóðnum er
ein og hálf milljón króna til út-
hlutunar á þessu ári.
➤ F O R V A R N I R Í R E Y K J A N E S B Æ
➤ K E F L A V Í K U R F L U G V Ö L L U R
Forsvarsmenn forvarnastefnu Reykjanesbæjar í Kirkjulundi.
Nítján aðilar þátttakend-
ur í forvarnarstefnu
Reykjanesbæjar
Tollverðir á Keflavíkur-flugvelli fundu í síðustuviku um 10 kg af hassi í
vörusendingu, en maður um
þrítugt var handtekinn vegna
málsins á föstudag og var hann
á laugardag úrskurðaður í
einnar viku gæsluvarðhald
vegna rannsóknar málsins.
Miðað við 2.200 króna meðal-
verð á grammi af hassi í lausa-
sölu í janúar sl., uppgefnu af
SÁÁ, er ætlað götuverðmæti af
sölu á 10 kg af hassi um 22 millj-
ónir.
Hass fannst í
vörusendingu
9. tbl. 2004 umbrot hbb 25.2.2004 14:02 Page 6