Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.02.2004, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 26.02.2004, Blaðsíða 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Tónlistarfélag Reykjanesbæjarstendur fyrir hádegistónleikum íListasafni Reykjanesbæjar þriðju- daginn 2. mars n.k. í samstarfi við Ís- lensku Óperuna.Yfirskrift tónleikanna er „Nú er það svart“ og mun Davíð Ólafsson bassasöngvari flytja „negra- sálma“ við undirleik hljómsveit- ar. Davíð starfar við Ís- lensku Óperuna og er um þessar mundir á lokaæfingum fyr- ir Brúðkaup Fig- arós. Samstarf- ið við Íslensku Óperuna er tilrauna- verkefni og ef undirtektir verða góðar er hugsanlegt að Tónlistarfé- lagið standi fyr- ir fleiri hádegis- tónleikum í fram- tíðinni. Davíð segir slíka tónleika næringu á líkama og sál og brjóta upp dag- inn hjá fólki. Nú er það svart - fyrir hvað stendur það? Þetta stendur ekki fyrir slæmum horf- um. Þetta er bara fallega meintur útúrsnúningur. Ég var bara í vandræðum með nafn- giftina á þessari dagskrá. Þetta er blanda af gospel- sálmum og blökkumannasöngvum og það var bara mjög erfitt að finna samheiti yfir þetta. Þetta eru því söngvar svartra manna, svo að nú er það svart! Á þessi tónlist erindi við okkur? Þetta eru söngvar þræla sem biðja fyrir betra lífi. Þeir eru kúgaðir og njóta engra mannréttinda og þeir leita sér huggunar í söng. Þetta er ekki haturs og hefndarboð- skapur heldur óska þeir sér frelsis, ef ekki hér á jörðu þá í hinu eilífa lífi hjá guði. Þeir voru svo undirokaðir að þeir urðu að leita út fyrir hið jarðneska til að finna vonina og héldu mjög fast í hana. Við erum oft undirokuð af veraldlegum hlut- um og dótinu sem við erum að safna í kringum okkur en gleymum oft því sem skiptir máli. Það verða allir að eiga einhverja von. Það er sammannlegt. Eru hádegistónleikar að vera vinsælir? Hvað er það sem heillar fólk við það fyrirkomu- lag? Þetta hefur slegið í gegn í Reykja- vík og það er örtröð fyrir utan óperuna fyrir hverja tónleika. Við byrjum 12:15 og klárum um 12:50. Passar nákvæmlega fyrir þá sem fá bara klukkutíma hádegis- hlé. Það er alltaf eitt ákveðið þema og margir eru áhugasamir að kynnast ein- hverju nýju. Þetta brýtur daginn upp hjá fólki og mér er sagt að afköst þeirra sem sæki þessa tónleika margfaldist eftir há- degi. Svo er þetta alveg kaloríusnautt og ef að fólk klappar mikið næst út úr þessu töluverð brennsla. Reyndar eru seldar léttar veit- ingar fyrir og eftir tónleika en endurnær- ingin er algjör á líkama og sál. Hvaða lög verða á efnisskránni? Ég valdi lögin með Daníel Bjarnasyni pí- anóleikara en hann útsetti þetta fyrir klar- inettu, fiðlu, selló og píanó. Við tökum dýpri deildina með lögum eins og Go down Moses, Ol man river og Deep river Jordan. Svo erum við með lög úr Porgy and Bess og fleira í þeim dúrnum. Þessi dagskrá fékk frábærar viðtökur í óper- unni og við höfum spilað úr þessu t.d. í sjónvarpinu og vakið mikla athygli. En hvers vegna að koma með þetta til Reykjanesbæjar? Það var aldrei á dagskrá. En í jólaboðun- um hér syðra var mikið spurt um þetta og fólk mjög áhugasamt. Ég hafði því sam- band við tónlistarfélagið og í samvinnu við Íslensku óperuna var látið vaða. Það er komin stórkostleg aðstaða í kringum Duushúsin og ég held að bæjarbúar séu að ranka við sér. Öll sú athygli sem menningarlífið er að fá á landsvísu er allveg gríðarleg söluvara fyrir bæjarfélagið. Svo er öflugt menning- arlíf líka lífsgæði sem bætir sjálfsímynd fólks, og skapar þannig vænlegt bæjarfé- lag sem eftirsótt er að búa í. Tónleikarnir hefjast kl. 12.15 í Listasafni Reykjanesbæjar og standa til 12.50. Miða- sala er við innganginn og er miðaverð kr. 1.000. Söngvar svartra manna ➤ H Á D E G I S T Ó N L E I K A R T Ó N L I S TA R F É L A G S R E Y K J A N E S B Æ J A R Í D U U S H Ú S U M - Davíð Ólafsson bassasöngvari flytur „negrasálma“ við undirleik hljómsveitar „Öll sú athygli sem menningarlífið er að fá á landsvísu er all- veg gríðaleg söluvara fyrir bæjarfélagið. Svo er öflugt menn- ingarlíf líka lífsgæði sem bætir sjálfsímynd fólks, og skapar þannig vænlegt bæjarfélag sem eftirsótt er að búa í“ 9. tbl. 2004 umbrot hbb 25.2.2004 14:07 Page 14

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.