Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.02.2004, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 26.02.2004, Blaðsíða 8
KALLINN vill byrja á að óska Keflavíkurstúlkum til hamingju með deildarmeistaratitilinn. Glæsilegur árangur hjá stelpunum! KALLINN ER MJÖG reiður vegna tillagna um flutning raforku á raflínum landsins. Hvað í fjandanum réttlætir það að Suðurnesja- menn þurfi hugsanlega að greiða 25-30% hærra orku- verð vegna þessara breyt- inga? Af hverju í ósköpun- um ættu Suðurnesjamenn að þurfa að gjalda þess að raforkuverð er hærra út á landi? Júlíus Jónsson for- stjóri Hitaveitu Suðurnesja hefur staðið eins og klettur í þessu máli og hefur hann ekki verið spar á að mótmæla þessum tillögum 19 manna nefndar- innar svokölluðu. Kallinn styður Júlíus svo sannar- lega í þessari baráttu og það skal aldrei liðið að þessi tillaga verði að lögum. Suðurnesjamenn vilja halda orkuverðinu eins og það er og njóta góðrar þjónustu Hitaveitu Suðurnesja. ÞAÐ ER AÐ GERAST það sem Kallinn hefur lengi spáð - herinn er hreinlega að fara. Kafbátaleit- ardeildin er að pakka saman og stóra flugskýlið upp á velli verður óþarft. Þar verður fljótlega hægt að halda böll! KALLINN SPÁIR því að Varnarliðið fari innan tveggja ára - það hreinlega fer eina nóttina. Hvað ætti svo sem að stoppa Rumsfeld og Haukana í Washington að færa herliðið sem hér er nær mið- austurlöndum - til alvöru átakasvæða? Heldur fólk að Rumsfeld hugsi um atvinnu á Suðurnesjum? Að sjálfsögðu ekki! KALLINN ER AÐ sjálfsögðu mótfallinn því að herinn fari - en ekki verður litið framhjá staðreynd- um. Það verður einhver vinna að fara af stað til að það hreinlega fari ekki allt í kalda kol hér á Suður- nesjum. Það þarf meira en Stálpípuverksmiðju á svæðið - en hvað er annars að frétta af því ágæta verkefni? SYKURVERKSMIÐJA gæti hugsanlega risið hér samkvæmt grein sem Gunnar Örlygsson þingmaður skrifaði á vef Víkurfrétta. Nú þarf að skoða alla hluti og réttast væri að sett yrði af stað vinnuhópur á svæðinu sem hefði það hlutverk að taka á móti hug- myndum að atvinnuuppbyggingu frá fólkinu á svæðinu. EN KALLINN óskar eftir fréttum frá Varnarliðinu og biður Friðþór Eydal upplýsingafulltrúa sérstak- lega um að skýra frá málum eins og þau eru á hans borði. Nú þýðir ekki að vera í neinum hermannaleik þar sem allt snýst um trúnaðarmál. Við eigum í stríði! Kveðja, kallinn@vf.is stuttar f r é t t i r 8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Blaðamaður: Jóhannes Kr. Kristjánsson, sími 421 0004, johannes@vf.is Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Sigurjónsson, sími 421 0001, jonas@vf.is Auglýsingadeild: Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is Útlit, umbrot og prentvistun: Víkurfréttir ehf. Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is Kallinn á kassanum MUNDI ➤ M I N N I H L U T I B Æ J A R S T J Ó R N A R R E Y K J A N E S B Æ J A R U M B Æ J A R H L I Ð I Ð Landhelgis- gæzluna til Suðurnesja T illögu um að höfuð-stöðvar Landhelgis-gæslunnar verði flutt- ar til Suðurnesja var vísað til Allsherjarnefndar Al- þingis í síðustu viku, en í til- lögunni er gert ráð fyrir að dómsmálaráðherra skoði kosti þess og galla að flytja höfuðstöðvarnar til Suður- nesja. Flutningsmenn tillögunnar eru Hjálmar Árnason Fram- sóknarflokki, Jón Gunnars- son og Brynja Magnúsdóttir Samfylkingu, Drífa Sigfús- dóttir Sjálfstæðisflokki og Grétar Mar Jónsson Frjáls- lyndum. Við umræður á Al- þingi sagði Hjálmar Árnason að það væri sannfæring flutn- ingsmanna tillögunnar að niðurstaða af úttekt dóms- málaráðherra um flutning Landhelgisgæzlunnar til Suð- urnesja yrði jákvæð þegar horft væri til öryggis, rekst- urs og byggðapólitískra sjón- armiða. Jón Gunnarsson þingmaður Samfylkingarinnar í Suður- kjördæmi sagði við umræð- urnar að hann vonaðist til að málið fengi skjóta afgreiðslu hjá Allsherjarnefnd og að ýtt yrði á eftir málinu svo það kæmist fljótlega til annarrar umræðu á Alþingi. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnarlögðu fram bókun á bæjarstjórnar-fundi í síðustu viku þar sem gagn- rýnt er að svör hafi borist seint við spurn- ingum minnihluta bæjarstjórnar um kostnað við svokallað bæjarhlið, en spurn- ingarnar voru lagðar fram á bæjarstjórn- arfundi þann 3. febrúar sl. Í bókuninni segir að svör við spurningunum hafi ekki borist með fundargögnum sl. föstu- dag og að þau hafi verið borin heim til bæjar- fulltrúa eftir hádegi sama dag og bæjarstjórnarfundur var haldinn og að bæjar- fulltrúar hafi ekki haft tíma til að fara yfir svörin fyrir bæjarstjórnarfund. Einnig kemur fram í bókuninni að óskað hafi verið eftir af- ritum af reikningum þann 4. febrúar sl. vegna framkvæmdanna en að þau afrit hafi ekki borist. Í lok bókunarinnar segir: „Þar sem þetta eru í engu samræmi við þær vinnureglur sem viðhafðar eru í bæjarstjórn Reykjanes- bæjar, áskiljum við okkur rétt til þess að taka málið aftur á dagskrá á næsta bæjarstjórnar- fundi þann 2. mars nk.“ Sæll Kall. Mig langaði að koma á framfæri reiði minni á endalausum skatta- hækkunum á einstaklinga og fjöl- skyldur, og þá sérstaklega barna- fólk og fólk sem er að koma yfir sig þaki. Ef ég man rétt fyrir síð- ustu kosningar var okkur lofað skattalækkunum ef við styddum sitjandi stjórn, annars mundi allt fara í bál og brand ef við kysum annað. Ég var einn af þeim sem var svo vitlaus að trúa stjórn Sjálfstæðis og Framsóknar einu sinni enn, hvað maður getur ver- ið vitlaus. Ég spyr þig kall hvort þú getir sagt okkur hvar allar skattalækkanirnar eru eða þá auglýst eftir þeim. Þetta á reynd- ar við sitjandi bæjarstjórn líka, ég var svo vitlaus í þeim kosning- um líka að trúa á Sjálfstæðis- flokkinn en hvað fær maður, alla- vega ekki skattalækkanir. Ég vil svo enda þetta á því að biðja alla þá sem kusu annað en ég á síð- ustu alþingis- og bæjarkosning- um afsökunar á mínum mistökum í kjörklefanum, ég geri betur næst, og kallinum vil ég gefa hrós og þakklæti mitt fyrir góða skemmtun. Takk fyrir, einn ósáttur við sjálfan sig. Nýtt félag með tæp 90% í Þor- birni Fiskanesi ÓK-1 Eignarhaldsfé-lag, sem er í eiguEríks Tómassonar, Gunnars Tómassonar, Gerðar S. Tómasdóttur og Tómasar Þorvaldssonar, á nú 88,79% hlut í Þorbirni Fiskanesi, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallar Íslands. Reikningana á borðið FRÉTTASÍMINN 898 2222 Vaktaður allan sólarhringinn! Verður settur þyrlupallur við bæjarhliðið ef Landhelgisgæzlan kemur til Reykjanesbæjar? 9. tbl. 2004 umbrot hbb 25.2.2004 14:04 Page 8

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.