Víkurfréttir - 26.02.2004, Blaðsíða 28
28 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Hugleiðingar þær semhér fara á eftir urðu tilþegar mér var boðið
að koma og vera viðstaddur
þegar tekin yrði fyrsta hraun-
hellan vegna fyrirhugaðra ný-
framkvæmda nýrrar með-
ferðarstöðvar í Bláa lóninu
fyrir Psoriasis sjúklinga. Þar
var saman kominn heill her
manna til að vera vitni að
þessum miklu og nauðsynlegu
framkvæmdum til handa
psoriasis-sjúklingum þessa
lands sem og annarra en eins
og fram kom í ræðu manna, á
að fara að leggja mun ríkari
áherslu á að fá hingað útlend-
inga til meðferðar. Þessi at-
höfn var mjög virðuleg enda
fjöldi fyrirmanna mættir á
svæðið.
Það sem fékk mig hinsvegar til
að stinga niður penna, var tæki-
færisræða nýja bæjarstjórans í
Grindvík, sem þakkaði Heilsu-
félaginu fyrir farsæl störf um
langan tíma og tók fram í leið-
inni að „reykvískur psoriasis-
sjúklingur“ hefði fyrstur manna
reynt lækningamáttinn þarna,
þegar verið var að hefja hita-
veituframkvæmdir á svæðinu.
Oft í gegnum árin hafa svona
söguskýringar skotið upp koll-
inum, þegar Bláa lónið hefur
borið á góma við hin ýmsu
tækifæri. Má t.d. nefna þegar
SPOEX samtök psoriasis og ex-
emsjúklinga gaf út afmælisbæk-
ling í tilefni af 30 ára afmæli fé-
lagsins. Þar heldur Gísli Krist-
jánsson, sá ágæti maður því
fram að hann eigi allan heiður-
inn af því að hafa fundið upp
lækningamáttinn í Bláa lóninu.
Hann hafi dvalið þar langdvöl-
um á hverjum degi á árunum
1978 til 1981. Enginn hafi bara
vitað af þessu og hann hafi bara
viljað njóta þess aleinn í heim-
inum að fá lækningu þarna.
Samt var hann í stjórn SPOEX
á þessum árum og maður hefði
haldið að hann hefði viljað deila
þessum stórkostlega lækninga-
mætti með félögunum. Nei al-
deilis ekki, hann fór bara einn
og sagði engum frá í heila tvo
áratugi eða þar til viðtalið við
hann er tekið á 30 ára afmæli
félagsins. Fleiri svona sögu-
skýringar hafa af og til skotist
upp. Allir vilja Lilju kveðið
hafa.
En þá er komið að því sem ég
vildi sagt hafa. Það var ekki
bara „einhver Reykvíkingur“ og
ekki heldur bara „Gísli Krist-
jánsson“ eða einhverjir aðrir,
sem böðuðu sig þarna fyrstir og
fundu út að þessi affallssjór sem
vall þarna upp úr iðrum jarðar,
hefði þennan mikla lækninga-
mátt sem raun ber vitni. Heldur
var það undirritaður sjálfur sem
baðaði sig þarna langfyrstur
allra, til að kanna lækningamátt
þessa affallssjávar, en á þeim
tíma sögðu menn að ég hlyti að
vera kolbrjálaður að ætla mér
að taka þennan mikla sjéns og
fara að baða mig í þessum
„drullupolli“ eins og yfirlæknir-
inn orðaði það, en það var í
byrjun september 1981. Í fyrsta
lagi væri botninn stórhættulegur
vegna hvassra og beittra hraun-
nibba sem auðveldlega hefðu
getað skaðað mann og í öðru
lagi gætu ýmis eiturefni verið í
þessum legi sem gætu verið
stórskaðleg heilsunni, auk þess
sem hitastigið væri mjög
sveiflukennt og gætu menn því
brennt sig alvarlega. Enginn
vildi hleypa mér þarna ofan í og
varð ég að fá sérstakt leyfi frá
þáverandi hitaveitustjóra Ingólfi
Aðalsteinssyni sem í upphafi
neitaði mér alfarið um þessa
„fífldjörfu ævintýramennsku“
eins og hann orðaði það, enda
hefðu menn forðast að komast í
snertingu við þennan lög. En ég
gafst ekki upp og að lokum
samþykkti hitaveitustjórinn að
líta í hina áttina, en þetta yrði al-
farið á mína eigin ábyrgð. Það
var því talsverð spenna meðal
starfsmanna Hitaveitunnar, þeg-
ar ég mætti í fyrsta skipti til að
baða mig, enda höfðu þeir á
orði að ég væri sá fyrsti sem
reyndi þessa böðun.
En svo ég geri langa sögu stutta
að þá fann ég strax að þarna
hafði eitthvað merkilegt átt sér
stað. Mig hætti t.d. að klæja á
3ja degi og áður en mánuðurinn
var liðinn var ég nánast bletta-
laus. Eitthvað sem ég hafði ekki
verið, frá því að ég fékk sjúk-
dóminn á unga aldri.
Þegar fregnir spurðust út um
þennan bata minn, kom dag-
blaðið Vísir að máli við mig til
að forvitnast um það „krafta-
verk“, sem þarna hafði átt sér
stað og enginn hafði vitað um
áður, endar var viðtalið tekið
við mig sem upphafsmann böð-
unar þarna. Ég man að þessi
ungi fréttamaður, vildi endilega
kalla þetta svæði einhverju
nafni, það hljómaði svo miklu
betur í fréttinni, eins og hann
orðaði það. Ég tjáði honum að
þessar hitaveituframkvæmdir
væru undir fjallinu Þorbirni, en
ég kallaði sjálfan pollinn, Bláa
lónið, því það var svo fagur-
blátt. Þarna kemur þetta orð í
fyrsta skipti fram á prenti.
Greinilega hefur mönnum litist
vel á þetta nafn, því það festist
við staðinn eftir að ég hafði gef-
ið staðnum þessa nafngift.
Ég vil því meina að ég undirrit-
aður, sé upphafsmaður að kalla
þennan stað, Bláa lónið, auk
þess sem ég tel mig hafa verið
fyrstan til að baða mig þarna til
að kanna lækningamátt þessa
jarðsjávar.
Ég minnist þess, að áður en ég
fór í þessa böðun, að þá hafði
ég samband við húðlækni minn,
þar sem ég tjáði honum fyrir-
ætlanir mínar. Hann hafði enga
fordóma gagnvart þessum hug-
myndum og hvatti mig til að
prófa. Yfirlæknir húðdeildar-
innar á Landspítalanum var
hinsvegar á öðru máli og taldi
að þetta væri drullupollur sem
engin áhrif myndu hafa.
Þess má svo geta að sífellt fleiri
og fleiri fóru að mæta þarna og
baða sig með sömu áhrifum og
ég hafði upplifað. Frá upphafi
lá ég aldrei á þessum upplýsing-
um og vildi að sem flestir gætu
notið þessa lækningamáttar sem
ég hafði uppgötvað á eigin spýt-
ur.
Með þessum orðum mínum er
ég hvorki að státa mig af þessu
né að agnúast yfir áframhald-
andi uppbyggingu við Bláa lón-
ið fyrir psoriasis-sjúklinga, síð-
ur en svo. Mér finnst hinsvegar
þegar menn á tyllidögum sem
þessum eru að rifja upp tilurð
Bláa lónsins þar sem verið er að
eigna hinum og þessum heiður-
inn af því að hafa uppgötvað
þennan lækningamátt, að þá
megi sannleikurinn fá að njóta
sín.
Valur Margeirsson,
psorisissjúklingur.
➤ V A L U R M A R G E I R S S O N S K R I F A R
Leiðrétt útgáfa um tilurð Bláa lónsins
Valur Margeirsson við böðun í Bláa lóninu fyrir nokkrum árum.
Lögreglan í Keflavík hefurþurft að hafa síendurtek-in afskipti af pramma
sem stendur í Njarðvíkurhöfn
vegna æðarfugla sem þar hafa
drepist. Undir prammanum
eru göt sem æðarfuglinn kafar
upp um og festist með því inn í
lest prammans og kemst fugl-
inn ekki út nema stuggað sé við
honum.
Pramminn hefur verið bundinn
við bryggju í Njarðvíkurhöfn í
nokkur ár, en hann var notaður
við uppbyggingu grjótgarðs við
Keflavíkurhöfn. Að sögn Svavars
Einarssonar framkvæmdarstjóra
SEES ehf. hefur fyrirtækið nokk-
uð lengi reynt að selja pram-
mann. „Það hefur staðið til í
nokkur ár en lítið gengið í því
máli,“ sagði Svavar í samtali við
Víkurfréttir.
Víkurfréttir könnuðu prammann
í síðustu viku og á prammanum
var nokkuð stórt op sem auð-
veldlega er hægt að detta niður
um, en um fjórir metrar eru niður
á botn lestar prammans. Svavar
vildi að það kæmi skýrt fram að
hann teldi prammann og svæðið í
kring ekki vera leiksvæði barna.
Tæplega tuttugasti hveríbúi Suðurnesja er af er-lendu bergi brotinn eða
761 einstaklingur. Flestir koma
íbúarnir frá Póllandi eða 309
einstaklingar. Frá Danmörku
og Taílandi koma 59 einstak-
lingar frá hvoru landi og frá
Filippseyjum koma 46 íbúar.
Íbúar á Suðurnesjum með er-
lent ríkisfang eru alls af 49
þjóðernum.
Hæst hlutfall íbúa með erlent rík-
isfang er í Garðinum en þar eru
um 10% íbúa af erlendu bergi
brotnir. Í Sandgerði búa 105 íbú-
ar með erlent ríkisfang eða rúm
7,5% af heildaríbúafjöldanum. Í
Vogum á Vatnsleysuströnd eru
54 íbúar af erlendu bergi brotnir
eða tæp 6%. Í Grindavík eru 120
íbúar með erlent ríkisfang eða
tæp 5% af íbúafjöldanum og
3,25% af íbúum Reykjanesbæjar
eru íbúar með erlent ríkisfang
eða 354 einstaklingar.
Tíundi hver Garðmaður
af erlendu bergi brotinn
Dauðagildra æðafugla
við Njarðvíkurhöfn
9. tbl. 2004 umbrot hbb 25.2.2004 15:22 Page 28